Hafnarstjórn, fundur 301
25. september 2023, kl. 16:30 til 17:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, formaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 816 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. september lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 360 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 25. september staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Landtengingar skipa í Norðfjarðarhöfn
Mál 2309208 Allur ferill málsins
Farið yfir fyrirhugaðar breytingar landtenginga skipa í Norðfjarðarhöfn.
Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að ræða við forsvarsmenn Síldarvinnslunnar um áform þeirra með landtengingu skipa.
-
2. Mengunarmál í höfnum Fjarðabyggðar
Mál 2308149 Allur ferill málsins
Hafnarstjóri gerði grein fyrir fundi Umhverfisstofnunar, Heilbrigðiseftirlits Austurlands og Fjarðabyggðarhafna með Loðnuvinnslunni, Eskju og Síldarvinnslunni sem haldinn var 18. september 2023.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Mál 2305073 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu þeirra framkvæmda sem eru á fjárhagsáætlun 2023 og næstu skref í undirbúningi framkvæmda fyrir árið 2024.