Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 69

13. apríl 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Fundagerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 327. og ársreikningur

    Mál 1003104 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 327 ásamt ársreikningi 2009.  Kynnt.

  2. 2. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Djúpavogi 20. maí 2010.

    Mál 1003135 Allur ferill málsins

    Málið kynnt.

  3. 3. Seatrade Miami - sýning

    Mál 0911054 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað vegna ferðar á sölusýningu fyrir skemmtiferðaskip á Miami nú í mars. Hildigunnur og Sævar gerðu grein fyrir ferðinni.

  4. 4. Starfsmannamál hafnanna

    Mál 1002012 Allur ferill málsins

    Framkvæmdsstjóri fór yfir stöðu máls. Auglýst hefur verið ítrekað eftir vélstjóra án árangurs, en síðast rann auglýsingafrestur út 6. apríl sl. Hafnarstjórn samþykkti að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir hafnarstarfsmanni.

  5. 5. Löndunarlögn við Síldarvinnsluna í Neskaupstað

    Mál 1004004 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að heimila uppsetningu löndunarlagnar framan við fiskiðjuver Síldarvinnslunnar á Norðfirði.  Hafnarstjórn leggur áherslu að uppsetning lagnarinnar hindri eðlilega umferð á hafnarsvæðinu í eins litlum mæli og unnt er.  Framkvæmdastjóra falið að fylgjast með framkvæmd verksins.

  6. 6. Stöðvarfjörður löndunarkrani

    Mál 1003008 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað frá framkvæmdastjóra. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa krana í samræmi við umræðu á fundinum.

  7. 7. Smábátahöfn Stöðvarfirði

    Mál 0910145 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum liggur minnisblað vegna verðkönnunar í flotbryggjur fyrir Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda G. Skúlason ehf.