Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 71

6. júlí 2010, kl. 17:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 4. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Vinnureglur hafnarstjórnar vegna funda júlí 2010

    Mál 1006307 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir drög að vinnureglum fyrir fundi sína.  Vinnureglurnar samþykktar samhljóða.

  2. 2. Viðfangsefni í umfjöllun hjá Hafnarstjórn í maí 2010

    Mál 1005088 Allur ferill málsins

    Farið yfir helstu viðfangsefni í umfjöllun síðustu hafnarstjórnar.

  3. 3. M/V El Bravo - undanþága frá hafnsöguskyldu

    Mál 1004105 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskipum dags. 15. apríl 2010 þar sem farið er fram á undanþágu frá hafnsöguskyldu og byggir erindið á heimild í hafnarreglugerð Fjarðabyggðar, ásamt svari hafanrinnar við erindinu. Hafnarstjórn staðfestir undanþáguna.

  4. 4. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að samningi við Björn Inga Knútsson vegna greiningavinnu fyrir undirbúning komu skemmtiferðaskipa til Eskifjarðar. Hafnarstjórn samþykkir drögin samhljóða og felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningnum.

  5. 5. Þátttaka í Seatrade Med í Cannes

    Mál 1002109 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn ákvað að fulltrúi hafnarinnar á Seatrade Med í Cannes, sölusýningu skemmtiferðaskipa, verði Hildigunnur Jörundsdóttir ferða og menningamálafulltrúi.

  6. 6. Rannsóknarverkefni um sjóflutninga

    Mál 0909021 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu en fyrir fundinum lá skýrsla frá starfshópnum sem er að vinna í málinu undir stjórn Transportutvikling AS. Hafnarstjórn harmar að verkefnið komist ekki lengra að svo stöddu.  Kynnt.

  7. 7. Mat á hagkvæmni strandflutninga á Íslandi

    Mál 1006090 Allur ferill málsins

    Skýrsla starfshóps sem kannaði mat á hagkvæmni strandflutninga sem kom út 25.maí 2010 kynnt.

  8. 8. Sýningin "flutningar 2010"

    Mál 1006037 Allur ferill málsins

    Kynnt erindi frá Ólafi Jóhannessyni framkvæmdastjóra sýningarinnar Flutningar 2010 móttekið 2. júní 2010. Þar sem verið er að bjóða Fjarðabyggðarhöfnum að taka þátt í sýninu sem haldi verður 7 og 8. október 2010. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.

  9. 9. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 0905163 Allur ferill málsins

    Hugmyndir um endurbyggingu bæjarbryggjunnar á Norðfirði, frumkostnaðaráætlun frá Siglingastofnun dags. 9. mars 2010. Vísað til nýrrar hafnarstjórnar frá síðasta fundi hafnarstjórnar 18. maí 2010. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að koma með hugmyndir að frágangi.

  10. 10. Smábátahöfn Reyðarfirði

    Mál 1001100 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá opnun tilboða í stækkun smábátahafnar á Reyðarfirði.  Fimm tilboð bárust og var lægsta boð frá Krana og gröfuleigu Borgþórs ehf. upp á 11.851.150 kr. eða 99% af kostnaðaráætlun. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

  11. 11. Framtíð og uppbygging Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1005192 Allur ferill málsins

    Erindi frá stjórn Sjóminjasafns Austurlands dags. 21. maí 2010 er varðar geymsluhúsnæði og framtíð og uppbyggingu safnsins. Vísað til hafnarstjórnar frá bæjarráði 25. maí 2010.  Hafnarstjórn ræddi málið og verður það rætt frekar í vettvangsferð sem stefnt er að að fara í.

  12. 12. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn á Djúpavogi 20. maí 2010.

    Mál 1003135 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Cruise Iceland dags. 20. maí 2010. Kynnt.