Bæjarráð, fundur 213
21. september 2010, kl. 16:00 til 18:00, í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Jóhann Eðvald Benediktsson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 78 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 213 og nr. 214 teknar fyrir saman. Til máls tóku Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Mál 1007146 Allur ferill málsins
Formaður bauð Svanhvíti Aradóttir starfsmann svæðisskrifstofunnar um málefni fatlaðra velkomna á fundinn. Svanhvít fór yfir stöðuna á málefnum fatlaðra frá sínu sjónarhorni.
-
2. Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka
Mál 1009030 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu, dagsett 13. september 2010, um framlög nokkura sveitarfélaga til stjórnmálaflokka. Farið yfir minnisblaðið og því vísað til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
-
3. Ný skipulagsreglugerð
Mál 1009120 Allur ferill málsins
Bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 10.september 2010, þar sem óskað er eftir ábendingum frá sveitarfélaginu vegna nýrrar reglugerðar. Lagt fram til kynningar og vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
4. Lokun Landsbankans á Stöðvarfirði
Mál 1008096 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað félagsþjónustusviðs, dagsett 17. september 2010, vegna beiðnar Landsbankans um að fá aðstöðu í húsnæði eldri borgara á Stöðvafirði. Félagsþjónustusvið gerir ekki athugasemdir við að Landsbankinn fái aðstöðu í húsnæðinu. Bæjarráð samþykkir að allar fjármálastofnanir sem þess óska fái aðstöðu í húsnæðinu til að þjónusta eldri borgara með bankaþjónustu fram að áramótum til reynslu, í samráði við félagsmálasviðs. Bæjarráð hvetur jafnframt fjármálastofnanir til að leita annarra leiða til að þjónusta alla íbúa Stöðvarfjarðar svo sem með samþættingu við aðra þjónustuaðila í byggðarkjarnanum.
-
5. Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
Mál 1009083 Allur ferill málsins
Minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 21. september 2010, þar sem farið er yfir áætlaðan kostnað vegna loftræstikerfis í húsinu. Bæjarráð getur ekki, í ljósi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, orðið við beiðni um styrk vegna kaupa og uppsetningu loftræstikerfis og hafnar því erindinu.
-
6. Viðhald á félagsaðstöðu fyrir unglinga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Mál 1008046 Allur ferill málsins
Minnisblað fræðslu- og frístundasviðs, dagsett 7.september 2010, um húsnæði og búnað félagsmiðstöðvanna í Fjarðabyggð. Farið yfir minnisblaðið og því vísað til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
-
7. Samstarf á Austurlandi
Mál 1009074 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að kaupa 10 eintök að bókinni um Samstarf á Austurlandi.
-
8. Skipan nefndarmanns í Heilbrigðisnefnd Austurlands
Mál 1009153 Allur ferill málsins
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi aðila í heilbrigðisnefnd. Aðalmaður Valdimar O. Hermannsson sem jafnframt er formaður HAUST, varamaður hans er Elvar Jónsson. Fulltrúi náttúruverndarnefnda er Krístín Ágústdóttir og varamaður hennar er Eiður Ragnarsson. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
9. Fjárhagsáætlun 2011
Mál 1009099 Allur ferill málsins
Tillaga bæjarstjóra og fjármálastjóra til bæjarráðs vegna tilmæla til nefnda vegna hagræðingaraðgerða samhliða fjárhagsáætlunarferli:Á fundi bæjarráðs nr. 212 þann 14. september s.l. var fjármálastjóra og öðrum stjórnendum falið að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins og stofnana þess samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Ákveðið hefur verið að haldnir verði tvöfaldir bæjarráðsfundir 13. og 20. október n.k. í tengslum við vinnu við hagræðingaraðgerðir. Á fyrri fundinum verði kynntar tillögur stjórnenda og á seinni fundinum teknar ákvarðanir um hagræðingaraðgerðir. Þeim tilmælum er beint til allra nefnda að þær geri bæjarráði grein fyrir megináherslum og hugmyndum varðandi rekstur viðkomandi málaflokks m.t.t. væntra hagræðingaraðgerða. Gert er ráð fyrir að formenn nefnda, ásamt viðkomandi sviðsstjóra, verði viðstaddir þegar farið verður yfir hagræðingartillögur. Bæjarráð samþykkir tillöguna.