Hafnarstjórn, fundur 74
28. september 2010, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 214 liður 21
Fundargerð lögð fram.
Bæjarstjórn, fundur 78 liður 6
Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Til fundarins er mættur Björn Ingi Knútsson. Hafnarstjórn bauð hann velkominn á fundinn. Björn gerði grein fyrir vinnu sinni við verkefni að undirbúningi fyrir komu skemmtiferðaskipa til Fjarðabyggðar. Birni var síðan þökkuð koman.
-
2. Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði
Mál 1009007 Allur ferill málsins
Kynnt verðkönnun á rifi og urðun á SÚN-bryggjunni á Norðfirði. Fjórir skiluðu inn verðum og var lægsta tilboðið frá Guðröði Hákonarsyni upp á 3.037.500 kr. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
3. Aðstaða í smábátahöfninni á Norðfirði
Mál 1008125 Allur ferill málsins
Bréf til hafnarstjórnar dags. 25. ágúst 2010 frá Kristni Ívarssyni þar sem óskað er heimildar til að grafa niður festur fyrir bát hans í uppsátrinu við smábátahöfnina á Norðfirði. Í bréfinu er einnig bent á þörf fyrir dýpkun smábátahafnarinnar á Norðfirði. Hafnarstjórn þakkar bréfritara fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að vinna málin áfram og skoði festamál við hinar smábátahafnirnar líka.
-
4. Merking safnahússins í Norðfirði
Mál 1007086 Allur ferill málsins
Ný útfærsla á merkingu Safnahússins kynnt og afgreiðsla eigna- skipulags- og umhverfisnefndar á henni á fundi sínum 21. september sl.
-
5. Listaverkakaup við höfnina á Reyðarfirði
Mál 1009038 Allur ferill málsins
Bréf dags. 3. september 2010 frá Ásdísi Jóhannsdóttur þar sem þess er farið á leit við hafnarstjórn, að hafnarstjórn kaupi listaverk eftir hana til að setja upp við höfnin á Reyðarfirði. Hafnarstórn þakkar Ásdísi fyrir boðið en telur ekki tímabært að svo stöddu að fara í listaverkakaup við höfnina.
-
6. Framhald fyrirspurnar frá hafnarstjórnarfundi 21. júlí 2010 um kræklingaeldi innan hafnarsvæði
Mál 1008076 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir athugun sinni á málinu. Hafnarstjórn bendir á að þar sem leyfi þarf fyrir lögnum kræklingalína verði eigandi línanna að sækja um tilskilin leyfi fyrir staðsetningu þeirra.
-
7. Móttaka skipa á Norðfirði
Mál 1008103 Allur ferill málsins
Erindi frá hafnsögumanni Fjarðabyggðarhafna dags. 21. ágúst 2010 um stærð skipa sem komast inn í Norðfjarðarhöfn. Hafnarstjórn kynnt málið.
-
8. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði
Mál 0905163 Allur ferill málsins
Kynnt minnisblað frá fundum með fulltrúum úr stjórn íbúasamtakanna á Norðfirði og hugmyndir sem komu fram á þeim fundum. Hafnarstjórn þakkar fyrir ábendingarnar og nýjar hugmyndir en ítrekar að hafnarstjórn er að fara í endurgerð á gamalli bryggju og verði unnið deiliskipulag fyrir bryggjusvæðið þar sem að menn geta haft aðkomu að endanlegri mótun svæðisins.
-
9. Fjárhagsáætlun 2011
Mál 1009099 Allur ferill málsins
Farið var yfir stöðu framkvæmda ársins 2010 og hafinn undirbúningur að fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2011. Hafnarstjórn samþykkti að láta steypa landstöpulinn í smábátahöfnina á Reyðarfirði, jafnframt samþykkti hafnarstjórn að heimila framkvæmdastjóra að ganga til samninga um framleiðslu og verð á tveim flotbryggjum og sex fingrum. Gert er ráð fyrir að þetta rúmist innan núgildandi framkvæmdaáætlunar. Móttekið bréf frá bæjarráði dags. 24. september 2010 varðandi fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2011. Umfjöllun um fjárhagsáætlun verður tekið fyrir á sér fundi þriðjudaginn 5. október n.k.