Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 72

21. júlí 2010, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 76 liður 8

    Enginn tók til máls.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerð 330. stjórnarfundar Hafnasambands Íslands

    Mál 1007171 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 330. fundi stjórnar Hafnasambands Íslands dags. 28. júní 2010. Kynnt.

  2. 2. Franski spítalinn við Hafnarnes

    Mál 0910066 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir heimild hafnarstjórnar fyrir tímabundinni aðstöðu innst á hafnarsvæðinu við hafskipabryggjuna á Fáskrúðsfirði til að geyma og vinna við Franska spítalann komi til flutnings hans frá Hafnarnesi inn í bæ. Hafnarstjórn samþykkir heimildina fyrir sitt leiti og vísar málinu til byggingafulltrúa.

  3. 3. Frystihúsið á Stöðvarfirði

    Mál 1007012 Allur ferill málsins

    Minnisblað frá mannvirkjastjóra og framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna dags. 6. júlí 2010 um niðurrif á frystihúsinu á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn kynnt málið.

  4. 4. Merking safnahússins í Neskaupstað

    Mál 1007086 Allur ferill málsins

    Erindi frá forstöðumanni Safnastofnunar Fjarðabyggðar dags. 5. júlí 2010, þar sem leitað er eftir heimild eiganda safnahússins á Norðfirði til merkja húsið í samræmi við framlagðar hugmyndir. Einnig er leitað eftir því hvort eigandi hússins geti kostað merkinguna. Hafnarstjórn samþykkir að verða við erindinu.

  5. 5. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 0905163 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram og ræða við íbúasamtökin á Norðfirði.

  6. 6. Framtíð og uppbygging Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1005192 Allur ferill málsins

    Gunnar Jónsson formaður stjórnar Sjóminjasafns Austurlands sat þennan lið fundarins.  Hann fór yfir tildrög erindis frá stjórn Sjóminjasafnsins og vísað var til hafnarstjórnar frá bæjarráði og var frestað á síðasta fundi hafnarstjórnar.  Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og verður málið skoðað frekar þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.Gunnari var þökkuð koman.