Hafnarstjórn, fundur 68
9. mars 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 190 liður 20
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir CI á árinu 2010
Mál 1002039 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 3. febrúar 2010Til kynningar.
-
2. 325. og 326. fundur stjórnar Hafnasambands Íslands
Mál 1002076 Allur ferill málsins
Fundargerð 325. og 326. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.Fundargerðirnar kynntar.
-
3. Bráðabirgðalöggilding vigtarmanna
Mál 1002044 Allur ferill málsins
Kynnt bréf til Hafnasambands Íslands með svari Neytendastofu um endurmenntun vigtarmanna.
-
4. Aðgangur tollyfirvalda að eftirlitsmyndavélum
Mál 1003018 Allur ferill málsins
Bréf frá Tollstjóranum í Reykjavík þar sem óskað er eftir aðgangi að eftirlitsmyndavélum Mjóeyrarhafnar í þágu lögbundins eftirlits samkvæmt tollalögum.Fyrir fundinum lágu drög að svarbréfi þar sem sett eru fram skilyrði fyrir samþykki hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir beiðnina með framkomnum skilyrðum og fyrirvara um staðfestingu eftirlitsaðila Siglingastofnunar um framkvæmd hafnarverndar.
-
5. Endurbygging Barksins
Mál 0904043 Allur ferill málsins
Fundargerð frá opnun tilboða í endurgerð Barksins á Reyðarfirði. Fjögur tilboð bárust og átti Nestak ehf lægsta tilboðið 6.989.500 kr. eða 88,5% af kostnaðaráætlun. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
6. Þátttaka í Seatrade Med í Cannes
Mál 1002109 Allur ferill málsins
Boð um þátttöku á sölusýningu skemmtiferðaskipa Seatrade Med í Cannes í haust. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á sölusýninguna.
-
7. Siglingavernd - Mjóeyrarhöfn
Mál 1003003 Allur ferill málsins
Ósk um heimild til að kaupa hliðbómur fyrir hlið Mjóeyrarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir kaupin.
-
8. Smábátahöfn Stöðvarfirði
Mál 0910145 Allur ferill málsins
Minnisblað vegna endurbóta í smábátahöfnunum á Norðfirði, Stöðvarfirði, Eskifirði og Reyðarfirði. Hafnarstjórn samþykkir heimild til framkvæmdastjóra til að leita verða í flotbryggjur samkvæmt minnisblaði.
-
9. Starfsmannamál hafnanna
Mál 1002012 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum lá greinargerð vegna ráðningar öryggisvarðar við Mjóeyrarhöfn.Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá ráðningu.
-
10. Stöðvarfjörður löndunarkrani
Mál 1003008 Allur ferill málsins
Fulltrúi frá Fiskmarkaði Austurlands hafa óskað eftir að gamli löndunarkraninn á Stöðvarfirði verði fluttur inn á Nýja garð til að auka afköst við löndun smábáta þar í sumar.Hafnarstjórn samþykkir að setja upp krana innan við núverandi krana og heimild veitt til að kaupa nýjan krana.