Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 211

7. september 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 77 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 211 og 212 teknar til umræðu saman. Til máls tóku Helga Jónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O. Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir og Guðmundur Þorgrímsson. Fundargerð bæjarráðs nr. 211 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundur bæjarráðs með Félagi eldri borgara Norðfirði 6.september 2010

    Mál 1009021 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu formaður Félags eldri borgara á Norðfirði ásamt fimm öðrum fulltrúum félagsins. Félagið hefur hug á að veggur milli stofa á neðri hæð verði rifinn til að stækka rýmið þannig að hægt sé að ná til stærri hóps í einu en unnt er með núverandi herbergjaskipan.  Fjórir viðburðir á vegum félagsins á ári hverju rúmist ekki í húsnæðinu.  Félagið er ekki með afnot af efri hæð hússins en íþróttafélögin hafa haft afnot af herbergjum á efri hæð.  Bent var á að félagið geti fengið afnot af sal Nesskóla vegna stærri viðburða. Fram kom að lagfæra þurfi gólf eldhússins, ganga frá því og þrífa húsið áður en starfsemi vetrarins hefst upp úr miðjum september.  Verður þeirri ábendingu komið á framfæri við mannvirkjasvið. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarráð óskar eftir að fulltrúi Þróttar, æskulýðs- og íþróttafulltrúi, skólastjóri Nesskóla og mannvirkjastjóri komi á næsta fund bæjarráðs. Fulltrúar Félags eldri borgara komu þeirri ábendingu á framfæri að koma þurfi upp lyftu í Safnahúsinu í Neskaupstað.

  2. 2. Beiðni til bæjarráðs vegna Egilsbúðar

    Mál 1002136 Allur ferill málsins

    Jón Hilmar Kárason f.h. Ölvers rekstraraðila Egilsbúðar sat þennan lið fundarins.  Lagður fram óendurskoðaður ársreikningur Ölvers ehf. vegna ársins 2009.   Rætt um rekstur Egilsbúðar. Rekstraraðili mun koma inn á fund bæjarráðs um miðjan október og leggja fram rekstrar- og viðskiptaáætlun fyrir seinni hluta ársins og vegna 2011.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  3. 3. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 2008-10-02-1590 Allur ferill málsins

    Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins. Lögð fram brunavarnaráætlun Slökkviliðs Fjarðabyggðar. Upphafleg drög að brunavarnaráætlun voru gerð 2006 og eina athugasemdin sem þá var gerð af Brunamálastofnun var að skipurit vantaði.  Hinsvegar gerði Brunamálastofnun talsverðar athugasemdir við áætlun sem send var til umsagnar í október 2009.  Hefur verið farið yfir þær athugasemdir og verður endurskoðuð áætlun send Brunamálastofnun til umsagnar í október eftir afgreiðslu bæjarráðs.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarráð óskar umsagnar fyrir fyrsta fund sinn í október um framkvæmdahlutann í brunavarnaráætlun frá fjármálastjóra og mannvirkjastjóra.Eftir umsögn Brunamálastofnunar fer áætlunin fyrir bæjarstjórn til samþykktar. Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra að endurnýja samning um brunavarnir og slökkvilið við Breiðdalshrepp áður en en brunavarnaáætlun verður afgreidd í bæjarráði.

  4. 4. Kostnaður við menntun sjúkraflutningamanns

    Mál 1008134 Allur ferill málsins

    Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins.  Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra frá 7.september þar sem fram kemur að fengist hefur framlag úr símenntunarsjóði Fjarðabyggðar og af öðrum fjárhagsliðum slökkviliðsins til menntunar sjúkraflutningamanns og því er ósk um frekari fjárheimild frá bæjarráði afturkölluð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  5. 5. Skipulag almannavarna í héraði

    Mál 1009026 Allur ferill málsins

    Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins.  Lagt fram skipurit almannavarna í héraði og yfirlit lögreglunnar á Eskifirði frá 2003 yfir almannavarnar-nefnd, aðgerðarstjórn og vettvangsstjórnir.  Stjórnsýslulega nefndin sem fjallar um almannavarnir er á ábyrgð Lögreglustjórans á Eskifirði. Bæjarráð felur slökkviliðsstjóra, í samráði við yfirlögregluþjón, að fara yfir með hvaða hætti samstarfi aðila gæti best verið háttað og hvernig verkaskipting á að vera þegar almannavarnarástand kemur upp.  Bæjarráð óskar eftir að umsögn slökkviliðsstjóra í næsta mánuði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  6. 6. Frumkvöðlasmiðja Fjarðabyggðar

