Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 306

18. desember 2023, kl. 16:30 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 828 liður 15

    Fundargerð 306. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 367 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 18. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2312117 Allur ferill málsins

    Hafnarstjóri kynnir á fundinum greiningu ákveðinna þjónustuþátta í starfsemi Fjarðabyggðarhafna.

  2. 2. Skemmtiferðaskip fundur um tekjur 2023

    Mál 2312088 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og gögn frá kynningarfundi Ferðamálastofu um málefni sem tengjast komum erlendra skemmtiferðaskipa til Íslands.

  3. 3. Úthlutun byggðakvóta 2023 og 2024

    Mál 2312006 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Matvælaráðuneytið lagði með bréfi til Fjarðabyggðar til úthlutun á byggðakvóta til sveitarfélagsins fyrir fiskveiðiárið 2023/2024. Bæjarráð samþykkti að ekki verði óskað eftir sérreglum varðandi úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið, en það sama gilti á síðasta fiskveiðiári.

  4. 4. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023

    Mál 2301196 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 459. fundar Hafnasambands Íslands