Húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði
Mál 1009021 Fyrst á dagskrá 7. september 2010, síðast 16. september 2010. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurByggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Bæjarráð, fundur 211 liður 1
Fundur bæjarráðs með Félagi eldri borgara Norðfirði 6.september 2010
Þennan lið fundarins sátu formaður Félags eldri borgara á Norðfirði ásamt fimm öðrum fulltrúum félagsins. Félagið hefur hug á að veggur milli stofa á neðri hæð verði rifinn til að stækka rýmið þannig að hægt sé að ná til stærri hóps í einu en unnt er með núverandi herbergjaskipan. Fjórir viðburðir á vegum félagsins á ári hverju rúmist ekki í húsnæðinu. Félagið er ekki með afnot af efri hæð hússins en íþróttafélögin hafa haft afnot af herbergjum á efri hæð. Bent var á að félagið geti fengið afnot af sal Nesskóla vegna stærri viðburða. Fram kom að lagfæra þurfi gólf eldhússins, ganga frá því og þrífa húsið áður en starfsemi vetrarins hefst upp úr miðjum september. Verður þeirri ábendingu komið á framfæri við mannvirkjasvið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarráð óskar eftir að fulltrúi Þróttar, æskulýðs- og íþróttafulltrúi, skólastjóri Nesskóla og mannvirkjastjóri komi á næsta fund bæjarráðs. Fulltrúar Félags eldri borgara komu þeirri ábendingu á framfæri að koma þurfi upp lyftu í Safnahúsinu í Neskaupstað.
-
Bæjarráð, fundur 212 liður 2
Þennan lið fundarins sátu fulltrúi Þróttar, mannvirkjastjóri, æskulýðs- og íþróttafulltrúi og skólastjóri Nesskóla. Rætt um húsnæðismál Félags eldri borgara Norðfirði. Fram kom hjá mannvirkjastjóra að nokkur kostnaður sé samhliða því að útbúa efri hæð Sigfúsarhúss fyrir starfsemi félagsins. Fulltrúar Nesskóla og Þróttar gera ekki athugasemdir við að Þróttur nýti Mýrina fyrir sitt starf svo framarlega sem forgangur skólans að Mýrinni sé tryggður. Þróttur þarf fyrst og fremst að nýta húsnæði fyrir sína starfsemi seinni hluta dags og á kvöldin þannig að ekki ættu að verða árekstrar við starfsemi skólans í Mýrinni. Mannvirkjastjóra falið að skoða málið nánar í samráði við Nesskóla og Þrótt og leggjaminnisblað fyrir bæjarráð.
-
Bæjarstjórn, fundur 77 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 211“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Fundur bæjarráðs með Félagi eldri borgara Norðfirði 6.september 2010