Bæjarráð, fundur 818
16. október 2023, kl. 08:30 til 13:05, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Snorri Styrkársson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 361 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 16. október staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarstjórn, fundur 362 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman
Til máls tóku: Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson
Bókun Sjálfstæðisflokksins:
Stjórnsýsluúttekt Deloitte ber þess merki að víða er þörf á úrbótum innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar. Til að auka skilvirkni og ánægju starfsfólks Fjarðabyggðar er mikilvægt að skapa kraftmikið starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr neikvæðri starfsmannaveltu. Niðurstaða stjórnsýsluúttektarinnar gefur bæjarstjórn glögga mynd af þeim veikleikum sem er innan stjórnkerfisins en jafnframt þeim tækifærum og styrkleikum sem nýta megi til að ná fram auknum árangri og bættu vinnuumhverfi. Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð leggur til að bæjarráð vinni tímasetta úrbótaáætlun á grunni niðurstöðu úttektarinnar með skýrri verkefnalýsingu og ábyrgð verkþátta
Elís Pétur Elísson vakti athygli á vanhæfi sínu varðandi lið 3.7. í fundargerð nr. 819 og var sá liður tekin sérstaklega til umfjöllunar.
Fundargerðir bæjarráðs nr. 818 og 819 utan liðar 3.7 í fundargerð 819 eru staðfestar með 9 greiddum atkvæðum
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024. Lögð fram drög að stöðu í sveitarsjóði í samanburði við ramma auk samaburðar á launaáætlunvið ramma.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Mál 2305061 Allur ferill málsins
Sviðsstjórar mættu og gerðu grein fyrir stöðu mála vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2024 m.t.t. bókunar bæjarráðs frá síðasta fundi sínum þess efnis að launaáætlun verði náð undir ramma.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2024
Mál 2305069 Allur ferill málsins
Vísað frá síðasta fundi bæjarráðs. Framhald af umræðu vegna kostnaðar við upplýsingatækni, en við hefur bæst yfirlit vegna reksturs Chrome Book véla í grunnskólum Fjarðabyggðar.
-
4. Gjaldskrá fasteignagjalda 2024
Mál 2309055 Allur ferill málsins
Gjaldskrá fasteignagjalda 2024 tekin til umræðu.
Bæjarráð vísar gjaldskrá fyrir vatnsgjald og fráveitu til umfjöllunar mannvirkja- og veitunefndar. Tillaga bæjarráðs er að breyta gjaldskrám b hluta fyrirtækjanna þannig að fjárfestingargeta fráveitu hækki en lækki að sama skapi í vatnsveitu.
-
5. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til umfjöllunar uppfærðri tillögu vegna framkvæmda við fráveitu við Tröllaveg í Norðfirði ásamt minnisblaði sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs varðandi fjárveitingu vegna framkvæmdanna.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir og kostnaði mætt með tilfærslu fjármuna af fjárfestingaráætlun hafnarsjóðs sem verða ekki fullnýttir á árinu 2023. Vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlunar 2023.
-
6. Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Mál 2301137 Allur ferill málsins
Samningur við Fiskeldissjóð vegna verkefnis við sameiningu útrása á Breiðdalsvík.
Frestað til næsta fundar.
-
7. Umsókn um lóð Árdalur 15
Mál 2309257 Allur ferill málsins
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefndar til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina við Árdal 15 á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
8. Kvennaverkfall 24.okt 2023
Mál 2310061 Allur ferill málsins
Framlögð gögn og upplýsingar vegna kvennaverkfalls sem boðað er 24. október n.k.
Því er beint til stjórnenda stofnana Fjarðabyggðar að huga að skipulagi starfseminnar 24. október nk. í samráði við starfsfólk. Haft verði að leiðarljósi að nauðsynlegri almannaþjónustu sé sinnt eins og mögulegt er og að öryggi og heilsu fólks sé ekki stefnt í hættu.
Ekki verður dregið af launum starfsfólks sem tekur þátt í kvennaverkfallinu að viðhöfðu samráði við sinn stjórnanda.
-
9. Ráðning slökkviliðsstjóra
Mál 2310089 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála varðandi ráðningu slökkviliðsstjóra.
Bæjarráð samþykkir að hafna öllum umsóknum um starfs slökkviliðsstjóra Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við starfandi aðstoðarslökkviliðsstjóra um að sinna starfi slökkviliðsstjóra til eins árs.
-
10. Vaktakerfi slökkviliðs
Mál 2310062 Allur ferill málsins
Framlögð gögn um útfærslur á vaktakerfi slökkviliðs, kosti og galla þeirra.
-
11. Umsagnar tillögu til þingsályktunar
Mál 2310078 Allur ferill málsins
Framlagt þingskjal vegna máls 315, þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 til 2028. Umsögn hefur þegar verið send um málið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skila umsögn.
-
12. Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogarinnar 2023
Mál 2310079 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fréttatilkynning um viðurkenningur Jafnvægisvogarinnar 2023 en Fjarðabyggð hlaut viðurkenningu ásamt ellefu sveitarfélögum, fimmtíuogogsex fyrirtækjum og tuttugu og tveim opinberum aðilum úr hópi þeirra 239 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið.
