Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 78

7. október 2010, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 213

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman. Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga1007146
    2. 1.2 Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka1009030
    3. 1.3 Ný skipulagsreglugerð1009120
    4. 1.4 Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði1008096
    5. 1.5 Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni1009083
    6. 1.6 Viðhald á félagsaðstöðu fyrir unglinga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði1008046
    7. 1.7 Samstarf á Austurlandi1009074
    8. 1.8 Skipan nefndarmanns í Heilbrigðisnefnd Austurlands1009153
    9. 1.9 Fjárhagsáætlun 20111009099
  2. 2. Bæjarráð - 214

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman. Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.  Ályktun bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og stærstu fyrirtækja sveitarfélagsins gegn áformum um stórfelldan niðurskurð í helibrigðismálum á Austurlandi. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar og fyrirtæki innan sveitarfélagsins, Alcoa-Fjarðaál, Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan, Eskja, Launafl og VHE mótmæla harðlega boðuðum niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. Boðaður er 22,1 %  niðurskurður á heildarframlögum til HSA og þar af 52 % niðurskurður á sjúkrasviði stofnunarinnar sem koma mun mjög harkalega niður á starfsemi Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað (FSN) og lama starfsemi þess.  Í Fjarðabyggð verður til fjórðungur gjaldeyristekna þjóðarinnar innan hinna sterku fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi  en  taka verður tillit til þessarar miklu starfsemi og öryggis starfsmanna þeirra. Eitt af lykilatriðum í þeirri ákvörðun Alcoa  að reisa álver sitt á Reyðarfirði var nálægð við sjúkrahúsið í Neskaupstað og öflug heilsugæsla í fjórðungnum.   Verði af þessum aðgerðum ber að hafa í huga þær vegalengdir sem íbúar Austurlands munu þurfa að leggja á sig til að sækja sjúkrahúsþjónustu til Akureyrar og Reykjavíkur en þær munu  veikja verulega öryggissjónarmið innan fjórðungsins að ótöldum þeim hundruðum sjómanna sem stunda veiðar út af Austurlandi.. Þá sé horft til náttúruhamfara sem, eins og dæmin sýna,  hafa skollið á byggðarlögum. Má í því sambandi nefna snjóflóðin í Neskaupstað 1974.  Niðurskurðaráform stjórnvalda munu án nokkurs vafa leiða til aukins atvinnuleysis á Austurlandi, meðal annars í kvennastörfum sem skortur er á hér um slóðir, og fýsileiki svæðisins til búsetu og atvinnurekstrar minnkar til muna.  Því skora áðurnefndir aðilar á heilbrigðisráðherra að endurskoða boðuð niðurskurðaráform. Alþingismenn Norðausturkjördæmis eru hvattir til að beita sér fyrir endurskoðun á fjárheimildum til HSA eins og þau liggja nú fyrir. Ályktun samþykkt með 9 atkvæðum.  Liður 2.17. - Ráðningarsamningur við bæjarstjóra - borinn upp sérstaklega og samþykktur með 9 atkvæðum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fundargerð samþykkt að öðru leyti af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011 - Bæjarráð1009132
    2. 2.2 Edduborgarreiturinn Eskifirði - umgengni0909044
    3. 2.3 Lóðarframkvæmdir við Breiðablik1009185
    4. 2.4 Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Alcoa Fjarðaál1008079
    5. 2.5 Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar1002098
    6. 2.6 Aðalfundur HAUST bs. 20101009034
    7. 2.7 Ráðstefna um almannavarnir sveitarfélaga 21.október 2010 á Grand Hótel Reykjavík1009215
    8. 2.8 Hættumat fyrir Oddsskarð1009201
    9. 2.9 Árgjöld sveitarfélaga til Avinnuþróunarsjóðs Austurlands1009205
    10. 2.10 Aðalfundur Raflagna Austurlands 16.september 20101009055
    11. 2.11 Kynningarfundur vegna rannsókna á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda1009218
    12. 2.12 Fyrirspurn um Samband sveitarfélaga á Austurlandi og Fjarðabyggð1009220
    13. 2.13 Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 20101009073
    14. 2.14 Íslandshátíð í Gravelines1006248
    15. 2.15 Hluthafafundur 1.október 2010 í Lánasjóði sveitarfélaga1009138
    16. 2.16 Samningur við bæjarstjóra1010026
    17. 2.17 Beiðni um styrk vegna útgáfu á geisladisk1010015
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Kynning á innleiðingu "grænu tunnunnar"
    2. 3.2 Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 -2028
    3. 3.3 Gerð deiliskipulags fyrir sumarbústaði.
    4. 3.4 Aðgengismál við sundlaug Norðfjarðar
    5. 3.5 Gilsbakkalækur, grenndarkynning
    6. 3.6 750 Skólavegur 36a-Umsókn um breytingu á lóð
    7. 3.7 Merking safnahússins í Norðfirði
    8. 3.8 Ósk um uppsetingu á skilti
    9. 3.9 Beiðni um framkvæmdir við hesthúsabyggð á Fáskrúðsfirði
    10. 3.10 Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði
    11. 3.11 Samþykkt um katta-hunda- og annara gæludýra
    12. 3.12 Endurnýjun á aðveitulögn Rafveitu Reyðarfjarðar
    13. 3.13 Egilsbúð, klæðning utanhúss
    14. 3.14 Franski spítalinn við Hafnarnes
    15. 3.15 Endurskoðun á umferðasamþykkt
    16. 3.16 Samningur um veghald þjóðvega í þéttbýli 2010
    17. 3.17 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2011-Eigna-skipulags- og umhverfinefnd
    18. 3.18 Fjárhagsáætlun 2011 - Fjárfestingaáætlun
    19. 3.19 Landbúnaðarnefnd - 2
  4. 4. Atvinnu- og menningarnefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson. Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  5. 5. Félagsmálanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  6. 6. Hafnarstjórn - 74

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa1005131
    2. 6.2 Verðkönnun á rifi og urðun SÚN-bryggjunnar á Norðfirði1009007
    3. 6.3 Aðstaða í smábátahöfninni á Norðfirði1008125
    4. 6.4 Merking safnahússins í Norðfirði1007086
    5. 6.5 Listaverkakaup við höfnina á Reyðarfirði1009038
    6. 6.6 Framhald fyrirspurnar frá hafnarstjórnarfundi 21. júlí 2010 um kræklingaeldi innan hafnarsvæði1008076
    7. 6.7 Móttaka skipa á Norðfirði1008103
    8. 6.8 Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði0905163
    9. 6.9 Fjárhagsáætlun 20111009099
  7. 7. Barnaverndarnefnd - fundur nr. 2

    Mál 1010013 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls. Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.