Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 210

31. ágúst 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 76 liður 6

    Til máls tóku ( fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu saman).Fundargerð fram lögð og kynnt.

Dagskrá

  1. 1. Kostnaður við menntun sjúkraflutningamanns

    Mál 1008134 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra frá 27.ágúst þar sem óskað er eftir fjárveitingu vegna menntunar sjúkraflutningamanns.  Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar, óskar eftir að slökkviliðsstjóri komi inn á fund og leggi einnig fram brunavarnaráætlun.

  2. 2. Endurnýjun á öldubrjótum

    Mál 0909137 Allur ferill málsins

    Bréf sunddeildar Þróttar frá 22.ágúst þar sem óskað er eftir að öldubrjótar í sundlaug Norðfjarðar verði endurnýjaðir.  Sambærilegu erindi var á síðasta ári vísað til fjárhagsáætlunar 2010. Samkvæmt upplýsingum frá æskulýðs- og íþróttafulltrúa er ekki fjármagn á áætlun æskulýðsmála til að endurnýja öldubrjótana. Beiðni um kaup á öldubrjótum samþykkt og vísað til fjárhagsáætlunar 2011.

  3. 3. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Mál 0903017 Allur ferill málsins

    Lögð fram bráðabirgðaniðurstaða kærunefndar útboðsmála frá 24.ágúst en samkvæmt henni er samningsferli á grundvelli hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, sbr. útboð nr. 14838, stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

  4. 4. Beitingarskúrar og geymsla við Hafnarbraut 51 740

    Mál 1008118 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra frá 30.ágúst.  Bæjarráð samþykkir að gengið verði frá samkomulagi við eigendur sbr. tillögur í minnisblaði.

  5. 5. Niðurgreiðslur á raforku til húshitunar

    Mál 1008139 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur formanns samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 27.ágúst er varðar niðurgreiðslur á raforku til húshitunar, lagður fram til kynningar, en í póstinum er hvatt til að umræða um málið verði tekin á vettvangi aðalfunda landshlutasamtaka.

  6. 6. Merkingar á tjaldstæðum

    Mál 1008140 Allur ferill málsins

    Bæjarráð óskar eftir að mannvirkjasvið hugi að merkingum á tjaldstæðum í Neskaupstað en vísbendingar eru um að ferðamenn hafi átt í vandræðum með að finna tjaldstæðin.

  7. 7. Aðalfundur 2010 - Fjarðaferðir

    Mál 1008101 Allur ferill málsins

    Rætt var um aðalfund Fjarðaferða sem haldinn var 28.ágúst.

  8. 8. Atvinnumál á Stöðvarfirði

    Mál 1007205 Allur ferill málsins

    Bæjarstýra gerði grein fyrir fundi með forstjóra Íslandspósts og formanni samgönguráðs. Bæjarráð felur atvinnu- og menningarnefnd að láta kanna möguleika á að starfrækja upplýsingamiðstöð á Stöðvarfirði.

  9. 9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.

  10. 10. Fræðslu- og frístundanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð lögð fram.