    Mál 1009025 Allur ferill málsins

    Hafliði H. Hafliðason framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands sat þennan lið fundarins.  Framlagður samandreginn ársreikningur Frumkvöðlasmiðju Fjarðabyggðar fyrir árin 2004 - 2009 en uppsafnaður afgangur af Frumkvöðlasmiðjunni er um kr. 3,6 milljónir.  Bæjarráð vísar ákvörðun um ráðstöfun fjárins til atvinnu- og menningarnefndar.  Hafliði ræddi hugmynd um að fulltrúi frá Þróunarfélaginu fái áheyrnarsetu í atvinnu- og menningarnefnd. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  7. 7. Tekjuáætlun 2011 og drög að úthlutun fjárhagsramma

    Mál 1009024 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir framlagða tekjuáætlun 2011 og drög að úthlutun fjárhagsramma.  Stefnt er á að úthluta fjárhagsrömmum í næstu viku. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  8. 8. Lokun póstafgreiðslu á Stöðvarfirði

    Mál 1008068 Allur ferill málsins

    Bréf Íslandspósts frá 2.september er varðar lokun póstafgreiðslu á Stöðvarfirði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarstýra gerði grein fyrir að Íslandspóstur sé tilbúinn í viðræður og að skoða alla möguleika með bænum þótt ekki verði haldið uppi póstafgreiðslu með óbreyttu sniði.  Bæjarráð fagnar  góðum undirtektum Íslandspósts og mun kalla til formlegra viðræðna við fyrirtækið síðar á árinu.

  9. 9. Greining á kostnaði vegna bókhalds- og endurskoðunarþjónustu

    Mál 1008129 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað fjármálastjóra frá 30.ágúst er varðar samantekt á kostnaði Fjarðabyggðar vegna bókhalds- og endurskoðunarþjónustu á árunum 2006 - 2009. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  10. 10. Samvinna vinabæja Fjarðabyggðar

    Mál 1002098 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa frá 6.september er varðar vinabæjarfund í Fjarðabyggð  Bæjarráð samþykkir, í ljósi svara vinabæjanna, að halda vinabæjarfundinn í Fjarðabyggð 5.- 7.október nk.  Forseta bæjarstjórnar og upplýsinga- og kynningarfulltrúa falið að undirbúa framkvæmd fundarins. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  11. 11. Íbúafundur á Fáskrúðsfirði 7.september 2010

    Mál 1009029 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að dagskrá íbúafundar á Fáskrúðsfirði sem haldinn verður í kvöld kl.20:00 í skólamiðstöðinni Fáskrúðsfirði. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  12. 12. Breytingar á reglum um framlög til stjórnmálaflokka

    Mál 1009030 Allur ferill málsins

    Samfara væntanlegum breytingum á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra nr. 162/2006 þarf að endurskoða reglur Fjarðabyggðar um framlög til stjórnmálaflokka. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að kanna hvernig önnur sveitarfélög munu bregðast við breytingu á lögunum og óskar eftir umsögn fyrir næsta fund.  Forstöðumanni jafnframt falið að ganga frá uppgjöri við framboðin þrjú á grundvelli núverandi reglna.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  13. 13. Niðurgreiðslur á raforku til húshitunar

    Mál 1008139 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ályktun SSNV frá ársþingi er haldið var 27. - 28.ágúst sl.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  14. 14. Íslandshátíð í Gravelines

    Mál 1006248 Allur ferill málsins

    Bæjarráð sammála um að fulltrúar bæjarins á Íslandshátíð í Gravelines 24. - 27.september verði bæjarstjóri auk annarra fulltrúa.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  15. 15. Aðalfundur SSA 24. og 25. september 2010 á Breiðdalsvík

    Mál 1009013 Allur ferill málsins

    Lögð fram dagskrá aðalfundar SSA 2010 sem haldinn verður á Breiðdalsvík 24. og 25.september.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  16. 16. Fundargerð 776. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1009023 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  17. 17. Niðurstaða ársreiknings Fjarðabyggðar fyrir árið 2009

    Mál 1009033 Allur ferill málsins

    Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 31.ágúst lagt fram. Tekið fyrir á næsta fundi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  18. 18. Aðalfundur HAUST bs. 2010

    Mál 1009034 Allur ferill málsins

    Fundargerð lögð fram til kynningar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  19. 19. Hafnarstjórn - Fundur nr.73

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />