Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 362

2. nóvember 2023, kl. 16:00 til 18:38, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Birgir Jónsson, forseti bæjarstjórnar
  • Elís Pétur Elísson, varamaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024 ásamt þriggja ára áætlun 2025 til 2027- fyrri umræða

    Mál 2305061 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:34:04

    Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun.

    Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2024 ásamt þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2025 til 2027.

    Til máls tóku: Jóna Árný Þórðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson, Elís Pétur Elísson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Birgir Jónsson, Heimir Snær Gylfason, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2024 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2025 til 2027 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Bæjarráð - 818

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:30:04

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson

    Bókun Sjálfstæðisflokksins:

    Stjórnsýsluúttekt Deloitte ber þess merki að víða er þörf á úrbótum innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Til að auka skilvirkni og ánægju starfsfólks Fjarðabyggðar er mikilvægt að skapa kraftmikið starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr neikvæðri starfsmannaveltu. Niðurstaða stjórnsýsluúttektarinnar gefur bæjarstjórn glögga mynd af þeim veikleikum sem er innan stjórnkerfisins en jafnframt þeim tækifærum og styrkleikum sem nýta megi til að ná fram auknum árangri og bættu vinnuumhverfi. Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð leggur til að bæjarráð vinni tímasetta úrbótaáætlun á grunni niðurstöðu úttektarinnar með skýrri verkefnalýsingu og ábyrgð verkþátta

    Elís Pétur Elísson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 3.7. í fundargerð nr. 819 og var sá liður tekin sérstaklega til umfjöllunar.

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 utan liðar 3.7 í fundargerð 819 eru staðfestar með 9 greiddum atkvæðum

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 202423050612:43:48
    2. 2.2 Gjaldskrá fasteignagjalda 20242305061
    3. 2.3 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 20242305069
    4. 2.4 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242309055
    5. 2.5 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242303230
    6. 2.6 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs2301137
    7. 2.7 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242309257
    8. 2.8 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242310061
    9. 2.9 Yfirlýsing vegna kaupréttar2310089
    10. 2.10 Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 202323100621:30:32
    11. 2.11 Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga2310078
    12. 2.12 Samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar2310079
    13. 2.13 Brunavarnaráætlun 20232310047
    14. 2.14 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20242310063
    15. 2.15 Samkomulag um rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika2310083
    16. 2.16 Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga og leiðbeiningar um framkvæmd2310090
    17. 2.17 Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 27. október 20232309074
    18. 2.18 Tjaldsvæði 20222310011F
    19. 2.19 Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 20232310010F
    20. 2.20 Fiskeldissjóður - umsóknir 20232310008F
    21. 2.21 Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 20242310003F
    22. 2.22 Mannvirkja- og veitunefnd - 212310009F
    23. 2.23 Umhverfis- og skipulagsnefnd - 372309028F
  3. 3. Bæjarráð - 819

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:44:32

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson

    Bæjarfulltrúi Elís Pétur Elísson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 3.7. í fundargerð 819 og var sá liður tekin sérstaklega til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 utan liðar 3.7 í fundargerð 819 eru staðfestar með 9 greiddum atkvæðum

