Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 819

23. október 2023, kl. 08:30 til 12:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varamaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
  • Snorri Styrkársson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 362 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman

    Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson

    Bæjarfulltrúi Elís Pétur Elísson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 3.7. í fundargerð 819 og var sá liður tekin sérstaklega til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 utan liðar 3.7 í fundargerð 819 eru staðfestar með 9 greiddum atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2305061 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árin 2024 - 2027.

    Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að gera breytingar á fjárfestingaráætlun þannig að 25 m.kr. verði varið í lokafrágang skjalasafns að Þiljuvöllum á árinu 2024 í stað 2025. Mætt með tilfærslu innan fjárfestingaráætlunar. Ragnar Sigurðsson situr hjá við afgreiðslu tilfærslunnar.

    Vísað til frekari úrvinnslu fjármálastjóra en áætlunin verður lögð fyrir á næsta fundi bæjarráðs til afgreiðslu.

  2. 2. Gjaldskrá fasteignagjalda 2024

    Mál 2309055 Allur ferill málsins

    Tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2024 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir með 2 atkvæðum tillögu að álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2024 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn tillögunni.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024

    Mál 2305069 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka bæjarráðs fyrir árið 2024.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024

    Mál 2305048 Allur ferill málsins

    Minnisblað fræðslustjóra varðandi tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fræðslumála fyrir árið 2024.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024

    Mál 2305072 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir árið 2024.

    Bæjarráð hefur samþykkt forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2024 og styðst við þær við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu. Bæjarráð vísar til nefndar að ljúka framsetningu fjárhagsáætlunar fyrir málaflokkinn milli umræðna.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  6. 6. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs

    Mál 2309162 Allur ferill málsins

    Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til bæjarráðs umfjöllun um gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð ásamt minnisblöðum verkefnastjóra umhverfismála varðandi gjaldskrárnar. Bæjarráð mun við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu styðjast við fyrri samþykkt bæjarráðs um breytingu gjaldskrár.

    Bæjarráð vísar gjaldskránni til frekari úrvinnslu í umhverfis- og skipulagsnefnd.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024

    Mál 2305067 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að starfs- og fjárhagsáætlun málaflokks menningarmála frá stjórnar menningarstofu og safnastofnunar fyrir árið 2024.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024

    Mál 2305071 Allur ferill málsins

    Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024, ásamt fjárfestingaráætlun.

    Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  9. 9. Yfirlýsing vegna kaupréttar

    Mál 2209031 Allur ferill málsins

    Forkaupsréttur að Hafnargötu 6 tekinn til umræðu. Lögfræðingur sveitarfélagsins fór yfir stöðu málsins.

    Tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  10. 10. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023

    Mál 2303238 Allur ferill málsins

    Skýrsla Deloitte um stöðuúttekt stjórnsýslunnar lögð fram.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna niðurstöður skýrslunnar fyrir hlutaðeigandi og vinna með hana áfram.

  11. 11. Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

    Mál 2310091 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.

    Bæjarráð vísar erindi til kynningar bæjarstjórnar.

  12. 12. Samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar

    Mál 2310101 Allur ferill málsins

    Framlagt samkomulag um skipan svæðisskipulagsnefndar Austurlands sem byggir á því að fulltrúar í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi skipa svæðisskipulagsnefnd.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að skipan nefndarinnar og vísar erindi til staðfestingar bæjarstjórnar.

  13. 13. Brunavarnaráætlun 2023

    Mál 2308147 Allur ferill málsins

    Framlögð til afgreiðslu bæjarráðs uppfærð brunavarnaráætlun fyrir Fjarðabyggð en áætlunin hefur verið yfirfarin og samþykkt af Mannvirkjastofnun.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti brunavarnaráætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  14. 14. Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2024

    Mál 2309172 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Slökkviliðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 lögð fram til umfjöllunar ásamt minnisblaði þar sem fjallað er um breytingar hennar.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina.

  15. 15. Samkomulag um rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika

    Mál 2310116 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi innviðaráðuneytisins til sveitarfélaga vegna slökkviliðum á landinu vegna formlegs fyrirkomulags til að tryggja gott samstarf viðeigandi opinberra aðila sem koma að rannsóknum flugslysa og alvarlegra flugatvika, sbr. 3. mgr. 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 996/2010.

    Bæjarráð samþykkir samkomulagið og felur bæjarstjóra undirritun þess.

  16. 16. Reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga og leiðbeiningar um framkvæmd

    Mál 2310122 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ný reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023 sem hefur verið staðfest og birt í Stjórnartíðindum.

  17. 17. Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 27. október 2023

    Mál 2310085 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar boð á rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinar sem haldin verður 27. október nk.

  18. 18. Tjaldsvæði 2022

    Mál 2203199 Allur ferill málsins

    Vísað frá mannvirkja- veitunefnd til umfjöllunar í bæjarráði tillögu vegna sölu tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð.

    Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að útfæra samningskaupalýsingu fyrir útboð tjaldsvæðanna ásamt auglýsingu og leggja fyrir bæjarráð að nýju. Jafnframt er viðkomandi gögnum vísað til frekari vinnslu samhliða þeirri vinnu.

  19. 19. Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023

    Mál 2303098 Allur ferill málsins

    Framlagðar tillögur upplýsingafulltrúa vegna vinnu við nýja heimasíðu Fjarðabyggðar og stafrænum lausnum.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að vinna með málið áfram í samráði við sviðsstjóra.

  20. 20. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023

    Mál 2301137 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur við Fiskeldissjóð vegna sameiningu útrása á Breiðdalsvík.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  21. 21. Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 2024

    Mál 2310126 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sambandi íslenskra Sveitarfélaga vegna kostnaðarþátttöku fyrir samstarf sveitarfélaga um stafrænna þróun og umbreytingu á árinu 2024.

  22. 22. Mannvirkja- og veitunefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð mannvirkja og veitunefndar frá 16. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 22.1 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242305071
    2. 22.2 Römpum upp Ísland2203163
    3. 22.3 Tjaldsvæði 20222203199
    4. 22.4 Gjaldskrá fráveitu 20242309152
    5. 22.5 Gjaldskrá vatnsveitu 20242309167
    6. 22.6 Gjaldskrá hitaveitu 20242309155
    7. 22.7 Gjaldskrá fjarvarmaveita 20242309099
  23. 23. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 37

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 23.1 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
    2. 23.2 Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 20242310115
    3. 23.3 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs2309162
    4. 23.4 Gjaldskrá hunda- og kattahald 20242309156