Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 55

24. mars 2009, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Skýrsla um Norður-Íshafssiglingar janúar 2009

    Mál 0903011 Allur ferill málsins

    Skýrsla um Norður - Íshafssiglingar frá janúar 2009 unnin fyrir Fjárfestingastofu og nokkrar hafnir. Vísað til umfjöllunar frá síðasta fundi.Hafnarstjórn fór yfir skýrsluna en hún gefur til kynna að ekki sé hagkvæmt við núverandi aðstæður að fara Norður - Íshafsleiðina með vöruflutninga.  Hafnarstjórn mun fylgjast með málinu áfram.

  2. 2. Beiðni um undaþágu til að taka lóðs að/ frá Mjóeyrarhöfn.

    Mál 0902046 Allur ferill málsins

    Bréf frá Eimskipum dags. 24. febrúar 2009 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsþjónustu fyrir Robert Podbrzeski, skipstjóra á BBC Reydarfjordur. Einnig kynnt svar við erindinu þar sem heimildin er samþykkt.

  3. 3. Ósk um undanþágu frá hafnsöguskyldu vegna Rafal Sysak skipstjóra

    Mál 0903053 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur frá Grendal ehf dags. 6. febrúar 2009 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Rafal Sysak skipstjóra á olíuskipinu Otilia.  Einnig kynnt svar við erindinu þar sem beiðninni er hafnað.

  4. 4. Siglingamerki við Mjóeyrarhöfn

    Mál 0903060 Allur ferill málsins

    Kynnt bréf til Siglingastofnunar dags. 11. mars 2009. Þar sem óskað er eftir svari um hvenær farið verði í gerð innsiglingamerkis í tengslum við Mjóeyrarhöfn sem gert var ráð fyrir. Kynnt.

  5. 5. Kynning á Köfunarþjónustunni ehf

    Mál 0903095 Allur ferill málsins

    Bréf frá Köfunarþjónustunni mótt. 17. mars 2009. Kynnt þjónusta fyrirtækisins.

  6. 6. Umsókn um aðild að Cruise Iceland

    Mál 0903052 Allur ferill málsins

    Kynnt formleg umsókn frá Fjarðabyggðarhöfnum dags. 10. mars 2009, um aðild að Cruise Iceland.  Framkvæmdastjóra falið að fylgja málinu eftir.

  7. 7. Endurbygging á bryggju í Viðfirði

    Mál 0903106 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur frá Skúla Hjaltasyni og Þórarni Guðnasyni dags. 17. mars 2009, þar sem óskað er eftir styrk til endurbyggingar bryggju í Viðfirði.  Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk í samræmi við reglur um endurbyggingu gamalla bryggja.