    1. 3.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305061
    2. 3.2 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 20242309055
    3. 3.3 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20242305069
    4. 3.4 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20242305048
    5. 3.5 Bráðaviðgerðir ofanflóðamannvirkja í Neskaupstað2305072
    6. 3.6 Erindi íbúasamtaka Stöðvarfjarðar vegna tjaldsvæðis2309162
    7. 3.7 Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda23050671:44:32
    8. 3.8 Landamerkjamál Stuðla2305071
    9. 3.9 Yfirlýsing vegna kaupréttar2209031
    10. 3.10 Erindi Bj.sv.í Fjarðabyggð varðandi björgunarhunda2303238
    11. 3.11 Starfshópur vegna ofanflóðavarna og skipulagsmála2310091
    12. 3.12 Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði2310101
    13. 3.13 Reglur og samkomulag um íþróttahús og líkamsrækt án viðveru starfsmanns.2308147
    14. 3.14 Fjöldatakmörkun smærri sundlauga Fjarðabyggðar2309172
    15. 3.15 Gjaldskrá sundlauga 20242310116
    16. 3.16 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik2310122
    17. 3.17 Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla2310085
    18. 3.18 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242203199
    19. 3.19 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 20242303098
    20. 3.20 Gjaldskrá skíðasvæðis 20242301137
    21. 3.21 Gjaldskrá íþróttahúsa 20242310126
    22. 3.22 Gjaldskrá bókasafna 20242310017F
    23. 3.23 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20242310019F
    24. 3.24 Gjaldskrá fráveitu 2024
    25. 3.25 Gjaldskrá vatnsveitu 2024
    26. 3.26 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
    27. 3.27 Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024
    28. 3.28 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2024
    29. 3.29 Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024
    30. 3.30 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2024
    31. 3.31 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025
    32. 3.32 Gjaldskrá félagsheimila 2024
    33. 3.33 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
    34. 3.34 Félagsmálanefnd - 171
    35. 3.35 Hafnarstjórn - 303
    36. 3.36 Íþrótta- og tómstundanefnd - 126
    37. 3.37 Öldungaráð - 10
  4. 4. Hafnarstjórn - 303

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:45:56

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 303 frá 26. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 303 frá 26. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
    2. 4.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20242309151
    3. 4.3 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20232208077
    4. 4.4 Lenging Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði2303153
    5. 4.5 Erindi til Hafnarstjórnar, Höfnin á Breiðdalsvík2310073
    6. 4.6 Bryggja við minningarreit SVN í Neskaupstað2310140
    7. 4.7 Rex NS 3 endurgerð og ástandsmat2009216
  5. 5. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 37

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:46:24

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 37 frá 20. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 37 frá 20. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 5.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
    2. 5.2 Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 20242310115
    3. 5.3 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs2309162
    4. 5.4 Gjaldskrá hunda- og kattahald 20242309156
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 126

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:46:52

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 126. frá 23. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 126 frá 23. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 6.1 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
    2. 6.2 Tillaga Fjarðalistans og Framsóknarflokksins að tilfærslu félagsmiðstöðvarinnar Knellunnar.
    3. 6.3 Gjaldskrá skíðasvæðis 2024
    4. 6.4 Gjaldskrá sundlauga 2024
    5. 6.5 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
    6. 6.6 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2024
    7. 6.7 Gjaldskrá íþróttahúsa 2024
    8. 6.8 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2024
    9. 6.9 Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar
    10. 6.10 Fjöldatakmörkun smærri sundlauga Fjarðabyggðar
    11. 6.11 Reglur og samkomulag um íþróttahús og líkamsrækt án viðveru starfsmanns.
  7. 7. Mannvirkja- og veitunefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð mannvirkjar- og veitunefndar nr. 21 frá 18. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar nr. 21 frá 18. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 7.1 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242305071
    2. 7.2 Römpum upp Ísland2203163
    3. 7.3 Tjaldsvæði 20222203199
    4. 7.4 Gjaldskrá fráveitu 20242309152
    5. 7.5 Gjaldskrá vatnsveitu 20242309167
    6. 7.6 Gjaldskrá hitaveitu 20242309155
    7. 7.7 Gjaldskrá fjarvarmaveita 20242309099
  8. 8. Félagsmálanefnd - 171

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:47:20

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 171 frá 25. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 171 frá 25. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 8.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20242305070
    2. 8.2 Öldungaráð - 102310023F
    3. 8.3 Búsetukjarni og skammtímavistun2301106
  9. 9. Öldungaráð - 10

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:47:48

    Fundargerð öldungaráðs nr. 10 frá 23. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu

    Engin tók til máls.

