Bæjarráð, fundur 183
2. febrúar 2010, kl. 15:30 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 5
Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Tillaga að breytingu á gjaldskrá bókasafna 2010
Mál 1001089 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um breytingu á gjaldskrá bókasafnanna í Fjarðabyggð. Um er að ræða aðlögun að gjaldskrá annarra safna í landinu og breyting snýr aðallega að lækkun á sektum.
-
2. Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austurlands 2009
Mál 0911095 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglum um bókasafn Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir ánægju með drög að reglum um Bókasafn Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur og samþykkir þau.
-
3. Vallarumsjón Norðfjarðarvallar
Mál 1002002 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu æskulýðs- og íþróttafulltrúi og mannvirkjastjóri. Framlagt bréf stjórnar knattspyrnudeildar Þróttar frá 26.janúar þar sem líst er áhyggjum af umhirðu og umgengni á Norðfjarðarvelli.
-
4. Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjarðabyggð
Mál 1001113 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu æskulýðs- og íþróttafulltrúi og mannvirkjastjóri. Framlagt minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa frá 29.janúar og drög að samningi við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar vegna umhirðu og umsjónar með hluta knattspyrnuvalla í Fjarðabyggð. Rætt var um framkvæmd samningsins. Bæjarráð felur æskulýðs- og íþróttafulltrúa, fræðslustjóra og mannvirkjastjóra að vinna verklagsreglur vegna umsjónar knattspyrnu- og sparkvalla og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
5. Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði á árinu 2009
Mál 1001103 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
6. Staða mála á félagsþjónustusviði í janúar 2010
Mál 1001094 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat Sigrún Birna Björnsdóttir formaður félagsmálanefndar. Frestað til næsta fundar.
-
7. Golfklúbbur Eskifjarðar - Golfklúbburinn Gríma
Mál 1001001 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðuna í golfvallarmálum á Eskifirði.
-
8. Starfsmannamál
Mál 1001118 Allur ferill málsins
Sigrún Birna Björnsdóttir formaður félagsmálanefndar sat hluta þessa liðar fundarins. Meirihluti bæjarráðs samþykkir að fela bæjarstýru að ganga til samninga við Sigrúnu Þórarinsdóttur um ráðningu í starf félagsmálastjóra. Valdimar O. Hermannsson situr hjá. Valdimar telur að auglýsa hefði átt stöðu félagsmálastjóra. Þessi afstaða beinist á engan hátt gegn persónu Sigrúnar heldur hefur fyrst og fremst að gera með þá meginafstöðu að auglýsa eigi öll störf sviðsstjóra. Bæjarráð samþykkir jafnframt að fela bæjarstýru að ganga til samninga við Björgvin Valdimarsson um ráðningu í starf forstöðumanns fjármála.
-
9. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 32
Fundargerð lögð fram.
-
10. Fræðslunefnd - 26
Fundargerð lögð fram.
-
11. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 39
Fundargerð lögð fram.
-
12. Mannvirkjanefnd - 29
Fundargerð lögð fram.