Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 145

21. apríl 2009, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Samantekt frá sveitarfélögum vegna hagræðingar í skóla- og fræðslumálum

    Mál 0904033 Allur ferill málsins

    Framlagðir til kynningar minnispunktar ásamt fylgiskjölum, vegna fundar sambandsins með menntamálaráðherra frá 6.apríl.

  2. 2. Aðstöðuleysi 16-25 ára ungmenna

    Mál 0903115 Allur ferill málsins

    Framlögð sem vinnuskjal umsögn félagsþjónustusviðs frá 17.4. vegna bréfs áfallaráðs í Neskaupstað frá 18.3.  Starfandi félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnslu félagsþjónustusviðs með beiðni um greiningu á áætluðum kostnað.

  3. 3. Nýsköpun og frumkvöðlastarf í matariðnaði á Austurlandi

    Mál 0904042 Allur ferill málsins

    Beiðni Austfirskra krása um styrk.  Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk af liðnum 21-69-.

  4. 4. Viðveru- og tímaskráningarkerfi

    Mál 0904050 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga mannauðsstjóra frá 21.4. vegna kaupa á viðveru- og tímaskráningarkerfi fyrir Fjarðabyggð. Þennan lið fundarins sat mannauðsstjóri og fór yfir fyrirhuguð kaup á viðveru- og tímaskráningarkerfi og kostnað vegna kaupanna.  Á grundvelli útboðs á viðveru- og tímaskráningarkerfi fyrir Fjarðabyggð felur bæjarráð mannauðsstjóra að ganga til samninga um kaup á einu af þremur kerfum sem voru í forvali að undangengnu mati ráðgjafa.

  5. 5. Áherslur SSA í nýrri Byggðaáætlun 2010-2013

    Mál 0904036 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Breytingar á vinabæ Fjarðabyggðar í Finnlandi

    Mál 0904039 Allur ferill málsins

    Tilkynning um að Jyvaskyla vinabær Fjarðabyggðar hafi sameinast Korpilahti undir nafninu Jyvaskyla.

  7. 7. Tillögur að breytingum á tilhögun ferjusiglinga til Mjóafjarðar

    Mál 0904028 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar dreifibréf bæjarstýru til íbúa í Mjóafirði vegna ferjusiglinga milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Bæjarráð mun funda með Mjófirðingum á næstunni.

  8. 8. Staða og horfur hjá sveitarfélögunum

    Mál 0904054 Allur ferill málsins

    Framlagðir til kynningar minnispunktar frá símafundi aðildarsveitarfélaga SSA sem haldinn var 7.4.

  9. 9. Fræðslunefndarfundur nr.16 frá 8.4.2009

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  10. 10. Öldrunarþjónustunefnd nr.10 frá 7.4.2009

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.