Bæjarráð, fundur 187
2. mars 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Þriggja ára áætlun
Mál 1002050 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og mannvirkjastjóri. Farið var yfir tekjuforsendur þriggja ára áætlunar Fjarðabyggðar 2011-2013 og fjárfestingaráætlun. Bæjarráð samþykkir að vísa framkominni þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn í vikunni.
-
2. Starfsmannamál hafnanna
Mál 1002012 Allur ferill málsins
Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna frá 25.febrúar er varðar beiðni um ráðningu í starf vélstjóra en um er að ræða ráðningu í stað starfsmanns sem lét af störfum í febrúar. Bæjarráð heimilar ráðningu í starf vélstjóra við Fjarðabyggðarhafnir á grundvelli minnisblaðs.
-
3. Sorphirða og Sorpförgun Fjarðabyggð - útboðsgögn
Mál 1001039 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri og umhverfisfulltrúi sátu þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 1.mars um opnun tilboða í sorphirðu og sorpförgun í Fjarðabyggð og yfirlit yfir rekstur Sorpstöðvar Fjarðabyggðar í ljósi tilboðs lægstbjóðanda Íslenska Gámafélagsins. Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar frá 24.febrúar og felur mannvirkjastjóra að ganga til samninga við Íslenska gámafélagið á grundvelli aðaltilboðs.
-
4. Deiliskipulag fyrir Skálateig í Neskaupstað
Mál 0909036 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir deiliskipulag fyrir Skálateig í Neskaupstað.
-
5. Refa og minkaveiði 2010-2011
Mál 1002108 Allur ferill málsins
Umhverfisfulltrúi sat þennan lið fundarins. Umhverfisfulltrúi fór yfir framlagðar tillögur landbúnaðarnefndar um fyrirkomulag refa- og minkaveiða sem samþykktar voru í umhverfis- og skipulagsnefnd 24.febrúar. Viðbótarkostnaður á árinu 2010 vegna nýs fyrirkomulags er áætlaður að hámarki um 1 milljón. Bæjarráð felur umhverfissviði að fara yfir málið með landbúnaðarnefnd og vinna úr þeim fjárheimildum sem tiltækar eru.
-
6. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar
Mál 1002136 Allur ferill málsins
Bréf Ölvers ehf. rekstraraðila Egilsbúðar frá 25.febrúar er varðar hitunarkostnað og leigu í Egilsbúð. Vísað til mannvirkjasviðs og tekið fyrir á næsta fundi.
-
7. Ferjusiglingar Mjóifjörður
Mál 0912093 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna frá fundi sem haldinn var 25.febrúar og bréf bæjarstýru til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á siglingum til og frá Mjóafirði í sumar. Bæjarráð leggst eindregið gegn því að sumarferðir ferjunnar verði lagðar niður.
-
8. Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Fundargerð lögð fram.
-
9. Fræðslunefnd - 27
Fundargerð lögð fram.
-
10. Mannvirkjanefnd - 30
Fundargerð lögð fram.