Hafnarstjórn, fundur 303
26. október 2023, kl. 16:30 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 820 liður 35
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 362 liður 4
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 303 frá 26. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu
Engin tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 303 frá 26. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Fjárfestingaráætlun Fjarðabyggðarhafna lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárfestingaáætlun með þeim breytingum sem hafa orðið með áorðnum viðaukum fyrir árið 2023. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn fjárfestingaáætlun 2024 sem og þriggja ára áætlun 2025-2027.
-
2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2024
Mál 2309151 Allur ferill málsins
Drög að gjaldskrá 2024 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023
Mál 2208077 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað hafnarstjóra vegna breytinga sem gerðar verða á fjárfestingaráætlun hafnarsjóðs 2023 skv. ákvörðun bæjarráðs frá 16. október 2023. Hafnarstjórn samþykkir og vísar breytingunum til viðaukagerðar.
-
4. Lenging Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði
Mál 2303153 Allur ferill málsins
Þriðjudaginn 24. október voru opnuð tilboð í verkið "Fjarðabyggðarhafnir: Lenging Strandarbryggju. Steypt staurabryggja". Hafnarstjórn samþykkir tilboðið og felur hafnarstjóra að ganga frá samningi við MVA ehf.
-
5. Erindi til Hafnarstjórnar, Höfnin á Breiðdalsvík
Mál 2310073 Allur ferill málsins
Erindi frá Elís Pétri Elíssyni varðandi hafnarmannvirki á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn þakkar erindið og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að svara erindinu.
-
6. Bryggja við minningarreit SVN í Neskaupstað
Mál 2310140 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Síldarvinnslunnar um að reisa bryggju við minningarreit fyrirtækisins í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir beiðni Síldarvinnslunnar fyrir sitt leiti að því gefnu að öll tilskilin leyfi fáist. Huga þarf að því að grjótvörn skerðist ekki við framkvæmdina.
-
7. Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat
Mál 2009216 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Guðmundar Guðlaugssonar varðandi endurgerð á bátnum Rex. Hafnarstjórn þakkar erindið og felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að ræða við Guðmund um útfærslu og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.