Bæjarráð, fundur 143
2. apríl 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Lækkun á fastri yfirtíð
Mál 0903127 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu forstöðukona fjármála og forstöðumaður mannauðsmála. Lagt fram bréf starfsmanna hafnanna frá 20.3. er varðar óánægju með lækkun á fastri yfirvinnu. Bæjarstýru falið að svara erindi.
-
2. Lækkun launa og uppsögn á föstum kjörum öðrum en umsömdum mánaðarlaunum
Mál 0903140 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu forstöðukona fjármála og forstöðumaður mannauðsmála. Lagt fram bréf þriggja starfsmanna bæjarskrifstofa vegna uppsagna á föstum kjörum öðrum en umsömdum mánaðarlaunum. Jafnframt lagt fram svarbréf bæjarstýru við bréfi starfsmanna.
-
3. Aðstöðuleysi 16-25 ára ungmenna
Mál 0903115 Allur ferill málsins
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi sat þennan lið fundarins. Framlagt bréf áfallaráðs í Neskaupstað frá 18.3. Bæjarráð vísar erindinu til félagsþjónustusviðs með beiðni um að brugðist verði við erindinu. Jafnframt er óskað eftir umsögn frá félagsþjónustusviði fyrir næsta fund.
-
4. Samningur við KFF um viðhald vallanna
Mál 0903058 Allur ferill málsins
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa frá 19.3. vegna framkvæmdar á samningi við KFF um viðhald íþróttavallanna.
-
5. Styrkur úr mannvirkjasjóði KSÍ
Mál 2009-02-17-234 Allur ferill málsins
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa frá 20.3 vegna beiðni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar um að styrkur úr mannvirkjasjóði KSÍ renni til félagsins.Bæjarráð felur æskulýðs- og íþróttafulltrúa og mannvirkjastjóra að ganga til samninga við KFF um nýtingu styrksins.
-
6. Tilboð Eignarhaldsfélags Austurlands til smærri hluthafa um innlausn hluta og tilkynning um aðalfund sem haldinn verður 3.apríl.
Mál 0903137 Allur ferill málsins
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Austurlands verður haldinn 3.4. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að sækja fundinn. Með bréfi Íslenskra verðbréfa frá 18.3. er hluthöfum veittur frestur til 7.4. til að samþykkja tilboð um innlausn smærri hluta. Eign Fjarðabyggðar er 0,56% af hlutafé félagsins og er verðmæti hlutarins kr. 598.997.- Bæjarráð samþykkir að innleysa hlut Fjarðabyggðar og felur forstöðukonu fjármála að samþykkja tilboðið formlega fyrir 7.4.
-
7. Beiðni um niðurfellingu á fasteignatengdum gjöldum í Mjóafirði
Mál 0903006 Allur ferill málsins
Framlögð umsögn mannvirkjastjóra frá 20.3. Bæjarráð fellst á tillögu mannvirkjastjóra.
-
8. Atvinnuleysi í Fjarðabyggð
Mál 0903023 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samkomulagi um miðstöð fólks í atvinnuleit. Bæjarstýru falið að ganga frá samningi og fellst á greiðslu framlags. Fjárheimild tekin af liðnum 21-69.
-
9. Svar við umsókn um að vera tekin á kjörskrá við kosningar til Alþingis og við kjör forseta Íslands.
Mál 0903098 Allur ferill málsins
Tilkynning Þjóðskrár um viðbótarnafn á kjörskrá.
-
10. Minnisblað vegna samráðsfundar milli sambandsins og Þriggja ráðherra sem haldinn var 10.3.
Mál 0903138 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð samráðsfundar formanns og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga með samgönguráðherra, fjármálaráðherra og félags- og tryggingamálaráðherra frá 10.3.
-
11. Fundargerð félagsmálanefndar frá 16.2.
Mál 0903013 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram.
-
12. Hafnarstjórn - 55
Fundargerð lögð fram.
-
13. Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 19.3.
Mál 0903152 Allur ferill málsins
Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 19.3. lögð fram. Bæjarráð samþykkir að kjördeildir í Fjarðabyggð verði á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Stöðvarfirði og í Mjóafirði og Neskaupstað.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Aukafundur verður í bæjarstjórn 24.4. þar sem kjörskrá verður staðfest.
-
14. Umhverfis- og skipulagsnefnd nr. 27 frá 25.3.
Fundargerð lögð fram.
-
15. Fundagerð Stjórnkerfisnefndar Fjarðabyggðar frá 17. mars
Mál 0904001 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.