Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 182

26. janúar 2010, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Læknisþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu Hannes Sigmarsson læknir og Guðrún Helga Jónsdóttir. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.

  2. 2. Staða mála á félagsþjónustusviði í janúar 2010

    Mál 1001094 Allur ferill málsins

    Framlagðar greinargerðir starfandi félagsmálastjóra frá 25.janúar um fyrirkomulag bakvakta og stöðuna á félagsþjónustusviði. Bæjarráð heimilar ráðningu Sigríðar Ingu Björnsdóttur í starf félagsráðgjafa frá 1.febrúar.

  3. 3. Beiðni um flutning lögheimilis að Stuðlum

    Mál 1001074 Allur ferill málsins

    Bréf Péturs Valdimarssonar frá 18.janúar vegna skógræktar í landi Stuðla en Pétur óskar eftir að fá að skrá lögheimili sitt að Stuðlum.  Það er ekki á valdi bæjarráðs að taka afstöðu til beiðni um skráningu lögheimilis að Stuðlum sbr. 1.gr.laga um lögheimili nr.21/1990.

  4. 4. Íbúðir í eigu Íbúðalánasjóðs

    Mál 0912066 Allur ferill málsins

    Beiðni Íbúðalánasjóðs um afslætti af fasteignagjöldum. Í minnisblaði forstöðukonu fjármála frá 26.janúar kemur fram að hvergi í innheimtuferlum bæjarins er gert ráð fyrir staðgreiðsluafsláttum og að ekki eru fordæmi fyrir að afsláttur hafi verið veittur af fasteignagjöldum vegna eigna sem standa auðar  hluta úr ári.  Á grundvelli minnisblaðsins telur bæjarráð sér ekki fært að koma til móts við beiðni Íbúðalánasjóðs um afslætti af fasteignagjöldum.

  5. 5. Beiðni um afslátt á fasteignagjöldum Strandgötu 89 Eskifirði

    Mál 1001002 Allur ferill málsins

    Beiðni Helgu Þóreyjar Björnsdóttur f.h. eiganda fasteignarinnar að Strandgötu 89 Eskifirði. Á grundvelli framlagðs minnisblaðs forstöðukonu fjármála frá 26.janúar er bæjarráð sammála um að eigandi Strandgötu 89 njóti afsláttar af fasteignagjöldum samkvæmt reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.

  6. 6. Styrkir til hjálparstarfs á Haítí

    Mál 1001083 Allur ferill málsins

    Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á styrkjum sveitarfélaga til hjálparstarfs á Haítí.  Bæjarráð samþykkir að styrkja hjálparstarf á Haítí um kr. 200.000 af liðnum 21-69- óviss útgjöld og biður Rauða Krossi Íslands fyrir ráðstöfun fjárins.

  7. 7. Sorphirða og Sorpförgun Fjarðabyggð - útboðsgögn

    Mál 1001039 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 22.janúar vegna frestunar á opnun tilboða í sorphirðu og sorpförgun í Fjarðabyggð.  Á opnunarfundi 21.janúar var ákveðið að fresta opnun tilboða þar sem breyta þarf atriðum í verklýsingu er varða móttökustöðvar, söfnunarstöðvar og urðunarstað.

  8. 8. Svar við erindi varðandi stjórn heilsugæslu í Fjarðabyggð

    Mál 1001099 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf heilbrigðisráðuneytisins frá 20.janúar við fyrirspurn.