Bæjarráð, fundur 185
16. febrúar 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Jóhann Eðvald Benediktsson.
Dagskrá
-
1. Sorpmál - Samstarf við Fljótsdalshérað
Mál 0905099 Allur ferill málsins
Á fundinn eru mætt bæjarráð og bæjarstjórar Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar ásamt Birni Hafþóri Guðmundsssyni formanni SSA. Einnig sátu þennan dagskrárlið umhverfisfulltrúi, fjármálastjóri, umhverfisstjóri og Lúðvík Gústafsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Farið yfir samstarfið og málin rædd. Fundarmenn sammála um að vinnuhópur um samstarf í úrgangsmálum haldi sinni vinnu áfram auk þess sem lagt var til að nefndin fái erindisbréf og að skiladagur verði ákveðinn.
-
2. Samningur um rekstur knattspyrnuvalla í Fjarðabyggð
Mál 1001113 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað dagsett 15. febrúar frá mannvirkjastjóra, fræðslustjóra og æskulýðs- og íþróttafulltrúa. Meðfylgjandi eru drög að samningi og verklagsreglum vegna umhirðu knattspyrnuvalla í Fjarðabyggð. Bæjarráð felur æskulýðs- og íþróttafulltrúa að ganga frá samningum.
-
3. Þriggja ára áætlun - drög að fjárfestingaáætlun
Mál 1002050 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að fjárfestingaráætlun til næstu þriggja ára. Bæjarráð vísar áætlun til umfjöllunar í mannvirkjanefnd.
-
4. Endurskoðun vegaáætlunar
Mál 1002053 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra dagsett 14. febrúar 2010 vegna endurskoðunar á vegaáætlun. Bæjarráð er sammála áherslum í minnisblaði og felur mannvirkjastjóra að senda áherslur bæjarráðs til Vegagerðarinnar.
-
5. 29.fundur félagsmálanefndar
Mál 1002041 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
6. Hafnarstjórn - 67
Fundargerð lögð fram.
-
7. Byggðakvóti fiskveiðiársins 2009/2010
Mál 1002010 Allur ferill málsins
Rætt um úthlutunarreglur byggðarkóta.