Hafnarstjórn, fundur 70
18. maí 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 199 liður 12
Fundargerð lögð fram.
Dagskrá
-
1. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Djúpavogi 20. maí 2010.
Mál 1003135 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn fól framkvæmdastjóra að vera fulltrúi á fundinum ásamt ferða og menningamálafullrtúa. Sævar Guðjónsson verður til vara.
-
2. Könnun meðal farþega og áhafna skemmtiferðaskipa
Mál 1005087 Allur ferill málsins
Kynntar samandregnar niðurstöður könnunar sem gerð var meðal farþega og áhafna á skemmtiferðaskipum sumarið 2009.
-
3. Dæluhýsi og sjólögn
Mál 1004099 Allur ferill málsins
Erindi varðandi sjókælilögn fyrir álverið til afgreiðslu og umfjöllunar hjá Umhverfis og skipulagsnefnd. Kynnt.
-
4. Framkvæmd við lengingu olíubyggju Norðfirði
Mál 0905161 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum láu fundargerðir frá opnun verðkönnunar í ljósamasturshús og lagnir annars vegar og hins vegar frá opnun verðkönnunar í raflagnir og lýsingu á olíukantinum á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðendur.
-
5. Fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014
Mál 1004096 Allur ferill málsins
Bréf frá Siglingastofnun um umsóknir um ríkisframlög til framkvæmda á næsta samgönguáætlunartímabili sem er 2011 til 2014. Lagt fram til kynningar.
-
6. Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði
Mál 1002079 Allur ferill málsins
Svarbréf Siglingastofnunar dags. 26. mars 2010 við bréfum Fjarðabyggðarhafna þar sem óskað er eftir þátttöku ríkisins í endurbótum á ferjubryggju á Norðfirði og endurbótum á gamla garðinum á Stöðvarfirði. Fjallað var um málið á fundi hafnarstjórnar 9. febrúar 2010. Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að sjá til þess að framlag ríkisins til endurbóta á gamla garðinum á Stöðvarfirði verði nýtt. Í því sambandi samþykkir hafnarstjórn að leggja fram mótframlag.
-
7. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Svarbréf Siglingastofnunar dags. 26. mars 2010 við bréfum Fjarðabyggðarhafna þar sem óskað er eftir þátttöku ríkisins í endurbótum á ferjubryggju á Norðfirði og endurbótum á gamla garðinum á Stöðvarfirði. Fjallað var um málið á fundi hafnarstjórnar 9. febrúar 2010. Hafnarstjórn sættir sig við þá niðurstöðu sem fram kemur um fjárveitingar til ferjubryggja í bréfinu en erindi hafnarstjórnar er þar hafnað.Fyrir fundinum lá kostnaðaráætlun vegna endurbyggingar á bæjarbryggjunnar á Norðfirði. Hún yfirfarin og kynnt og vísað til nýrrar hafnarstjórnar.Til viðbótar samþykkir hafnarstjórn að fela framkvæmdastjóra að hefja undirbúning að því að fjarlægja gömlu SÚN-bryggjuna og því verki verði lokið á árinu.
-
8. Starfsmannamál hafnanna
Mál 1002012 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir umsóknum sem bárust í starf hafnarvarðar með meginstarfsstöð á Norðfirði. Sjö umsóknir bárust í starfið. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá ráðningu.
-
9. Viðfangsefni í umfjöllun hjá Hafnarstjórn í maí 2010
Mál 1005088 Allur ferill málsins
Farið yfir helstu málefni sem eru í umfjöllun hjá hafnarstjórn við upphaf nýs kjörtímabils.