Bæjarráð, fundur 190
16. mars 2010, kl. 09:00 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Mál 1002136 Allur ferill málsins
Jón Hilmar Kárason fulltrúi rekstraraðila Egilsbúðar sat þennan lið fundarins. Jón fór yfir fyrirkomulag á rekstri hússins og rætt var um hitunarkostnað og leigufjárhæð. Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá rekstraraðila vegna fyrirkomulags rekstrar á árinu 2010 og eins er óskað eftir ársreikningi fyrir árið 2009.
-
2. Málefni Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Mál 1003017 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra frá 16.mars vegna fjárhagsáætlunar HAUST á árinu 2010. Í minnisblaði kemur fram að ekki er þörf fyrir endurskoðun á fjárhagsáætlun 2010 þó að framlög Fjarðabyggðar verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í byggðasamlaginu. Bæjarráð er því sammála að framlag Fjarðabyggðar til HAUST verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í samlaginu.
-
3. Ársskýrsla HAUST 2009
Mál 1003065 Allur ferill málsins
Ársskýrsla lögð fram til kynningar.
-
4. Málefni jarðarinnar Viðfjarðar, Fjarðabyggð
Mál 1003059 Allur ferill málsins
Bréf Jóns Jónssonar lögmanns frá 10.mars. Varðar öflun nokkurra einstaklinga á formlegum eignarrétti á jörðinni Viðfirði en viðkomandi hafa farið með öll eignaráð yfir jörðinni athugasemdalaust síðastliðin 70 ár. Bæjarráð fellst á erindið og að ekki verði tekið til varna. Jafnframt að Fjarðabyggð áriti stefnu sbr. umfjöllun þar um í erindi lögmanns. Bæjarráð felur bæjarstýru afgreiðslu málsins og að árita stefnu.
-
5. Samningur um útgáfu fréttabréfs
Mál 1003039 Allur ferill málsins
Samningur við Austurgluggann frá 8.mars lagður fram til kynningar.
-
6. Samningur um golfvöll á Eskifirði
Mál 1003062 Allur ferill málsins
Samningur við Golfklúbbinn Byggðarholt frá 11.mars lagður fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samning.
-
7. Atvinnuuppbygging í Qeqqata
Mál 0909091 Allur ferill málsins
Þátttaka í samstarfsverkefni um breytingar samfélaga á norrænum slóðum og ákvörðun um þáttöku tveggja fulltrúa í ráðstefnu í byrjun júní 2010. Minnisblað mannauðsstjóra lagt fram. Bæjarráð samþykkir að Gunnar Jónsson forstöðumaður mannauðsmála og Smári Geirsson bæjarfulltrúi verði fulltrúar á ráðstefnunni. Allur kostnaður er greiddur af NORA.
-
8. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2010
Mál 1003057 Allur ferill málsins
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga verður haldinn 26.mars kl.15:00 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. Bæjarstýra verður fulltrúi á aðalfundinum.
-
9. Ósk um birtingu á lánastöðu sveitarfélagsins
Mál 1002015 Allur ferill málsins
Beiðni Lánasjóðs sveitarfélaga frá 24.janúar um heimild til birtingar á lánastöðu Fjarðabyggðar hjá sjóðnum. Bæjarráð heimilar Lánasjóði sveitarfélaga að miðla upplýsingum um lán Fjarðabyggðar.
-
10. Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 772
Mál 1003066 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
11. 1. stjórnarfundur Náttúrustofu Austurlands á árinu 2010
Mál 1003064 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
12. Fundir yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar 1., 3. og 5.mars
Mál 1003063 Allur ferill málsins
Fundargerðir lagðar fram.
-
13. Aukaaðalfundur SSA 19.apríl 2010
Mál 1003068 Allur ferill málsins
Efni fundarins eru tillögur stýrihóps SSA um starfsemi SSA og stoðstofnana.
-
14. Greiðslur til sveitarfélaga vegna kosninga 2010
Mál 1003069 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf dóms- og mannréttindaráðuneytis frá 12.mars er varðar greiðslur til sveitarfélaga vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6.mars og sveitarstjórnarkosninga 29.maí nk.
-
15. Fyrirspurn vegna færslu Nesgötu í Neskaupstað
Mál 1003060 Allur ferill málsins
Fyrirspurn skólastjóra Nesskóla lögð fram til kynningar og vísað til umhverfissviðs.
-
16. Fullnaðarafgreiðsla erinda - Staðfesting fundargerða án umræðu
Mál 1003027 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Skipulagsstofnunar frá 1.mars er varðar tvo nýgengna úrskurði um skipulagsmál þar sem fram kemur að skipulagsmál til samþykktar verði að vera sérstakur dagskrárliður á fundi bæjarstjórnar.
-
17. Tilnefnding í stýrihóp sjálfbærniverkefnis
Mál 1003071 Allur ferill málsins
Bæjarráð sammála að umhverfisstjóri verði fulltrúi í stýrihóp sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar.
-
18. Söngvakeppni fyrir börn og unglinga
Mál 1003077 Allur ferill málsins
Rætt um Röddina söngvakeppni fyrir börn og unglinga.
-
19. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 41
Fundargerð lögð fram.
-
20. Hafnarstjórn - 68
Fundargerð lögð fram.