Fyrirspurn vegna færslu Nesgötu í Neskaupstað
Mál 1003060 Fyrst á dagskrá 16. mars 2010, síðast 22. mars 2010. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Mannvirkjanefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 190 liður 15
Fyrirspurn skólastjóra Nesskóla lögð fram til kynningar og vísað til umhverfissviðs.
-
Mannvirkjanefnd, fundur 31 liður 2
Lagt fram bréf, dagsett 9. mars síðastliðin frá Maríasi Ben. Kristjánssyni skólastjóra Nesskóla, þar sem hann hvetur menn að nota tímann vel núna, þar sem fyrir liggur að bygging nýs leikskóla tefst, til að fara yfir skipulagsmálin á Neseyri, með það að ljósi hvort að ekki sé skynsamlegt að færa Nesgötuna niður fyrir fyrirhugaðan leikskóla. Mannvirkjanefnd er sammála skólastjóra Nesskóla og vísar í bókun liðar 1.