Bæjarráð, fundur 827
18. desember 2023, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 367 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Birgir Jónsson, Jón Björn Hákonarson Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 18. desember utan liðar 10 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Útsvar 2024
Mál 2311037 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að breytingu á áður samþykktri Útsvarsprósentu Fjarðabyggðar. Með hliðsjón af samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 15. desember 2023 um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk samþykkir bæjarráð að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23%, verði 14,97% og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. Útboð almenningssamgangna í Fjarðabyggð 2024-2027
Mál 2310035 Allur ferill málsins
Útboði vegna almenningssamganga í Fjarðabyggð er lokið. Eitt tilboð barst í verkið. Fjármálastjóra og forstöðumanni stjórnsýslu og upplýsingamála er falið að ræða við tilboðsgjafa.
-
3. Starfshópur fræðslumála 2023
Mál 2309181 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að uppfærðu erindisbréfi starfshóps um fræðslumál. Bæjarráð samþykkir erindisbréfið. Skipað verður í starfshópinn á næsta fundi bæjarráðs.
-
4. Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023
Mál 2312109 Allur ferill málsins
Framlagt boð á aðalfund Héraðsskjalasafns Austurlands 2023 sem fram fer föstudaginn 22. desember nk. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
5. Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Mál 2312028 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd, félagsmálanefnd og fræðslunefnd minnisblaði varðandi nýjar starfsreglur forvarnarteymis ásamt áherslum teymisins. Framlagt og kynnt.
-
6. Reglur um stuðningsþjónustu - uppfærsla 2023
Mál 2312060 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til staðfestinga í bæjarráði tillögu að uppfærðum reglum um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
-
7. Gjaldskrá leikskóla 2024
Mál 2309160 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fræðslustjóra varðandi breytingu á gildistöku gjaldskrár fyrir leikskóla 2024. Bæjarráð samþykkir breytingu á gildistöku gjaldskrár fyrir leikskóla og mun ný gjaldskrá taka gildi 1. febrúar 2024.
-
8. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Mál 2301137 Allur ferill málsins
Framlagður samningur við fiskeldissjóð vegna styrks í framkvæmdir við Eskifjarðarhöfn. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
9. Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
Mál 2312056 Allur ferill málsins
Framlögð drög atvinnu- og þróunarstjóra að umsögn vegna sjávarútvegsstefnu og frumvarpi til laga um sjávarútveg. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna áfram að umsögninni að halda áfram að vinnu við umsögnina og leggja hana endanlega fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
10. Frumvarp til laga um lagareldi
Mál 2312045 Allur ferill málsins
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið. Framlögð drög atvinnu- og þróunarstjóra að umsögn vegna frumvarps til laga um lagareldi. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna áfram að umsögninni og leggja hana endanlega fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
11. Ísland ljóstengt 2022 ljósleiðaralagning Fáskrúðsfjörður - norður
Mál 2305085 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samkomulagi við Mílu um uppgjör vegna ljósleiðarverkefnis á norðurströnd Fáskrúðsfjarðar. Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra undirritun samkomulagsins.
-
12. Erindi frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar - desmber 2023
Mál 2312092 Allur ferill málsins
Framlagt og kynnt erindi frá íbúasamtökunum á Stöðvarfirði. Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Vinna við sölu á rekstri tjaldsvæðanna er í gangi og verða hugmyndir íbúasamtakanna hafðar með í þeirri vinnu.
-
13. 3.Stjórnarfundur Náttúrustofu Austurlands
Mál 2312082 Allur ferill málsins
Fundargerð 3. fundar stjórnar náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.
-
14. Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023
Mál 2312063 Allur ferill málsins
Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands. Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið hefur lagt til að núverandi samningur verði framlengdur um eitt ár og verður samkomulag þess efnis sent út milli jóla og nýjárs. Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn og felur bæjarstjóra undirritun samkomulags þar um. Bæjarráð ítrekar þó að mikilvægt sé að tryggja rekstrargrundvöll Náttúrustofunnar til lengri tíma.
-
15. Auka aðalfundur Leigufélagsins Bríetar 2023
Mál 2312127 Allur ferill málsins
Boðað hefur verið til aukaaðalfundar leigfélagsins Bríetar mánudaginn 18. desember kl. 15:00. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
16. Fræðslunefnd - 134
Fundargerð 134. fundar fræðslunefndar frá 12. desember lög fram til staðfestingar
- 16.1 Gjaldfrjálsar skólamáltíðir og umgjörð þeirra.2311210
- 16.2 Rekstrarkostnaður leikskóla 20222310107
- 16.3 Sumarlokun leikskóla 20242311038
- 16.4 Rekstrarkostnaður grunnskólanna 20222310106
- 16.5 9 mánaða rekstraryfirlit 042312065
- 16.6 Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 20232312020
- 16.7 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-20242312028
- 16.8 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-20242312028
- 16.9 Fundaáætlun fræðslunefndar vor 20242312064
- 16.10 Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu2311040
-
17. Félagsmálanefnd - 174
Fundargerð 174. fundar félagsmálanefndar frá 13. desember lögð fram til staðfestingar.
- 17.1 Íslenska æskulýðsrannsóknin 20232310143
- 17.2 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-20242312028
- 17.3 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-20242312028
- 17.4 Reglur um stuðningsþjónustu - uppfærsla 20232312060
- 17.5 9 mánaða rekstraryfirlit 022312052
- 17.7 Skýrsla stjórnenda - félagsmálanefnd2311096
-
18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 128
Fundargerð 128. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til staðfestingar
- 18.1 Samstarf Fjarðabyggðar við Eyrina Heilsurækt
- 18.2 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
- 18.3 Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
- 18.4 Fundaáætlun íþrótta- og tómstundanefndar vor 2024
- 18.5 Níu mánaða rekstraryfirlit íþrótta- og tómstundadeildar 2023
- 18.6 Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2023
- 18.7 Breyting á helgaropnun yfir vetrartímabil sundlaug Eskifjarðar og Norðfjarðar