Bæjarráð, fundur 186
23. febrúar 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá

1. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010
Mál 1002010 Allur ferill málsins

Lagt fram bréf bæjarstýru dagsett 22.febrúar til sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytis um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir bréfið.

2. Staða mála á félagsþjónustusviði í janúar 2010
Mál 1001094 Allur ferill málsins
Frestað til næsta fundar.

3. Umsókn um styrk til reksturs Listasmiðju Norðfjarðar
Mál 1002096 Allur ferill málsins
Samþykkt að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts. Beiðni um árlegan rekstrarstyrk vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2011.

4. Umsókn um styrk til uppbyggingar Þórsmerkur í Neskaupstað
Mál 1002095 Allur ferill málsins
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2011.

5. Skýrsla um vannýtt íbúðarhúsnæði
Mál 1002093 Allur ferill málsins
Skýrsla lögð fram.

6. Verkefni á fjármálasviði fram á sumar 2010
Mál 1002092 Allur ferill málsins
Samþykkt tillaga fjármálastjóra um ráðningu sérfræðings á fjármálasvið.

7. Frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum vegna hækkunar raforkuverðs
Mál 1002045 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.

8. Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar
Mál 1002098 Allur ferill málsins
Samþykkt að bjóða til fundar vinabæja 4. október n.k.

9. Samstarf í sorpmálum og skíðamálum
Mál 1002102 Allur ferill málsins
Samstarf um skíðamál vísað til MÍF.

10. Sorpurðun - Samstarf við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstað og Fljótsdalshrepp
Mál 0905099 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat dagskrárliðinn. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar drögum að erindsbréfi sem sent verður sem tillaga að meðferð málsins til samstarfssveitarfélaga.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Tímabundin framlenging á urðun sveitarfélaganna er til 1 júní n.k. enda beri nágrannasveitarfélögin viðbótarkostnað gagnvart landeigenda vegna þess sem búið er að urða og verður urðað fram að þeim tíma og samningar náist um hækkað urðunargjald á tímabilinu frá 1. mars til 1. júní.

11. Ályktun vegna breytinga á aðalskipulagi í tengslum við breytt vegastæði á Kirkjubólseyrum.
Mál 1002067 Allur ferill málsins
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

12. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðargildi laga nr. 1.2010 - ákvörðun um kjörstaði og opnun þeirra
Mál 1002105 Allur ferill málsins
Tillaga yfirkjörstjórnar um kjörstaði 6. mars n.k. samþykkt. Kjörstaðir verða í grunnskólunum á Fáskrúðsfirði, Norðfirði og Stöðvarfirði, í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði, í safnaðarheimilinu á Reyðarfirði og Sólbrekku í Mjóafirði.

13. Öldrunarþjónustunefnd - 17
Fundargerð lögð fram.

14. Makaskipti á bifreið og gröfu
Mál 1002113 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan dagskrárlið. Lögð fram tillaga að makaskiptum á bifreið og gröfu. Bæjarráð samþykkir tillögu.