Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 304

20. nóvember 2023, kl. 16:30 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 824 liður 18

    Fundargerð 304. fundar hafnarstjórnar frá 21. nóvember lögð fram til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 364 liður 8

    Fundargerð 304. fundar hafnarstjórnar frá 20. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 304 er staðfest með 9 greiddum atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip

    Mál 2307125 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað Mannvits um mat vesturhluta hafnarkants Mjóeyrarhafnar og erindi Eimskips fyrir auknum afköstum viðbótar krana á Mjóeyrarhöfn. Pétur F. Jónsson, svæðisstjóri Eimskips á Austurlandi, mætti á fundinn. Hafnarstjórn heimilar notkun á viðbótarkrana á Mjóeyrarhöfn.

  2. 2. Öryggismál hafna

    Mál 2206100 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Öryggisstjórnun ehf. mun vinna úttekt á öryggisstjórnun hafnarsvæða í Fjarðabyggð þar sem gerð verður stöðugreining og komið með tillögur að bættri öryggisstjórnun á hafnarsvæðum Fjarðabyggðar.

  3. 3. Grænn orkugarður á Reyðarfirði

    Mál 2108124 Allur ferill málsins

    Þriðjudaginn 14.nóvember síðastliðinn voru haldnir fundir um Grænan orkugarð með sveitarstjórnarfólki á Austurlandi, fyrirtækjum á svæðinu og íbúum. Farið var yfir það sem fram kom á fundunum.

  4. 4. Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040

    Mál 2310027 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsögn Fjarðabyggðar um stefnu Matvælaráðuneytisins vegna lagareldis til ársins 2040.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023

    Mál 2301196 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 457. fundar Hafnasambands Íslands