-
13. Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda
Mál 2310047 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Helgu Rakelar Aranardóttur f.h. Víkin fagra ehf. vegna fasteignagjalda.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara að skoða beiðnina með tilliti til þeirra reglna sem gilda um veitingu styrkja til greiðslu fasteignaskatts.
-
14. Íbúakönnun 2023
Mál 2310063 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa vegna þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í stöðluðum spurningavagni frá Gallup.
-
15. Starfshópur vegna ofanflóðavarna og skipulagsmála
Mál 2310083 Allur ferill málsins
Tilnefningar flokkanna vegna starfshóps sem yfirfer skipulög í Fjarðabyggð vegna ofanflóðahættu í samvinnu við Veðurstofu Íslands.
Bæjarráð samþykkir að starfshópinn skipi Jón Björn Hákonarson, Heimir Snær Gylfason og Stefán Þór Eysteinsson. Erindisbréf hópsins tekið fyrir á næsta fundi.
-
16. Aðalfundur HAUST 2023
Mál 2310090 Allur ferill málsins
Framlagt aðalfundarboð Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Aðalfundurinn fer fram miðvikudaginn 7. nóvember 2023. Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni Þór Eysteinssyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.
-
17. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2024 - 2027
Mál 2309074 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála vegna undirbúnings fyrir útboð almenningssamganga í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að almenningssamgöngur verði boðnar út á grundvelli minnisblaðsins.
-
18. Mannvirkja- og veitunefnd - 20
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 18.1 Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 20242305071
- 18.2 Gjaldskrá fráveitu 20242309152
- 18.3 Gjaldskrá hitaveitu 20242309155
- 18.4 Gjaldskrá vatnsveitu 20242309167
- 18.5 Gjaldskrá fjarvarmaveita 20242309099
- 18.6 Lúðvíkshúsið endurbyggt1811023
- 18.7 Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti2309231
- 18.8 Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými2310038
- 18.9 Framkvæmdasvið verkefni 20232303230
-
19. Hafnarstjórn - 302
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 19.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20242305073
- 19.2 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20242309151
- 19.3 Ný olíulögn á Bræðslubryggju, Eskifirði2310043
- 19.4 Hafnafundur 20232309225
- 19.5 Samstarfsfundir Hafnasambands Íslands og Fiskistofu2310041
- 19.6 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20232301196
-
20. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 13
Fundargerð stjórnar menningarstofu- og safnastofunar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 20.1 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 20242305067
- 20.2 Gjaldskrá bókasafna 20242309057
- 20.3 Gjaldskrá félagsheimila 20242309058
- 20.4 Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 20252309204
-
21. Íþrótta- og tómstundanefnd - 125
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 9. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 21.1 Sundlaug Fáskrúðsfjarðar
- 21.2 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
- 21.3 Gjaldskrá íþróttahúsa 2024
- 21.4 Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2024
- 21.5 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
- 21.6 Gjaldskrá sundlauga 2024
- 21.7 Gjaldskrá skíðasvæðis 2024
- 21.8 Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2024
- 21.9 Ungmennaráð - 7
-
22. Félagsmálanefnd - 170
Fundargerð félagsmálanefndar frá 11. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 22.1 Forvarnir og fræðsla 20232306007
- 22.2 Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta2309017
- 22.3 Erindi Jaspis ágúst 20232308173
- 22.4 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20242309168
- 22.5 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik2309170
- 22.6 Styrkumsókn - breyting á ferðaþjónustubíl2309182
- 22.7 Ráðstefna um fíknistefnu2310040
- 22.8 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20242305070
-
23. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 36
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 23.1 Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur2308005
- 23.2 Umsókn um lóð Árdalur 152309257
- 23.3 Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk2309240
- 23.4 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bakkagerði 202310030
- 23.5 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 252310028
- 23.6 Strandblakvöllur í Neskaupstað ný staðsetning2308071
- 23.7 Hoppubelgur Neskaupstað ný staðsetning2308072
- 23.8 Drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla2309196
- 23.9 Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti2309231
- 23.10 Ósk um undanþágu urðunargjalda og aðgangs að raftækjagámum2310004
- 23.11 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 20242305072
- 23.12 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20242309164
- 23.13 Gjaldskrá hunda- og kattahald 20242309156
- 23.14 Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs2309162
- 23.15 Tjaldsvæði 20232203199
-
24. Fræðslunefnd - 131
Fundargerð fræðslunefndar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 24.1 Gjaldskrá leikskóla 20242309160
- 24.2 Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 20242305048
- 24.3 Gjaldskrá frístundaheimila2309153
- 24.4 Gjaldskrá tónlistarskóla 20242309166
- 24.5 Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla2309157
- 24.6 Starfshópur fræðslumála 20232309181
- 24.7 Verðfyrirspurn vegna íþróttaakstur Eskifjarðarskóla í Íþróttamistöð Reyðarfjarðar2306090
-
25. Ungmennaráð - 7
Fundargerð ungmennaráðs frá 21. september tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 25.1 Fundaáætlun ungmennaráðs haust 20232309190
- 25.2 Jafnréttisstefna 2023-20262305145
- 25.3 Erindisbréf ungmennaráðs2301116