NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 37
20. október 2023, kl. 14:30 til 16:00, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 818 liður 23
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 10. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 361 liður 3
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
Mál 2305072 Allur ferill málsins
Framhald umræðu um fjárhagsáætlun málaflokka umhverfis- og skipulagsnefndar í fjárhagsáætlun ársins 2024. Lögð fram tillaga um áætlun fyrir hvern lið nefndarinnar í málaflokknum eins og hún fer fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til fyrri umræðu að öðru óbreyttu. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að koma með uppfærðar tölur sem sýnir rekstrarniðurstöðu sem er af árið 2023.
-
2. Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024
Mál 2310115 Allur ferill málsins
Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
-
3. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Mál 2309162 Allur ferill málsins
Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að breyta gjaldskrá í samræmi við umræður á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024
Mál 2309156 Allur ferill málsins
Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir óbreytta gjaldskrá og tekur gjaldskrá ekki hækkun fyrir árið 2024 þar sem að rekstrarniðurstaða er jákvæð við óbreytta gjaldskrá.