Hafnarstjórn, fundur 305
4. desember 2023, kl. 16:30 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 826 liður 24
Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar
Bæjarstjórn, fundur 365 liður 5
Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar
Engin tók til máls.
Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar frá 4. desember er samþykkt með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat
Mál 2009216 Allur ferill málsins
Lagt fyrir að nýju. Á 303. fundi hafnarstjórnar var hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna falið að ræða við Guðmund Guðlaugsson vegna erindis hans og leggja fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir flutning á Rex til endurbóta á grundvelli tilboðs Guðmundar.
-
2. Beiðni um nýja flotbryggju
Mál 2204049 Allur ferill málsins
Lagt fyrir að nýju. Á 277. fundi hafnarstjórnar var tekið fyrir erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands vegna flotbryggju við aðstöðu klúbbsins á Eskifirði og var framkvæmdasviði falið að skoða mögulegar lausnir og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju. Hafnarstjórn samþykkir tilboð Guðmundar Guðlaugssonar í gerð flotbryggju.
-
3. Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
Mál 2310174 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd tók á 39. fundi sínum fyrir ósk Rarik um leyfi fyrir lagningu 11 kV rafstrengs í jörð frá aðveitustöð í Eskifirði að Mjóeyrarhöfn og hefur falið umhverfis- og skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
-
4. Sérstakt strandveiðigjald til hafna 2023
Mál 2311220 Allur ferill málsins
Tilkynning frá Fiskistofu um greiðslu strandveiðigjalds til hafna lögð fram til kynningar.
-
5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Mál 2301196 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 458. fundar Hafnasambands Íslands