Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 67

9. febrúar 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Umhverfis- og framkvæmdarmál Fjarðabyggðahafna

    Mál 0904082 Allur ferill málsins

    Til fundarins mætti umhverfisstjóri, Árni Steinar Jóhannsson, og fór yfir verkefni liðins árs og áætluð verkefni ársins 2010.

  2. 2. Endurbygging Barksins

    Mál 0904043 Allur ferill málsins

    Staða málsins kynnt ásamt yfirstandandi verðkönnun.

  3. 3. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 0905163 Allur ferill málsins

    Kynntar hugmyndir frá Siglingastofnun varðandi endurbætur á gömlu bæjarbryggjunni á Norðfirði. Hafnarstjórn líst vel á þá tillögu sem sett er fram í bréfinu um áfangaskiptingu endurbóta á bryggjunni.  Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að skrifa Siglingastofnun varðandi þátttöku ríkisins í framkvæmdinni þar sem um ferjubryggju er að ræða.

  4. 4. Smábátahöfn Eskifirði

    Mál 0910146 Allur ferill málsins

    Farið yfir hugmyndir að skipulagi smábátahafnarinnar. Hafnarstjórn felst á að vinna áfram eftir nýrri hugmynd að skipulagi hafnarinnar.

  5. 5. Smábátahöfn Stöðvarfirði

    Mál 0910145 Allur ferill málsins

    Minnispunktar frá fundi með smábátasjómönnum á Stöðvarfirði kynntir. Hafnarstjórn felst á aða vinna eftir fyrirliggjandi hugmynd sem kynnt var á síðasta fundi.

  6. 6. Smábátahöfn Reyðarfirði

    Mál 1001100 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir fyrirliggjandi hugmynd að stækkun smábátahafnarinnar á Reyðafirði og felst á hana fyrir sitt leyti.

  7. 7. Uppsögn á starfi

    Mál 1002004 Allur ferill málsins

    Kynnt bréf frá Óskari Sverrissyni starfsmanni hafnarinnar þar sem hann segir upp störfum.  Hafnarstjórn þakkar Óskari fyrir vel unnin störf.

  8. 8. Starfsmannamál

    Mál 1002012 Allur ferill málsins

    Farið var yfir starfsmannamál á höfninni. Hafnarstjórn samþykkir að ráða í starf vélstjóra samanber umsókn sem liggur fyrir og að auglýsa eftir starfsmanni á Norðfjörð.