Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 191

23. mars 2010, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Stúkuframkvæmd við Eskifjarðavöll - Leyfiskerfi

    Mál 1003091 Allur ferill málsins

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagðir tölvupóstar framkvæmdastjóra KSÍ og mannvirkjastjóra er varða leyfisumsókn Fjarðabyggðar vegna Eskifjarðarvallar. Mannvirkjanefnd fór yfir málið á fundi 22.mars og lagði til að Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar myndi sækja um styrk í mannvirkjasjóð KSÍ til stúkuframkvæmda og uppsetningu á aðstöðuhúsi. Komi jákvæð viðbrögð frá KSÍ mun mannvirkjanefnd taka þriggja ára áætlun til endurskoðunar. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að ræða við KSÍ um notkun Eskifjarðarvallar fram til ársins 2012 og að Fjarðabyggðarhöllin verði heimavöllur KFF frá 2012 og þar til að nauðsynlegum mannvirkjaframkvæmdum við Eskifjarðarvöll er lokið. <?xml:namespace prefix = o />

  2. 2. Rökstuðningur vegna ráðninga í tvö störf hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar

    Mál 1003084 Allur ferill málsins

    Minnisblað slökkviliðsstjóra frá 17.mars lagt fram.  Bæjarráð óskar eftir að slökkviliðsstjóri og mannauðsstjóri komi inn á næsta fund bæjarráðs.

  3. 3. Samþykkt aðalfundar félags sauðfjárbænda á Suðurfjörðum 2010

    Mál 1003086 Allur ferill málsins

    Samþykkt aðalfundar félags sauðfjárbænda á Suðurfjörðum frá 13.mars þar sem fram koma áhyggjur af vaxandi fjölda refa á suðurfjörðum Fjarðabyggðar.  Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Úrsögn úr undirkjörstjórn í Neskaupstað

    Mál 1003083 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Auðar Hauksdóttur þar sem hún segir sig úr undirkjörstjórn í Neskaupstað.

  5. 5. Fyrirspurnir frá Sigfúsi Vilhjálmssyni til bæjarráðs

    Mál 1003080 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 17.mars vegna fyrirspurnar Sigfúsar Vilhjálmssonar og bréfs samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins frá 9.mars.

  6. 6. Atvinnuleysi á á Austurlandi í febrúar 2010

    Mál 1003089 Allur ferill málsins

    Framlagðar atvinnuleysistölur fyrir febrúar 2010 og minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 22.mars.

  7. 7. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010

    Mál 1002010 Allur ferill málsins

    Breytingar á tillögu Fjarðabyggðar að sérreglum um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiáranna 2008/2009 og 2009/2010.  Bæjarráð samþykkir tillögu að sérreglum og felur bæjarstýru að senda þær til ráðuneytisins.

  8. 8. Verklag gjaldskráa og breytinga á gjaldskrám

    Mál 1003098 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlagða verklagsreglu.

  9. 9. Greiðsla kostnaðar vegna aðalskipulagsgerðar

    Mál 1003102 Allur ferill málsins

    Bréf Skipulagsstofnunar frá 16.mars er varðar greiðslu kostnaðar vegna aðalskipulagsgerðar.

  10. 10. Fundargerð 89.stjórnarfundar HAUST

    Mál 1003079 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  11. 11. Aðalfundur Sláturfélags Austurlands 25.mars

    Mál 1003099 Allur ferill málsins

    Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 25.mars kl.20:00 á Hótel Héraði.

  12. 12. Fundargerð 31.fundar félagsmálanefndar

    Mál 1003088 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  13. 13. Ferjusiglingar Mjóifjörður

    Mál 0912093 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf samgönguráðuneytisins frá 9.mars.

  14. 14. Beiðni um niðurfellingu á fasteignagjöldum vegna Grímseyri 9

    Mál 1003107 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk.  Bæjarráð samþykkir að styrkja slysavarnardeildina Hafdísi sbr. reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts.

  15. 15. Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf. 9.apríl

    Mál 1003109 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Loðnuvinnslunnar verður haldinn 9.apríl kl.18:30 í Skrúði.  Guðmundur Þorgrímsson verður fulltrúi á fundinum.

  16. 16. Málefni heilsugæslunnar í Fjarðabyggð

    Mál 0903114 Allur ferill málsins

    Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á heilbrigðisráðherra að leita leiða til þess að starfskraftar Hannesar Sigmarssonar heilsugæslulæknis megi áfram nýtast íbúum Fjarðabyggðar.  Heilsugæsla á Eskifirði var með ágætum í hans tíð og íbúar hafa verið sáttir við hana.  Ítrekaðar rannsóknir hafa ekki leitt í ljós tilefni til ákæru vegna starfa Hannesar í heilsugæslu Fjarðabyggðar.  Bæjarráð telur að starfsmannamál beri að leysa eftir þeim leiðum sem lög og kjarasamningar gera ráð fyrir.  Minnt er á að góð heilsugæsla er einn grundvallarþátturinn í velferð og öryggiskennd íbúa.Samþykkt samhljóða í bæjarráði Fjarðabyggðar 23. mars 2010 Guðmundur Þorgrímsson - Díana Mjöll Sveinsdóttir - Jens Garðar Helgason

  17. 17. Mannvirkjanefnd - 31

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.