    Fundargerð öldungaráðs nr. 10 frá 23. október er staðfest með 9 greiddum atkvæðum

    1. 9.1 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242309168
    2. 9.2 Gjaldskrá sundlauga 20242309165
    3. 9.3 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik2309170
    4. 9.4 Þjónustusamningur milli Fjarðabyggðar og félaga eldri borgara2310136
    5. 9.5 Forvarnir og fræðsla 20232306007
    6. 9.6 Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA2306119
  10. 10. Gjaldskrá fasteignagjalda 2024

    Mál 2309055 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:48:16

    Bæjarstjóri mælti fyrir reglum um afslætti og gjaldskrá fasteignagjalda árið 2024.

    Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar gjaldskrá fasteignagjalda 2024 ásamt reglum um afslátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2024. Gjaldskráin og reglurnar taka gildi þann 1. janúar 2024.

    Fasteignaskattur A verði 0,424 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Fasteignaskattur B verði 1,320 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Fasteignaskattur C verði 1,650 % af húsmati og lóðarhlutamati

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald skv. gjaldskrá 4.721 kr. á veitu og 386 kr. pr. fermetra húsnæðis.

    Fráveitugjald skv. gjaldskrá 0,3232 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald skv. gjaldskrá 43.480 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá 29.900 kr. á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði tíu, mánaðarlega frá 1. febrúar. Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis.

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson, Stefán Þór Eysteinsson

    Bókun Sjálfstæðisflokksins:

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð leggst gegn óbreyttum álagningarstuðli fasteignagjalda sem leiðir af sér umtalsverða hækkun fasteignagjalda í Fjarðabyggð. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að sveitarfélagið taki ekki óhindrað við allri áætlaðri hækkun fasteignagjalda heldur dragi úr neikvæðum áhrifum hækkana á samborgaranna.

    Gert var fundarhlé kl. 17:28 og hófst fundur aftur kl. 17:46

    Bókun Framsóknar og Fjarðalista:

    Núverandi meirihluti Framsóknar og Fjarðalistans hefur síðustu tvö ár lækkað álagningarhlutfall fyrir fasteignaskatt og lóðarleigu, og hefur sveitarfélagið því fjarlægst hámarksnýtingu á tekjustofninum. Tekjustofnar sveitarfélaga eru tveir, þ.e. útsvar og fasteignaskattur og þarf að fara varlega í því að draga úr tekjum sveitarfélagsins. Einnig er vert að benda á að lækkun á álagningarhlutfalli fyrir fasteignaskatt og lóðarleigu hefur einnig áhrif á úthlutun jöfnunarsjóðs á framlögum vegna jöfnunar fasteignaskattstekna og yrði því um tvöfalda lækkun að ræða. Lækkun á tekjum frá fasteignarskatti yrðu líklega til þess að auka þyrfti tekjur með öðrum leiðum til að viðhalda núverandi þjónustustigi, til að mynda með hækkun á gjaldskrám sem myndu koma verst niður á barnafólki, eldri borgurum og öryrkjum.

    Bæjarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum álagningarstuðla fasteignagjalda í gjaldskrá fasteignagjalda 2024. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, Heimir Snær Gylfason, Kristinn Þór Jónasson og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir greiða atkvæði gegn gjaldskránni.

  11. 11. Reglur og samkomulag um íþróttahús og líkamsrækt án viðveru starfsmanns.

    Mál 2310108 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:21:24

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir reglum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að reglum um afnot af líkamsræktaraðstöðu utan reglulegrar viðveru starfsmanna í Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði ásamt drögum að samkomulagi um umsjón og afnot af íþróttahúsum utan reglulegrar viðverðu starfsmanns og yfirlýsingu hlutaðeigandi um afnot af líkamsrækt.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn staðestir með 9 atkvæðum reglurnar ásamt samkomulagi og yfirlýsingu.

  12. 12. Samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar

    Mál 2310101 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:22:20

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir skipan svæðisskipulagsnefndar.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar samkomulagi um skipan svæðisskipulagsnefndar Austurlands sem byggir á því að fulltrúar í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skipa svæðisskipulagsnefnd.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar Austurlands.

