Bæjarráð, fundur 144
14. apríl 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 58 liður 1
Til máls tóku: Helga Jónsdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Valdimar O Hermannsson, Smári Geirsson, Óskar Þór Hallgrímsson, Þorbergur Hauksson, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Staðfest með 9 atkvæðum af bæjarstjórn.
Dagskrá
-
1. Fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands frá 25.mars.
Mál 0904002 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
2. Fundargerð stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga frá 26. mars
Mál 0904006 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
3. Siglingar Mjóafjarðarferju
Mál 0904005 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar frá 1.apríl er varðar niðurgreiðslur á ferðum með Mjóafjarðarferju. Lögð fram fundargerð frá fundi 7.apríl um ferjusiglingar til Mjóafjarðar.
-
4. Mótmælendalisti vegna veghefils á Norðfirði
Mál 0903153 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Herborgar Þóru Ármannsdóttur frá 20.3. og undirskriftarlisti þar sem mótmælt er áformum um að selja eigi veghefil sem séð hefur um snjómokstur í Neskaupstað. Vísað til innleiðingarhóps vegna breytinga á starfsháttum þjónustumiðstöðvar og umhverfisdeildar.<?xml:namespace prefix = o />
-
5. Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf
Mál 0904017 Allur ferill málsins
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar verður haldinn föstudaginn 17.apríl. Guðmundur Þorgrímsson mun sækja fundinn.
-
6. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands
Mál 0904031 Allur ferill málsins
Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn 7.maí á Borgarfirði Eystri. Vísað til MÍF.
-
7. Fundargerð mannvirkjanefndar frá 30.mars
Fundargerð lögð fram.
-
8. Viðtalstími bæjarfulltrúa 26.febrúar
Mál 0904035 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt vegna viðtalstíma bæjarfulltrúa í lok febrúar. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að afla svara vegna fyrirspurna í viðtalstímanum.