Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUmhverfis- og skipulagsnefnd

Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 39

21. nóvember 2023, kl. 14:30 til 16:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varaformaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Heimir Snær Gylfason, aðalmaður

Starfsmenn

  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 824 liður 17

    Fundargerð 39. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. nóvember lögð fram til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 364 liður 6

    Fundargerð 39. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tók: Þuríður Lillý Sigurðardóttir

    Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 39 er staðfest með 9 greiddum atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 183 liður 11

    Fundargerð lögð fram.

  • Bæjarstjórn, fundur 66 liður 13

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Íris Valsdóttir, Helga JónsdóttirStaðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Opnunartími Móttökustöðva

    Mál 2311135 Allur ferill málsins

    Tillögur að nýjum opnunartíma mótökustöðva. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillögu 2 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

  2. 2. Úrgangsmál 2023 - kynningaefni og fleira

    Mál 2302021 Allur ferill málsins

    Umræða um útfærslu á flokkunarílátum við heimili, t.d. 4 tunnu eða körfu. Umhverfis- og skipulagsnefnd stendur við ákvörðun sína um að leita allra leiða til að bæta ekki við fjórðu tunnunni. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fyrir minnisblað um útfærslu á fjórða flokkunaríláti við heimili í Fjarðabyggð.

  3. 3. Umsókn um lóð Blómsturvellir 31 (29)

    Mál 2311068 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Blómsturvellir 31. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar úthlutun á lóð við Blómsturvelli 31.

  4. 4. Umsókn um lóð Vallargerði 11-13

    Mál 2311067 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Vallargerði 11-13. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.

  5. 5. Umsókn um lóð Nesgata 34

    Mál 2311066 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Nesgata 34. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir lóðarúthlutunina og vísar erindinu í bæjarráð.

  6. 6. Athugasemd v. gangbrautar í Neskaupstað

    Mál 2310191 Allur ferill málsins

    Ungmennaráð vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu að nýrri staðsetningu gangbrautar við Nesgötu 38, Neskaupstað / Heimavist VA. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í að færa gangbraut á öruggari stað. Nefnin leggur til að gangbrautin verði færð ofar, með því er hægt að nýta núverandi göngustíg. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að útfæra gangbraut og leggja nýja tillögu fyrir ungmennaráð.

  7. 7. Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru

    Mál 2311025 Allur ferill málsins

    Ósk um kaup á hundahóteli Kollaleiru. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu í bæjarráð.

  8. 8. Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2302173 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf íbúa við Búðagötu 24 sem varðar byggingu hljóðmannar Loðnuvinnslunnar að Hafnargötu 36. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafði til hliðsjónar aðaluppdrætti þegar hún afgreiddi byggingarleyfi. Nefndin var meðvituð um raunverulega hæð á hljóðmöninni í samræmi við aðaluppdrátt.

    Fyrir liggja mælingar frá Eflu dagsett 30.10.2023 og Mannvit 10.11.2023 sem staðfesta rétta hæð í samræmi við aðaluppdrátt.

  9. 9. Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð

    Mál 2310174 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi að þeim forsemdum gefnum að helgunarsvæði sem nú þegar er til staðar við Stuðlalínu 2 stækki ekki og þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur Rarik til að gera göngustíg samhliða framkvæmdinni í samráði við skipulagsfulltrúa.