Bæjarráð, fundur 828
8. janúar 2024, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varamaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 367 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. janúar utan liðar 12 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2303071 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - október 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - nóvember 2023. Einnig lagt fram deildayfirlit í málaflokkum sveitasjóðs fyrir janúar - október.
-
2. Útboð almenningssamgangna í Fjarðabyggð 2024-2027
Mál 2310035 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um niðurstöðu viðræðna við tilboðsgjafa vegna almenningssamganga 2024 - 2026.
Bæjarráð samþykkir tillögu að uppfærðum samningi um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð og vísar kostnaði umfram fjárhagsáætlun ársins til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024.
-
3. Húsnæðisáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2310039 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar tillögu fjármálastjóra að forsendum húsnæðisáætlunar 2024 fyrir Fjarðabyggð og langtímaþróun 2024-2033 sbr. fund bæjarráðs frá 9. október 2023.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög sem verða útfærð nánar og lögð fyrir bæjarráðsfund að nýju.
-
4. Skerðing á rafmagni til fjarvarmaveitna
Mál 2401035 Allur ferill málsins
Lagðar fram tilkynningar frá Landsvirkjun og Orkusölunni um skerðingu á rafmagni til fjarvarmaveita Fjarðabyggðar frá 18. janúar 2024.
-
5. Framlög í þágu farsældar barna
Mál 2312159 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað varðandi aukið vinnuálag tengt nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og framlög vegna farsældar barna.
Bæjarráð frestar umfjöllun til næsta fundar.
-
6. Íbúafundir í janúar 2024
Mál 2312011 Allur ferill málsins
Farið yfir skipulag íbúafunda í janúar 2024.
-
7. Erindi varðandi nýja opnunartíma móttökustöðva
Mál 2401017 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar varðandi opnun gámavalla á Stöðvarfirði.
Bæjarráð þakkar ábendingu en finnst leitt ef ekki hafi borist viðeigandi svör vegna breytinga á opnunartíma þjónustumiðstöðva. Breytingar á opnunartíma verða metnar þegar líður á árið.
-
8. Erindi frá íbúasamtökum Fáskrúðsfjarðar vegna sundlaugar
Mál 2312145 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá íbúasamtökunum á Fáskrúðsfirði varðandi sundlaugina á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð þakkar erindið en ekki hafa verið teknar ákvarðanir um einstaka ráðstafanir í rekstri íþróttamannvirkja. Starfshópur á vegum sveitarfélagsins er að störfum sem fjallar um framtíðarfyrirkomulag íþróttamannvirkja en hann mun skila bæjarstjórn tillögum sínum á næstu vikum.
-
9. Erindi til sveitarstjórnar
Mál 2312149 Allur ferill málsins
Fram lagt erindi frá Upplýsingu fagfélagi bókasafna og upplýsingafræða varðandi málefni bókasafna í Fjarðabyggð.
Bæjarráð þakkar gagnlegar ábendingar og vísar því til stjórnar menningarstofu.
-
10. Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Mál 2312028 Allur ferill málsins
Kynnt samantekt á starfi forvarnateymis Fjarðabyggðar árið 2023.
-
11. Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
Mál 2312056 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsögn vegna frumvarps til laga um sjávarútveg og sjávarútvegsstefnu yfirvalda.
Bæjarstjóra falið að fara yfir umsagnir og senda inn.
-
12. Frumvarp til laga um lagareldi
Mál 2312045 Allur ferill málsins
Framlögð drög að umsögn við frumvarpi um lög um lagareldi.
Bæjarstjóra falið að fara yfir umsagnir og senda inn.
-
13. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Mál 2301183 Allur ferill málsins
Fundargerð 940. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
-
14. Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023
Mál 2312109 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023, ásamt gögnum sem lágu fyrir fundinum, lögð fram til kynningar.
-
15. Hafnarstjórn - 306
Fundargerð 306. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 15.1 Rekstur Fjarðabyggðarhafna2312117
- 15.2 Skemmtiferðaskip fundur um tekjur 20232312088
- 15.3 Úthlutun byggðakvóta 2023 og 20242312006
- 15.4 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196