Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 133

7. nóvember 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, formaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
  • Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
  • Sigurjón Rúnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Anna Marín Þórarinsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 822 liður 18

    Fundargerð fræðslunefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 363 liður 4

    Fundargerðir fræðslunefndar nr. 132 og 133 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Engin tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 133 frá 7. nóvember er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2023-2024

    Mál 2310142 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd hefur kynnt sér starfsáætlanir og skólanámskrár leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og skólanámskrár skólaárið 2023-2024.

  2. 2. Sumarlokun leikskóla 2024

    Mál 2311038 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla 2024. Í minnisblaðinu eru lagðar fram tvær tillögur. Fræðslunefnd samþykkir fyrri tillöguna sem gerir ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2024 verði þessi:

    Eyrarvellir Norðfirði 24.06-19.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

  3. 3. Starfshópur um verkefnið Brúum bilið

    Mál 2311039 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti tillögu að starfshóp varðandi verkefnið Brúum bilið. Verkefnið miðar að því að brúa bilið milli skólastiga, það er elstu nemendur leikskólanna og 1.bekkjar grunnskólanna. Í starfshópnum munu sitja sérkennslustjórar leikskólanna, með aðkomu sérkennara grunnskólanna, en hópnum er ætlað mynda betri samfellu og umgjörð um verkefnið Brúum bilið.

    Fræðslunefnd fagnar þessu verkefni.

  4. 4. Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu

    Mál 2311040 Allur ferill málsins

    Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fór yfir viðfangsefni leik-, grunn- og tónlistarskólanna í októbermánuði.

    Fræðslunefnd þakkar greinagóða kynningu.