Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2010

Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni

Mál 1009083 Fyrst á dagskrá 14. september 2010, síðast 7. október 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Menning og söfn

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2010

    Bæjarráð, fundur 212 liður 12

    27.september verður haldin hátíð í Kirkju- og menningarmiðstöðinni vegna 10 ára afmælis miðstöðvarinnar.  Komið hefur fram ósk frá sóknarpresti um að Fjarðabyggð komi að því að fullklára loftræstikerfi í húsinu í tilefni af afmælinu. Vísað til mannvirkjastjóra með beiðni um athugun á kostnaði.

  2. Bæjarráð, fundur 213 liður 5

    Minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 21. september 2010, þar sem farið er yfir áætlaðan kostnað vegna loftræstikerfis í húsinu. Bæjarráð getur ekki, í ljósi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, orðið við beiðni um styrk vegna kaupa og uppsetningu loftræstikerfis og hafnar því erindinu.

  3. Bæjarstjórn, fundur 78 liður 1.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 213“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is