  13. 13. Brunavarnaráætlun 2023 - fyrri umræða

    Mál 2308147 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:23:16

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir brunavarnaráætlun Fjarðabyggðar.

    Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu bæjarstjórnar drögum að brunavarnaráætlun Fjarðabyggðar.

    Engin tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa brunvarnaráætlun Fjarðabyggðar til síðar umræðu.

  14. 14. Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

    Mál 2310091 Allur ferill málsins Upptaka frá 2:24:12

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir máli.

    Vísað frá bæjarráði til kynningar bæjarstjórnar erindi Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.

    Erindið er fram lagt og kynnt.

    Til máls tóku Stefán Þór Eysteinsson, Ragnar Sigurðsson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Elís Pétur Elísson, Heimir Snær Gylfason, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Kristinn Þór Jónasson. og Birgir Jónsson.

    Bókun Sjálfstæðisflokksins:

    Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð hefur áhyggjur af rekstri og skuldastöðu sveitarfélagsins. Skuldir sveitarfélagsins hafa hækkað og rekstrarafkoman versnað. Athugasemdir Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga bera þess glöggt merki en þar kemur fram að sveitarfélagið uppfyllir ekki lágmarksviðmið eftirlitsnefndar vegna reksturs A-hluta samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2022. Í bréfi eftirlitsnefndarinnar kemur fram að rekstarniðurstaðan hafi verið neikvæð um 5% og framlegðin langt undir lágmarksviðmiðum. Nokkuð ljóst þykir að sveitarfélagið mun ekki ná tilsettu lágmarksviðmiðum varðandi framlegð í ársreikningi fyrir núgildandi ár. Skuldir A- hluta hafa vaxið jafnt og þétt ár frá ári úr 8,3 milljarði króna í ársreikningi 2017 í 11 milljarða króna í ársreikningi 2022 og gefur útgönguspá sveitarfélagsins til kynna að sú tala muni áfram hækka í ársreikningi 2023. Sjálfstæðisflokkurinn áréttar að mikilvægt er að taka skilaboðum eftirlitsnefndarinnar alvarlega og snúa vörn í sókn með stefnu og aðgerðaáætlun til að styrkja rekstur sveitarfélagsins.

    Bókun Framsóknar og Fjarðalista:

    Þegar fjármál sveitarfélagsins eru rædd er nauðsynlegt að það sé gert á grunni réttra upplýsinga og að framsetning þeirra sé í takt við raunveruleikann. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, skal skuldaviðmið fyrir A B hluta ekki vera hærra en 150% af reglulegum tekjum. Gert er ráð fyrir að skuldaviðmið samstæðu A og B hluta, eins og það er skilgreint í sveitarstjórnarlögum og í reglugerð nr. 502/2012, lækki frá um 90% í árslok 2021 í um 59% í árslok 2027. Skuldaviðmið A hlutans lækkar frá um 115% í árslok 2022 niður í um 88% árið 2027. Samhliða lækkun á skuldaviðmiðum er gert ráð fyrir því að framlegðin í samstæðunni verði um 16% og að hún verði um 9,9% í A hluta á sama tíma. Gert er ráð fyrir að langtímalán við lánastofnanir lækki frá árinu 2022 úr rúmum 5,3 milljörðum króna niður í 4,3 milljarða króna í árslok 2027 á verðlagi hvers árs. Það er þó alveg ljóst að rekstur sveitarfélagsins, og sveitarfélaga almennt, við núverandi aðstæður er þungur og nauðsynlegt að sýna áfram aðhald í rekstri. Sú fjárhagsáætlunarvinna sem unnin hefur verið á síðustu mánuðum ber þess einmitt merki og það ljóst að áfram þarf að straumlínulaga reksturinn með það fyrir augum að bæta þá þjónustu sem boðið er upp á í sveitarfélaginu í heild sinni.