Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 189

9. mars 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

• Bæjarstjórn, fundur 68 liður 3

Til máls tóku:  Helga Jónsdóttir, Guðmundur Þorgrímsson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Sigrún Birna Björnsdóttir, Helga Jónsdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

1. 1. Málefni Sparisjóðs Norðfjarðar

Mál 2008-11-21-1815 Allur ferill málsins

Þennan lið fundarins sat Vilhjálmur Pálsson sparisjóðsstjóri. Vilhjálmur fór yfir núverandi stöðu, ferli endurfjármögnunar og stöðu sparisjóðsins eftir endurskipulagningu.

2. 2. Staða mála á félagsþjónustusviði í janúar 2010

Mál 1001094 Allur ferill málsins

Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um fyrirkomulag bakvakta á félagsþjónustusviði.

3. 3. Umsókn um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna

Mál 1003011 Allur ferill málsins

Beiðni Nýsköpunarsjóðs námsmanna frá 26.febrúar um styrk.  Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um styrk.

4. 4. Matsgerð Hafrannsóknarstofnunar vegna rannsóknar á dragnótaveiðum

Mál 1002138 Allur ferill málsins

Minnisblað mannauðsstjóra vegna vinnu og kostnaðar við mat á áhrifum dragnótaveiða.  Ekki eru til fjárheimildir í verkið og bæjarráð sammála um að leggja ekki í frekari vinnu vegna mats á áhrifum dragnótaveiða.

5. 5. Viðtalstími bæjarfulltrúa 25.febrúar 2010

Mál 1003005 Allur ferill málsins

Framlagðir minnispunktar frá viðtalstíma bæjarfulltrúa. Vísað til hlutaðeigandi sviða.

6. 6. Fyrirkomulag sumarleyfa starfsmanna bæjarskrifstofu í júlí 2010

Mál 1002018 Allur ferill málsins

Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 5.mars.  Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns stjórnsýslu um skipulag sumarleyfa.

7. 7. Fundur með Heilbrigðiseftirliti Austurlands

Mál 1003017 Allur ferill málsins

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson heilbrigðisfulltrúi og Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Helga fór yfir gjaldskrá HAUST, fyrirkomulag innheimtu og framlög sveitarfélaganna til HAUST.  Fjárhagsáætlun HAUST tekin fyrir á næsta fundi.

8. 8. Gamla kirkjan á Eskifirði

Mál 0911022 Allur ferill málsins

Framlagðar upplýsingar um að eigendur gömlu kirkjunnar á Eskifirði hafi nýlega fengið 1.500.000 kr. styrk frá Húsafriðunarnefnd til endurbóta en umhirðu kirkjunnar hefur verið áfátt.

9. 9. Ósk um leigu á félagsheimilinu Skrúði

Mál 0908092 Allur ferill málsins

Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samningi um rekstur Skrúðs og felur forstöðumanni stjórnsýslu að ganga frá samningi við Birkju ehf.

10. 10. Tungustígur á Eskifirði - lagfæringar eftir hitaveituframkvæmdir

Mál 1003021 Allur ferill málsins

Bréf Grétars Rögnvarssonar frá 16.febrúar vegna viðhalds á Tungustíg á Eskifirði.  Vísað til meðferðar á umhverfissviði.

11. 11. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar

Mál 1002136 Allur ferill málsins

Minnisblað mannvirkjastjóra frá 8.mars er fjallar um hitunarkostnað Egilsbúðar og skuldastöðu Ölvers ehf.  Bæjarráð óskar eftir að fá rekstraraðila Egilsbúðar inn á næsta fund.

12. 12. Bókun frá bæjarráði Seyðisfjarðar vegna urðunarmála

Mál 1003031 Allur ferill málsins

Bréf bæjarstjórans á Seyðisfirði frá 4.mars þar sem fagnað er að opnað hefur verið á samstarf Fjarðabyggðar, Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar í urðunarmálum og jafnframt lögð áhersla á mikilvægi þess að nefnd sveitarfélaganna um urðunarmál ljúki störfum sem fyrst. Í bréfinu kemur jafnframt fram að sorp frá Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði verður á næstunni tímabundið urðað í Breiðdal.

13. 13. Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp

Mál 0905099 Allur ferill málsins

Fundargerð samráðshóps sveitarfélaganna fjögurra frá 4.mars, lögð fram til kynningar.

14. 14. Upplýsingar um fasteignagjöld íþróttafélaga

Mál 1003029 Allur ferill málsins

Minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa um styrki til íþróttafélaga vegna fasteignagjalda.  Forstöðumanni stjórnsýslu falið að upplýsa félögin um reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts.

15. 15. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010

Mál 1002010 Allur ferill málsins

Rætt um bókun frá fundi bæjarstjórnar 4.mars og tillögu sem vísað var til bæjarráðs. Tillaga að sérreglum sem samþykktar voru á fundi bæjarráðs nr. 186 vísað til bæjarstjórnar.

16. 16. Fundur yfirkjörstjórnar 18.febrúar 2010

Mál 1002118 Allur ferill málsins

Fundargerð lögð fram.

17. 17. Fundur yfirkjörstjórnar 22.febrúar 2010

Mál 1002119 Allur ferill málsins

Fundargerð lögð fram.

18. 18. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd - 33

Fundargerðin í heild

Fundargerð lögð fram.