Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 212

14. september 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 77 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 211 og 212 teknar til umræðu saman. Til máls tóku Helga Jónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Guðmundur Þorgrímsson. Fundargerð bæjarráðs nr. 212 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundur með formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1008084 Allur ferill málsins

    Halldór Halldórson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sat þennan lið fundarins.  Halldór kynnti starfsemi sambandsins og fór yfir ýmislegt er snýr að hlutverki þess, hlutverki sveitarfélaga og sveitarstjórnarmanna, skipulag sambandsins og helstu verkefni.  Halldór ræddi einnig um væntanlega yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og fór yfir fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga.

  2. 2. Húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði

    Mál 1009021 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu fulltrúi Þróttar, mannvirkjastjóri, æskulýðs- og íþróttafulltrúi og skólastjóri Nesskóla.  Rætt um húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði.  Fram kom hjá mannvirkjastjóra að nokkur kostnaður sé samhliða því að útbúa efri hæð Sigfúsarhúss fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar Nesskóla og Þróttar gera ekki athugasemdir við að Þróttur nýti Mýrina fyrir sitt starf svo framarlega sem forgangur skólans að Mýrinni sé tryggður.  Þróttur þarf fyrst og fremst að nýta húsnæði fyrir sína starfsemi seinni hluta dags og á kvöldin þannig að ekki ættu að verða árekstrar við starfsemi skólans í Mýrinni.   Mannvirkjastjóra falið að skoða málið nánar í samráði við Nesskóla og Þrótt og leggjaminnisblað fyrir bæjarráð.

  3. 3. Tekjuáætlun 2011 og drög að úthlutun fjárhagsramma

    Mál 1009024 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins.  Rætt um forsendur tekjuáætlunar ogúthlutun fjárhagsramma.  Fjármálastjóra falið að úthluta fjárhagsrömmum en felur fjármálastjóra og stjórnendum jafnframt að leita allra leiða til hagræðingar.  Haldnir verða fundir með stjórnendum á næstu dögum.

  4. 4. Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka

    Mál 1009030 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu frá 13.september með upplýsingum um framlög nokkurra sveitarfélaga til stjórnmálaflokka.  Umræðu frestað.

  5. 5. Niðurstaða ársreiknings Fjarðabyggðar fyrir árið 2009

    Mál 1009033 Allur ferill málsins

    Bréf eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga frá 31.ágúst og svarbréf bæjarstýru frá 14.september.

  6. 6. Aðalfundur Raflagna Austurlands 16.september 2010

    Mál 1009055 Allur ferill málsins

    Aðalfundur verður haldinn að Sævarenda 2 Stöðvarfirði 16.september kl.14:00.  Steinþór Pétursson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  7. 7. Velferðarvaktin í upphafi skólastarfs

    Mál 1009041 Allur ferill málsins

    Bréf Velferðarvaktarinnar frá 1.september er varðar líðan barna í grunnskólum lagt fram til kynningar og vísað til fræðslustjóra.

  8. 8. Fundur sveitarstjórnar með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2010

    Mál 1009073 Allur ferill málsins

    Boðið er til 15 - 20 mínútna funda sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis 27. - 29.september nk.  Forstöðumanni falið að kanna með fjarfund snemma að morgni 29.september.

  9. 9. Frá skíðadeild Fjarðabyggðar um styrk vegna kaupa á skíðagöllum

    Mál 1009082 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni skíðadeildar Fjarðabyggðar frá 9.september vegna merkinga á skíðagöllum.  Bæjarráð vísar beiðni til upplýsinga- og kynningarfulltrúa.

  10. 10. Franski spítalinn við Hafnarnes

    Mál 0910066 Allur ferill málsins

    Lagt fram afsal ásamt tillögu bæjarstýru um að fela bæjarstýru afsal gamla læknisbústaðarins á Fáskrúðsfirði til Minjaverndar. Samþykkt.

  11. 11. Breytingar á stjórnkerfi og stjórnskipulagi Fjarðabyggðar

    Mál 1006231 Allur ferill málsins

    Bæjarstýra ræddi stjórnsýslu á mannvirkja- og umhverfissviði og stjórnsýslu- og atvinnusviði.  Vísað til bæjarstjóra til frekari vinnslu með hlutaðeigandi stjórnendum.

  12. 12. Loftræstikerfi í Kirkju- og menningarmiðstöðinni

    Mál 1009083 Allur ferill málsins

    27.september verður haldin hátíð í Kirkju- og menningarmiðstöðinni vegna 10 ára afmælis miðstöðvarinnar.  Komið hefur fram ósk frá sóknarpresti um að Fjarðabyggð komi að því að fullklára loftræstikerfi í húsinu í tilefni af afmælinu. Vísað til mannvirkjastjóra með beiðni um athugun á kostnaði.

  13. 13. Atvinnu- og menningarnefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  15. 15. Fræðslu- og frístundanefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  16. 16. Félagsmálafundur nr. 1

    Mál 1009063 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.

  17. 17. Barnaverndarnefnd - fundur nr. 1

    Mál 1009096 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram.