Læknisþjónusta í Fjarðabyggð
Mál 0903114 Fyrst á dagskrá 24. mars 2009, síðast 1. mars 2012. 30 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í hnotskurn
Bæjarráð Fjarðabyggðar fjallaði frá mars 2009 til mars 2012 um mönnun og stöðu heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) í sveitarfélaginu, meðal annars á fundum með stjórnendum HSA og með áskorunum til heilbrigðisráðherra1416. Síðasta skráða skrefið er að bæjarráð tók undir tillögu forstjóra HSA um ráðstefnu um heilbrigðismál á Austurlandi og fól bæjarstjóra að fylgja henni eftir29.
Staðan
Bæjarráð fól bæjarstjóra að fylgja eftir tillögu um ráðstefnu um stefnu og framtíð heilbrigðismála á Austurlandi í samstarfi við forstjóra HSA, og bæjarstjórn afgreiddi þá fundargerð 1. mars 20122930.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2009
Bæjarráð, fundur 142 liður 1
Fulltrúar HSA greindu frá því að mönnun læknisstarfa væri tryggð fram á haust, rætt var um skort á hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum og bæjarráð lagði áherslu á að rannsókn á máli yfirlæknis heilsugæslunnar yrði hraðað.
Endursögn gervigreindar
Framlagðir minnispunktar frá Emil Thorarensen til bæjarráðs vegna málefna heilsugæslu Fjarðabyggðar. Þennan lið fundarins sátu fulltrúar HSA þeir Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri lækninga og Emil Sigurjónsson forstöðumaður mannauðsmála. Fram kom í máli Stefáns og Emils að búið er að tryggja mönnun læknisstarfa í Fjarðabyggð fram á haust. Rætt um skólahjúkrun og manneklu vegna ráðningar í störf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra þrátt fyrir reglulegar auglýsingar. Bæjarráð leggur áherslu á hve mikilvægt er að rannsókn á máli yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar verði hraðað sem kostur er.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
Bæjarráð, fundur 147 liður 5
Forstjóri og framkvæmdastjórar HSA ásamt lögfræðingi heilbrigðisráðuneytisins fóru yfir stöðu mála með bæjarráði.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sátu frá Heilbrigðisstofnun Austurlands þau Einar Rafn Haraldsson forstjóri, Stefán Þórarinsson framkvæmdastjóri lækninga, Lilja Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur heilbrigðisráðuneytisins. Farið var yfir stöðu mála.
-
Bæjarstjórn, fundur 58 liður 4.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 160 liður 13
Bæjarráð samþykkti áskorun til heilbrigðisráðherra um að láta fara fram hlutlausa úttekt á starfsemi HSA, þar sem fram kom að bæjarráð teldi stöðu heilbrigðisþjónustunnar óásættanlega og að skortur væri á læknum með fasta búsetu og á hjúkrunarfræðingum.
Endursögn gervigreindar
&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;DIV&gt;Áskorun til heilbrigðisráðherra vegna heilbrigðisþjónustu í Fjarðabyggð. &lt;/DIV&gt;&lt;DIV&gt;&lt;P style="MARGIN: 0in 0in 10pt" class=MsoNormal&gt;&lt;FONT size=3 face="Times New Roman"&gt;"Staða heilbrigðisþjónustunnar í Fjarðabyggð er algjörlega óásættanleg.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Nauðsynlegt er að grafast fyrir um ástæður þess að ekki hafa fengist læknar til starfa í Fjarðabyggð, sunnan Oddsskarðs, með fasta búsetu í sveitarfélaginu.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Skortur á hjúkrunarfræðingum er líka viðvarandi vandamál.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Heilsugæsla er ein af grunnstoðum í þjónustu hvers sveitarfélags og er óviðunandi að henni sé sinnt af afleysingarfólki sem hefur stutta viðveru í hvert sinn.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Slíkt fyrirkomulag getur aldrei orðið til þess að skapa það traust og trúnað sem þarf að vera milli heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga. Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á heilbrigðisráðherra að láta þegar í stað fara fram hlutlausa úttekt á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Austurlands.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Fenginn verði sjálfsstætt starfandi úttektaraðili til að ræða við starfsmenn og stjórnendur um starfsumhverfi sitt.&lt;SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt;&nbsp; &lt;/SPAN&gt;Á grundvelli úttektarinnar verði gripið til þeirra aðgerða sem óhjákvæmilegar eru til að tryggja viðunandi þjónustu heilsugæslunnar í sveitarfélaginu"&lt;/FONT&gt;&lt;/P&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;&lt;/DIV&gt;
-
Bæjarstjórn, fundur 61 liður 1.13
Fundargerðin „Bæjarráð - 160“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 169 liður 9
Lögð voru fram bréf heilbrigðisráðuneytis og landlæknisembættisins, og kom fram í bréfi ráðuneytisins að það myndi láta gera hlutlausa úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð.
Endursögn gervigreindar
Framlögð bréf heilbrigðisráðuneytis frá 28.október og landlæknisembættisins frá 26.október vegna heilbrigðisþjónustu í Fjarðabyggð. Í bréfi heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið mun láta fara fram hlutlausa úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð.
-
Bæjarstjórn, fundur 63 liður 4.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 169“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 170 liður 8
Rætt var um læknisþjónustu og ákveðið að boða forsvarsmenn íbúafundar um heilsugæsluna á næsta fund.
Endursögn gervigreindar
Rætt um læknisþjónustu í Fjarðabyggð. Forsvarsmenn íbúafundar um málefni heilsugæslunnar verða boðaðir á næsta fund.
-
Bæjarráð, fundur 171 liður 9
Forsvarsmenn íbúafundar frá 4. nóvember kynntu ályktun fundarins, þar sem skorað var á bæjarstjórn að hefja viðræður við heilbrigðisyfirvöld um að Fjarðabyggð tæki við stjórn heilsugæslunnar.
Endursögn gervigreindar
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Þennan lið fundarins sátu Björn Grétar Sveinsson og Grétar Rögnvarsson forsvarsmenn íbúafundar sem haldinn var í Kirkju- og menningarmiðstöðinni 4.nóvember. Rætt um framlagða ályktun íbúafundarins þar sem samþykkt var að skora á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að hefja nú þegar viðræður við heilbrigðisyfirvöld um að Fjarðabyggð taki við stjórn heilsugæslu í Fjarðabyggð (H.S.F) með samningum við viðkomandi yfirvöld.
-
Bæjarráð, fundur 173 liður 1
Stefán Þórarinsson yfirlæknir hjá HSA sat fundinn og var rætt um málefni heilsugæslunnar.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sat Stefán Þórarinsson yfirlæknir hjá HSA. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.
-
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 1.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 170“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 171“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 64 liður 4.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 173“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2010
Bæjarráð, fundur 179 liður 11
Lagt var fram bréf heilbrigðisráðuneytisins til HSA vegna skýrslu tveggja sálfræðinga um úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð og tillögur þeirra.
Endursögn gervigreindar
Framlagt bréf heilbrigðisráðuneytisins til Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 21.desember vegna skýrslu sálfræðinganna Einars Gylfa Jónssonar og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur um úttekt á starfsemi HSA í Fjarðabyggð og tillögur þeirra.
-
Bæjarráð, fundur 180 liður 1
Fulltrúar Hollvinasamtaka heilsugæslunnar í Fjarðabyggð sátu fundinn og kom fram að fundur með fulltrúum HSA væri fyrirhugaður.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar Hollvinasamtaka heilsugæslunnar í Fjarðabyggð þeir Björn Grétar Sveinsson og Gunnar Hjaltason. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð. Fyrir liggur að fundur verður með fulltrúum HSA á næstunni.
-
Bæjarráð, fundur 181 liður 7
Fulltrúar HSA kynntu nýtt skipurit þar sem starfsstöðvar í Fjarðabyggð heyra rekstrarlega undir framkvæmdastjóra hjúkrunar, bæjarráð fagnaði því að dagleg stjórnun færðist til heimamanna og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins bókaði athugasemd við ummæli yfirlæknis HSA í fjölmiðlum.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sátu fulltrúar HSA þau Einar Rafn Haraldsson forstjóri, Emil Sigurjónsson mannauðsstjóri, Lilja Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Valdimar O. Hermannsson rekstrarstjóri. Farið var yfir stöðu mála í heilsugæslu Fjarðabyggðar, mönnun heilsugæslunnar o.fl. Einnig var rætt um breytingar á skipuriti HSA en samkvæmt þeim eru yfirstjórnendur HSA forstjóri, framkvæmdastjóri hjúkrunar og framkvæmdastjóri lækninga. Þessir aðilar mynda framkvæmdastjórn HSA. Heilbrigðisstofnun Austurlands skiptist í tvö rekstrarsvæði. Starfsstöðvar HSA í Sveitarfélaginu Fjarðabyggð, ásamt FSN, heyra rekstrarlega undir framkvæmdastjóra hjúkrunar Lilju Aðalsteinsdóttur. Lilja ber því ábyrgð á að rekstur þeirra sé í samræmi við rekstraráætlun stofnunarinnar, ásamt því að skipuleggja þjónustu við íbúa. Valdimar O. Hermannson vinnur með Lilju sem rekstrarlegur ráðgjafi og stjórnandi auk þess að veita forstöðu innkaupasviði HSA ásamt skipulagi ræstinga, rekstri þvottahúsa og mötuneyta stofnunarinnar. Lilja yfirtekur þann rekstrarlega þátt sem áður var í höndum lækningaforstjóra. Valdimar yfirtekur þau störf sem Emil Sigurjónsson fór með áður fyrir Heilsugæsluna í Fjarðabyggð, nema að Emil annast fyrst um sinn ráðningar lækna til heilsugæslunnar og málefni því tengd auk þess að fara með mannauðsmál HSA. Djúpavogs- , Seyðisfjarðar- , Vopnafjarðar- og Egilsstaðalæknishéruð heyra rekstrarlega undir framkvæmdastjóra lækninga Stefán Þórarinsson. Stefán ber því ábyrgð á að rekstur þeirra sé í samræmi við rekstraráætlun stofnunarinnar ásamt því að skipuleggja þjónustu við íbúa. Þórhallur Harðarson vinnur með honum sem rekstrarlegur ráðgjafi og stjórnandi auk þess að veita skrifstofu forstjóra forstöðu. Svava Sveinbjörnsdóttir er forstöðumaður fjármálasviðs og Kjartan Einarsson er forstöðumaður eigna- og tæknisviðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa alla bókunina (138 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar að í nýju skipulagi HSA færist dagleg stjórnun lækna- og hjúkrunarmála í hendur á heimamönnum. Bæjarráð hvetur nýja stjórnendur heilsugæslunnar í Fjarðabyggð að leggja allt kapp á að sem allra fyrst verði fundin varanleg lausn á mönnunarmálum í læknis- og hjúkrunarfræðingsstöður í heilsugæslu Fjarðabyggðar og haldi íbúa- og hollvinasamtökum á svæðinu vel upplýstum. Það er meginskylda allra hagsmunaaðila að snúa bökum saman í þessum efnum, leggja til hliðar fyrri skærur og horfa til framtíðar með hagsmuni, velferð og öryggi íbúa Fjarðabyggðar að leiðarljósi og leysa málin innan frá frekar en vera með stóryrði í fjölmiðlum.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði harmar ummæli yfirlæknis HSA þar sem hann í fjölmiðlum kennir íbúum Fjarðabyggðar um ástandið í læknamálum í Heilsugæslu Fjarðabyggðar. Eru ummælin ekki til þess fallin að lægja öldur og ná sáttum um stöðu heilbrigðismála í Fjarðabyggð.
-
Bæjarráð, fundur 182 liður 1
Rætt var um málefni heilsugæslunnar við gesti sem sátu fundinn, þar á meðal lækni.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sátu Hannes Sigmarsson læknir og Guðrún Helga Jónsdóttir. Rætt um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð.
-
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 1.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 179“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 180“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 3.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 181“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 66 liður 4.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 182“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 191 liður 16
Málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð
Bæjarráð samþykkti samhljóða áskorun til heilbrigðisráðherra um að leita leiða til að starfskraftar heilsugæslulæknis á Eskifirði nýttust áfram íbúum og að starfsmannamál yrðu leyst eftir leiðum laga og kjarasamninga.
Endursögn gervigreindar
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á heilbrigðisráðherra að leita leiða til þess að starfskraftar Hannesar Sigmarssonar heilsugæslulæknis megi áfram nýtast íbúum Fjarðabyggðar. Heilsugæsla á Eskifirði var með ágætum í hans tíð og íbúar hafa verið sáttir við hana. Ítrekaðar rannsóknir hafa ekki leitt í ljós tilefni til ákæru vegna starfa Hannesar í heilsugæslu Fjarðabyggðar. Bæjarráð telur að starfsmannamál beri að leysa eftir þeim leiðum sem lög og kjarasamningar gera ráð fyrir. Minnt er á að góð heilsugæsla er einn grundvallarþátturinn í velferð og öryggiskennd íbúa.Samþykkt samhljóða í bæjarráði Fjarðabyggðar 23. mars 2010 Guðmundur Þorgrímsson - Díana Mjöll Sveinsdóttir - Jens Garðar Helgason
-
Bæjarráð, fundur 202 liður 6
Lögð var fram samantekt um feril málsins, bæjarráð bókaði athugasemd við ummæli forstjóra HSA í fjölmiðlum og fram kom að heilbrigðisráðuneytið hefði tilkynnt að það hefði ekki afskipti af ráðningarmálum HSA.
