Málefni Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Mál 1003017 Fyrst á dagskrá 9. mars 2010, síðast 16. mars 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 189 liður 7
Fundur með Heilbrigðiseftirliti Austurlands
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands Helga Hreinsdóttir, Leifur Þorkelsson heilbrigðisfulltrúi og Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Helga fór yfir gjaldskrá HAUST, fyrirkomulag innheimtu og framlög sveitarfélaganna til HAUST. Fjárhagsáætlun HAUST tekin fyrir á næsta fundi.
-
Bæjarstjórn, fundur 68 liður 3.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 189“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Fundur með Heilbrigðiseftirliti Austurlands
-
Bæjarráð, fundur 190 liður 2
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra frá 16.mars vegna fjárhagsáætlunar HAUST á árinu 2010. Í minnisblaði kemur fram að ekki er þörf fyrir endurskoðun á fjárhagsáætlun 2010 þó að framlög Fjarðabyggðar verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í byggðasamlaginu. Bæjarráð er því sammála að framlag Fjarðabyggðar til HAUST verði með sama hætti og annarra sveitarfélaga í samlaginu.