Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 302

9. október 2023, kl. 16:30 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024

    Mál 2305073 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðuna við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Verkefnastjóra hafna falið að taka saman helstu áherslur í minnisblaði sem mun fylgja fjárhagsáætlun.

  2. 2. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2024

    Mál 2309151 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna lögð fram til umræðu. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá taki mið af verðlagsbreytingum og launavísitölu þar sem við á. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá gjaldskrá í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar.

  3. 3. Ný olíulögn á Bræðslubryggju, Eskifirði

    Mál 2310043 Allur ferill málsins

    Lögð fram ósk Mannvits, fyrir hönd Gallons ehf., um leyfi til að endurnýja olíulögn við athafnasvæði Eskju á Eskifirði þar sem eldri lögn er ónýt. Hafnarstjórn samþykkir lagningu nýrrar olíulagnar en áréttar að framkvæmdaaðili hagi framkvæmd þannig að hún raski ekki annarri starfsemi á höfninni.

  4. 4. Hafnafundur 2023

    Mál 2309225 Allur ferill málsins

    Boðun á Hafnafund 2023 sem haldinn verður 20. október í Hafnarfirði

  5. 5. Samstarfsfundir Hafnasambands Íslands og Fiskistofu

    Mál 2310041 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Hafnasambands Íslands til allra aðildarhafna varðandi samstarfsfundi Hafnasambands Íslands og Fiskistofu

  6. 6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023

    Mál 2301196 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 456. fundar Hafnasambands Íslands