Fræðslunefnd, fundur 134
12. desember 2023, kl. 16:30 til 18:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Anna Marín Þórarinsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Birgir Jónsson, formaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varaformaður
- Jónas Eggert Ólafsson, aðalmaður
- Sigurjón Rúnarsson, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Anna Marín Þórarinsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 827 liður 16
Fundargerð 134. fundar fræðslunefndar frá 12. desember lög fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 367 liður 3
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 12. desember staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.
Mál 2311210 Allur ferill málsins
Þingsályktunartillagan um gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra var kynnt fyrir fræðslunefnd.
-
2. Rekstrarkostnaður leikskóla 2022
Mál 2310107 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar rekstrarupplýsingar leikskóla fyrir árið 2022.
-
3. Sumarlokun leikskóla 2024
Mál 2311038 Allur ferill málsins
Fyrir liggja óskir um breytingu á sumarlokun leikskólanna frá Kærabæ og Dalborg. Fræðslunefnd tók málið fyrir og samþykkir breytinguna. Sumarlokun leikskólanna verður því þessi:
Eyrarvellir Norðfirði 24.06-19.07 báðir dagar meðtaldir
Dalborg Eskifirði 10.07-07.08 báðir dagar meðtaldir
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 08.07-06.08 báðir dagar meðtaldir
Kæribær Fáskrúðsfirði 15.07-09.08 báðir dagar meðtaldir
Lyngholt Reyðarfirði 17.07-14.08 báðir dagar meðtaldir
Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.
-
4. Rekstrarkostnaður grunnskólanna 2022
Mál 2310106 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar rekstrarupplýsingar grunnskóla fyrir árið 2022.
-
5. 9 mánaða rekstraryfirlit 04
Mál 2312065 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fór yfir rekstrarniðurstöðu fræðslusviðs fyrstu níu mánuði ársins 2023.
-
6. Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 2023
Mál 2312020 Allur ferill málsins
Til kynningar var framlagt erindi forstöðumanna bókasafnanna frá 1. desember 2023.
-
7. Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Mál 2312028 Allur ferill málsins
Til kynningar voru nýjar starfsreglur forvarnateymis Fjarðabyggðar.
-
8. Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Mál 2312028 Allur ferill málsins
Til kynningar voru nýjar áherslur forvarnateymis Fjarðabyggðar fyrir árin 2024-2026.
-
9. Fundaáætlun fræðslunefndar vor 2024
Mál 2312064 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir fyrra hluta ársins 2024. Fræðslunefnd samþykkir fundaráætlunina.
-
10. Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
Mál 2311040 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu fór yfir viðfangsefni leik-, grunn- og tónlistarskólanna í nóvembermánuði.
Fræðslunefnd þakkar greinagóða kynningu.