NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 38
7. nóvember 2023, kl. 14:30 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Heimir Snær Gylfason, aðalmaður
- Jóhanna Guðný Halldórsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 822 liður 19
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 363 liður 5
Fundargerð umhverfis- og skipulagnefndar nr. 38 frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Jón Björn Hákonarson og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 38 frá 7. nóvember er staðfest með 9 greiddum atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Mál 2309162 Allur ferill málsins
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar að nýju frá bæjarráði gjaldskrá fyrir úrgangsmál. Bæjarráð mun við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu styðjast við fyrri samþykkt bæjarráðs um breytingu gjaldskrár og vísar gjaldskránni til frekari úrvinnslu í umhverfis- og skipulagsnefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá 2024 með breytingu á fjölda klippa á klippikorti, bætt við flokki fyrir fyrirtæki á úrvinnsluefni og vísar gjaldskrá í bæjarráð.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
Mál 2305072 Allur ferill málsins
Framhaldsumræða um fjárhagsáætlun ársins 2024 frá síðasta fundi. Lagt fram yfirlit yfir tillögu að fjárhagsáætlun 2024 sem þegar hefur verið lögð fram í bæjarstjórn til fyrri umræðua í þeim málaflokkum sem nefndin fer með umsjón á, þ.e. málaflokkum 08 Heilbrigðismál og 09 Skipulagsmál, deildirnar 11310 Fólkvangar og 13210 Landbúnaður auk málaflokks 63 Sorpmiðstöð. Jafnframt er lögð fram tillagan að breytingum á fjárhagsáætlun málaflokks 63 Soprmiðstöðvar sem taka miða af tillögu að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs á árinu 2024 auk tillögu að breytingu á fjárhaghagsáætlun um málaflokk 08 Hreinslætismál sem tekur mið af óbreyttri gjaldskrá milli ára. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun nefndarinnar 08, 09, 89, 11-310, 13-210 og í málaflokki 63 sorpmiðstöð fyrir árið 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar starfs- og fjárhagsáætlun 2024 í bæjarráð.
-
3. Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024
Mál 2310115 Allur ferill málsins
Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024 til samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024 og vísar erindinu í bæjarráð.
-
4. Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði
Mál 2310164 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði fyrir 5 íbúða raðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutun og vísar erindinu í bæjarráð.
-
5. Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2310156 Allur ferill málsins
Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 5 íbúða raðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
6. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2302173 Allur ferill málsins
Hljóðmön við Hafnargötu 36, krafa nágranna um afturköllun byggingarheimildar og svar byggingarfulltrúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara erindinu.
-
7. Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk
Mál 2309240 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Hafnargata 27, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á lóðinni og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
-
8. Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva
Mál 2310034 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfis- og skiðualgsnefndar erindi Instavolt um uppsetningu Hraðhlesðlustöðva í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd fagnar erindi Instavolt um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð. Nefndin gerir athugasemd við staðsetningu á Breiðdalsvík þar sem um er að ræða lausa byggingarlóð. Einnig telur nefndin að hægt sé að finna heppilegri staðsetningu á Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu til umsagnar íbúasamtaka sveitarfélagssins.
-
9. Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
Mál 2310174 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn um framkvæmdaleyfi út frá staðsetningu strengs í gegn um fyrirhugað íbúðarsvæði á Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vera í sambandi við Rarik og óska eftir heppilegri staðsetningu í samræmi við umræður á fundinum. Málið verður lagt fyrir að nýju.
-
10. Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Búðarárfoss
Mál 2310097 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir áfangastaðinn Búðarárfoss. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
11. Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Streitishvarf
Mál 2310113 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir áfangastaðinn Streitishvarf. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
12. Framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil
Mál 2310186 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
13. Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað
Mál 2311028 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Nefndin áréttar að enginn kostnaður við framkvæmdina né viðhald hennar verði kostað af sveitarfélaginu.
-
14. Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði
Mál 2311012 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
15. Framkvæmdaleyfi endurnýjun á fráveitulögnum
Mál 2311049 Allur ferill málsins
Umsókn Fjarðabyggðar um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun á fráveitulögnum Tröllaveg, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hafa verið skilað.
-
16. 740 Svarthamrar - Óleyfisbyggingar
Mál 1908047 Allur ferill málsins
Að Svarthömrum, Neskaupstað stendur gamall sumarbústaður án samþykkis byggingarfulltrúa. Bréf vegna þessa, þar sem óskað er eftir að sótt verði um leyfi fyrir sumarbústaðnum eða hann tekinn niður, voru send 30.8 og 2.10.2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir eiganda á að sækja um tilskilin leyfi fyrir 30. nóvember. Ef ekki verður brugðist við því samþykkir umhverfis- og skipulagsnefnd að leggja dagsektir, 20.000 kr. pr. dag, á eigendur Svarthamra frá og með 1. desember í samræmi við 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
-
17. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25
Mál 2310028 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamningi og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.
-
18. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 2
Mál 2311013 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 2. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðaleigusamning.
-
19. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2310124 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir 20 feta gám í Seljateigshjáleigu, við heimkeyrslu, neðan við Stóramel til eins árs með möguleika á framlengingu.
-
20. Niðurfelling gjalda á móttökustöð
Mál 2310135 Allur ferill málsins
Ósk um niðurfellingu kostnaðar á gjöldum á móttökustöð vegna ónýts byggingarefnis eftir snjóflóð Neskst. síðastliðinn vetur. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir niðurfellingu kostnaðar á gjöldum á móttökustöð vegna ónýts byggingarefnis eftir snjóflóð Neskst. síðastliðinn vetur. Nefndin hvetur umsækjanda til að flokka byggingarefni eins og kostur er.
-
21. Til umsagnar 314. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Mál 2310118 Allur ferill málsins
Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um tímabundnar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf og skipulagi, 314. mál. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
-
22. Umsókn um lóð Búðarmelur 5
Mál 2311046 Allur ferill málsins
Umsókn Búðinga ehf um lóð að Búðarmel 5 fyrir 3 íbúðaraðhús. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina. Lóðin er í dag skipulögð fyrir parhús en skv. 44.gr, 3. mgr skipulagslaga er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Umsækjandi er nú þegar með lóð númer 7 og kemur einnig til með að reisa þar 3 íbúða raðhús. Hvorki er lóðin stækkuð eða byggingarmagn hennar aukið. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í bæjarráð.
-
23. Umsókn um stöðuleyfi
Mál 2311056 Allur ferill málsins
Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám uppá á svæði á Reyðarfirði, n.t.t. á haganum norðvestan við æfingasvæði V.Í.F. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að fokhætta sé af gámnum. Stöðuleyfi er samþykkt með fyrirvara um að gámurinn verði lagfærður innan eins mánaðar eða 7.12.2023 eða stöðuleyfi fellur úr gildi og gámurinn fjarlægður samstundis á kostnað eiganda.
-
24. Búðarmelur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Mál 2311061 Allur ferill málsins
Umsókn Búðinga ehf. um byggingarleyfi að Búðarmel 5, Reyðarfirði fyrir 3 íbúða raðhúsi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
25. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Mál 2301174 Allur ferill málsins
Fundargerð 175. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.