Endursögn gervigreindar
Málefni heilsugæslunnar á Eskifirði. Lögð fram samantekt yfir feril málsins í bæjarráði og bæjarstjórn frá því í mars 2009. Enn á ný verða ummæli forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands um málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð til að vekja undrun og ólgu í byggðarlaginu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu ber forstjóri undir yfirstjórn ráðherra ábyrgð á þeirri þjónustu sem stofnunin veitir og ráðningu starfsliðs. Markmiðið er að íbúar eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem tök eru á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarráð hefur fjallað um vandann í mönnun heilsugæslunnar á fjölmörgum fundum m.a. með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Það hefur sent áskoranir og ályktanir til heilbrigðisráðherra sem fer með yfirstjórn þessara mála og minnt á hversu mikilvægur þáttur heilsugæslan er öryggiskennd og velferð íbúa. Á fundi 19. janúar sl. þar sem kynnt var nýtt skipulag HSA bókaði bæjarráð það sem meginskyldu allra hagsmunaaðila að snúa bökum saman í þessum efnum, leggja til hliðar fyrri skærur og horfa til framtíðar með hagsmuni, velferð og öryggi íbúa Fjarðabyggðar að leiðarljósi og leysa málin innan frá frekar en vera með stóryrði í fjölmiðlum. Ummæli forstjóra HSA í fréttum Ríkissjónvarpsins 30. júní sl. stinga mjög í stúf við þau tilmæli.Heilbrigðisráðuneytið hefur tilkynnt Fjarðabyggð að ráðuneytið hafi ekki afskipti af ráðningarmálum hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands og þau séu í höndum framkvæmdastjórnar stofnunarinnar. Bæjarráð Fjarðabyggðar vill enn og aftur minna á hversu mikilvægt það er fyrir íbúa að tryggja varanlega og góða mönnun í heilbrigðisþjónustunni í sátt við samfélagið.
-
Bæjarstjórn, fundur 75 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 202“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2011
Bæjarráð, fundur 270 liður 6
Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Einar Rafn Haraldsson forstjóri HSA sat fundinn og var rætt um fjárframlög til HSA á komandi ári og hugsanleg áhrif þeirra.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið fundarins sat Einar Rafn Haraldsson forstjóri HSA. Rætt um fjárframlög til Heilbrigðisstofnunar Austurlands á komandi ári og hugsanleg áhrif þeirra.
-
Bæjarstjórn, fundur 104 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 270“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands
-
2012
Bæjarráð, fundur 280 liður 15
Bæjarráð krafðist þess að velferðarráðuneytið afhenti skýrslu um framtíðarsýn HSA, vísaði til fjölmiðlaumfjöllunar um trúnaðarbrest og óskaði eftir fundi með velferðarráðherra.
Endursögn gervigreindar
Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands og heilsugæsluþjónustu í Fjarðabyggð tekin til umræðu.Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að Velferðarráðuneytið láti þegar í stað af hendi skýrslu sem ráðuneytið lét vinna að beiðni HSA um framtíðarsýn fyrir stofnunina til að hægt sé að kynna sér efni hennar. Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla um skýrsluna á síðustu dögum virðist vera um algeran trúnaðarbrest milli HSA og Fjarðabyggðar að ræða en sveitarfélagið hefur staðið þétt við stofnunina síðustu ár og unnið að fullum trúnaði með henni. Því skýtur það skökku við að hluti stjórnar HSA sé vinnandi leynt og ljóst gegn hagsmunum heilbrigðisþjónustu í Fjarðabyggð. Þá vill bæjarráð Fjarðabyggðar einnig fá fund með velferðarráðherra til að ræða framtíð samskipta við HSA. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Einnig óskar bæjarráð eftir við bæjarstjórn að álykta um frekari form samskipta við HSA reynist efni skýrslunnar á þá lund sem fjallað hefur verið um.
-
Bæjarstjórn, fundur 108 liður 2.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 280“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 282 liður 5
Forstjóri HSA lét bóka að hann væri ósáttur við að vera sakaður um trúnaðarbrest og lagði til ráðstefnu um heilbrigðismál á Austurlandi, sem bæjarráð tók undir.
Endursögn gervigreindar
Á fundinn eru mættir frá Heilbrigðisstofunar Austurlands Einar Rafn Haraldsson forstjóri ásamt Emil Sigurjónssyni mannauðsstjóra.Bókast eftir Einari að hann sé ósáttur við að hann sé sakaður um trúnaðarbrest.Farið yfir málefnið í heild sinni. Lögð fram tillaga af Einari Rafni Haraldssyni um ráðstefnu á Austurlandi þar sem rædd væri stefna og framtíð í heilbrigðismálum fjórðungsins.Bæjarráð tekur undir tillöguna og felur bæjarstjóra að fylgja henni eftir í samstarfi við forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 109 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 282“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.