Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 822

13. nóvember 2023, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 363 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 821 og 822. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 822 frá 13. nóvember er staðfest með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2303071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - september 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - október 2023.

  2. 2. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2024

    Mál 2309162 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs.

    Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá til samræmis við minnisblað sem fjallar um gjald fyrirtækja fyrir klippikort.

    Gjaldskrá með breytingum er samþykkt og tekur hún gildi frá og með 1. janúar 2024.

  3. 3. Gjaldskrá fasteignagjalda 2024

    Mál 2309055 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um breytingu á sorphirðu- og sorpeyðingarargjaldi sem er frávik frá samþykkt bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir með tveim atkvæðum fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi í gjaldskrá fasteignagjalda og vísar breytingu til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn tillögu um gjaldskrá fasteignagjalda.

  4. 4. Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024

    Mál 2310115 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilögu að gjaldskrá gatnagerðargjalda.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá gatnagerðargjalda sem tekur gildi 1. janúar 2024.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024

    Mál 2305072 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka nefndarinnar fyrir árið 2024.

    Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að vinna greinargerð um skipulag úrgangsmála og tillögur sem teknar verða til umfjöllunar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og umhverfis- og skipulagsnefndar.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  6. 6. Kjarasamningar 2023 - áhrif nýrra kjarasamninga

    Mál 2304177 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um áhrif kjarasamninga á launaútgjöld og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2023.

    Bæjarráð vísar minnisblaði til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023.

  7. 7. Upplýsingatækni - starfrænt pósthólf

    Mál 2310127 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar minnisblað um innleiðingu og notkun á stafrænu pósthólfi á island.is fyrir launaseðla og launamiða starfsmanna ásamt frekari miðlun gagna.

    Bæjarráð tekur undir tillöguna og markmið um lækkun kostnaðar og minni sóun pappírs.

  8. 8. Vaktakerfi slökkviliðs

    Mál 2310062 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um vaktakerfi slökkviliðs Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir að framlengja tímabundið núverandi fyrirkomulag vaktakerfis slökkviðliðs Fjarðabyggðar til 1. apríl 2024 eða til þess tíma að samningsaðilar hafi lokið samningum.

  9. 9. Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði endurbætur Melbæ

    Mál 2211090 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi félags eldriborgara á Eskfirði varðandi endurbætur á húsnæði félagsins í Melbæ.

    Bæjarráð harmar að erindum hafi ekki verið svarað með formlegum hætti og felur bæjarstjóra að svara bréfritara. Jafnframt verði farið í viðhald innan ramma fjárhagsáætlunar 2024 og felur bæjarráð sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að fylgja því eftir.

  10. 10. Samráð við Byggðaráð Múlaþings

    Mál 2311065 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð samráðsfundar bæjarráðs Fjarðabyggð og byggðaráðs Múlaþings.

    Framlagt og kynnt.

  11. 11. Lenging Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði

    Mál 2303153 Allur ferill málsins

    Þriðjudaginn 24. október voru opnuð tilboð í verkið "Fjarðabyggðarhafnir: Lenging Strandarbryggju. Steypt staurabryggja". Hafnarstjórn hefur samþykkt tilboð og það nú lagt fyrir bæjarráð til staðfestingar.

    Bæjarráð staðfestir töku tilboðsins og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.

  12. 12. Styrkur til garnaveikibólusetningar í Fjarðabyggð

    Mál 2311092 Allur ferill málsins

    Umræða um styrki vegna garnaveikibólusetningar í sauðfé.

    Bæjarráð samþykkir að greiða fyrir þjónustu dýralækna vegna bólusetningar gegn garnaveiki í allri Fjarðabyggð. Bændur leggja til bóluefni. Bæjarritara falið að ræða við dýralækna um þjónustu.

  13. 13. Umsókn um lóð Gilsholt 6-16

    Mál 2310164 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Búðinga ehf. um lóðina að Gilsholti 6- 16 á Fáskrúðsfirði fyrir 5 íbúða fjölbýli.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  14. 14. Umsókn um lóð Búðarmelur 5

    Mál 2311046 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Búðarmel 5 a til c á Reyðarfirði fyrir þriggja íbúða fjölbýli.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  15. 15. Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk

    Mál 2309240 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Fiskeldis Austfjarða hf. um lóðina Hafnargötu 27 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  16. 16. Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040

    Mál 2310027 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar umsögn Fjarðabyggðar um stefnu Matvælaráðuneytisins vegna lagareldis til ársins 2040.

  17. 17. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 14. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
    2. 17.2 Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda2310047
    3. 17.3 Bréf varðandi Egilsbúð2310119
    4. 17.4 Menningarmót í Fjarðabyggð2211009
  18. 18. Fræðslunefnd - 133

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár 2023-20242310142
    2. 18.2 Sumarlokun leikskóla 20242311038
    3. 18.3 Starfshópur um verkefnið Brúum bilið2311039
    4. 18.4 Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu2311040
  19. 19. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 38

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 19.1 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs2309162
    2. 19.2 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
    3. 19.3 Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 20242310115
    4. 19.4 Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði2310164
    5. 19.5 Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2310156
    6. 19.6 Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2302173
    7. 19.7 Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk2309240
    8. 19.8 Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva2310034
    9. 19.9 Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð2310174
    10. 19.10 Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Búðarárfoss2310097
    11. 19.11 Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Streitishvarf2310113
    12. 19.12 Framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil2310186
    13. 19.13 Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað2311028
    14. 19.14 Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði2311012
    15. 19.15 Framkvæmdaleyfi endurnýjun á fráveitulögnum2311049
    16. 19.16 740 Svarthamrar - Óleyfisbyggingar1908047
    17. 19.17 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 252310028
    18. 19.18 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 22311013
    19. 19.19 Umsókn um stöðuleyfi2310124
    20. 19.20 Niðurfelling gjalda á móttökustöð2310135
    21. 19.21 Til umsagnar 314. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis2310118
    22. 19.22 Umsókn um lóð Búðarmelur 52311046
    23. 19.23 Umsókn um stöðuleyfi2311056
    24. 19.24 Búðarmelur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2311061
    25. 19.25 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20232301174