Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði - Hulduhlíð

Mál 0903017 Fyrst á dagskrá 23. júní 2009, síðast 7. apríl 2016. 26 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurVelferð

Í hnotskurn

Málið snýst um undirbúning, hönnun og byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Eskifirði, að Dalbraut 1, í samstarfi við ríkið og Framkvæmdasýslu ríkisins114. Síðasta skrefið í gögnunum er að bæjarstjórn samþykkti samkomulag við Framkvæmdasýslu ríkisins um umframkostnað við bygginguna25.

Staðan

Bæjarstjórn samþykkti samkomulag við Framkvæmdasýslu ríkisins um umframkostnað við byggingu hjúkrunarheimilisins með 9 atkvæðum 7. apríl 201625.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna. Leiðin er löng, dragðu hana til hliðar.
  1. 2009

    Bæjarráð, fundur 153 liður 4

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Fulltrúar í þarfagreiningarhópi kynntu fyrirhugað fyrirkomulag, stærð og tímasetningar verkþátta, og fram kom að bæjarstýra hefði undirritað samning um frumathugun og að heildarkostnaður væri áætlaður um 600 milljónir.

    Endursögn gervigreindar

    Svanbjörg Pálsdóttir og Jóhann Eðvald Benediktsson fulltrúar í þarfagreiningarhópi um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði sátu þennan lið fundarins en bæjarstýra undirritaði í gær samning vegna frumathugunar um nýtt hjúkrunarheimili.Farið var yfir hvernig fyrirkomulag heimilisins er hugsað á þessu stigi, stærð, tímasetningar verkþátta og næstu skref.  Heildarkostnaður er áætlaður um 600 milljónir.

  2. 2010

    Bæjarráð, fundur 202 liður 13

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Lagt var fram minnisblað mannvirkjastjóra um að dómnefnd í hönnunarsamkeppni um heimilið hefði lokið störfum og að verðlaun yrðu afhent 9. júlí.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 2.júlí vegna hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði en dómnefnd hefur lokið störfum.  Verðlaunaafhending fer fram föstudaginn 9.júlí kl.17:00 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni.

  3. Bæjarráð, fundur 203 liður 12

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Dómnefndarálit í hönnunarsamkeppninni var lagt fram til bókunar.

    Endursögn gervigreindar

    Lagt fram til bókunar dómnefndarálit vegna hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði.

  4. Bæjarstjórn, fundur 75 liður 1.13

    Fundargerðin „Bæjarráð - 202“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 75 liður 2.12

    Fundargerðin „Bæjarráð - 203“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. Bæjarráð, fundur 210 liður 3

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Lögð var fram bráðabirgðaniðurstaða kærunefndar útboðsmála um að samningsferli á grundvelli hönnunarsamkeppninnar væri stöðvað þar til endanlega yrði skorið úr kæru.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram bráðabirgðaniðurstaða kærunefndar útboðsmála frá 24.ágúst en samkvæmt henni er samningsferli á grundvelli hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, sbr. útboð nr. 14838, stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.

  7. Bæjarstjórn, fundur 76 liður 6.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 210“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  8. Bæjarráð, fundur 217 liður 8

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Kynntur var úrskurður kærunefndar útboðsmála sem felldi úr gildi ákvörðun Framkvæmdasýslunnar um að semja við Einrúm ehf., og bæjarráð samþykkti tillögu mannvirkjastjóra um að ganga til samninga við Studio Strik, sem hlaut 2. sæti í hönnunarsamkeppninni.

    Endursögn gervigreindar

    Minnisblað mannvirkjastjóra frá 19.október er varðar úrskurð kærunefndar útboðsmála frá 14.október vegna hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð.  Úrskurðarnefndin fellir úr gildi ákvörðun kærða, Framkvæmdasýslunnar, um að semja við Einrún ehf. á grundvelli hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð sbr. útboð nr. 14838. Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra en samkvæmt henni er, eftir samráð við Framkvæmdasýsluna og félagsmálaráðuneytið, lagt til að gengið verði til samninga við Studio-Strik er hlaut 2.sætið í hönnunarsamkeppninni.

  9. Bæjarstjórn, fundur 79 liður 3.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 217“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  10. Bæjarráð, fundur 221 liður 5

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Bæjarráð staðfesti hönnunarsamning við Studio Strik að ósk mannvirkjastjóra.

    Endursögn gervigreindar

    Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Ósk mannvirkjastjóra um staðfestingu á hönnunarsamningi við Studio Strik.   Bæjarráð staðfestir samning.

  11. Bæjarstjórn, fundur 81 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 221“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  12. 2011

    Bæjarráð, fundur 238 liður 7

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Lögð var fram til kynningar stefna Einrúms ehf. á hendur íslenska ríkinu, Fjarðabyggð, Framkvæmdasýslu ríkisins og Studio Strik vegna hönnunarsamkeppninnar.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram til kynningar framlögð stefna Einrúms ehf. á hendur Íslenska ríkinu, Fjarðabyggð, Framkvæmdasýslu ríkisins, og Studio Strik vegna hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði.

  13. Bæjarráð, fundur 252 liður 15

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Bæjarráð samþykkti að fyrsta skóflustunga yrði tekin 18. ágúst, og lagt var fram bréf velferðarráðuneytis til fjármálaráðuneytis með ósk um heimild til útboðs á byggingunni.

    Endursögn gervigreindar

    Tillaga mannvirkjastjóra um að fyrsta skóflustunga, að nýju hjúkrunarheimili á Eskifirði, verði tekin 18.ágúst en þann dag árið 1989 var núverandi hjúkrunarheimili Hulduhlíðar tekið í notkun auk þess sem dagurinn er afmælisdagur Eskifjarðarkaupstaðar sem sameinaðist Fjarðabyggð 1998. Bæjarráð samþykkir að fyrsta skóflustunga verði tekin 18.ágúst.  Einnig lagt fram til upplýsinga bréf velferðarráðuneytis til fjármálaráðuneytis þar sem óskað er eftir heimild til útboðs á byggingu hjúkrunarheimilis á Eskifirði.

  14. Bæjarráð, fundur 254 liður 10

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Bæjarráð heimilaði Framkvæmdasýslu ríkisins að bjóða út byggingu heimilisins að Dalbraut 1, en ráðgert var að framkvæmdir hæfust haustið 2011 og lyki vorið eða sumarið 2013.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að heimila Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Velferðarráðuneytisins og Fjarðabyggðar að bjóða út byggingu á nýju hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð, staðsett að Dalbraut 1 á Eskifirði.  Ráðgert er að hefja framkvæmdir haustið 2011 og að þeim ljúki vor / sumar 2013.Jafnframt er mannvirkjastjóra heimilað að vinna að lóðarmálum til samræmis við minnisblað um lóðarmál fyrir hjúkrunarheimilið.

  15. Bæjarráð, fundur 261 liður 2

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Lögð var fram til kynningar umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins um áætlunargerð ásamt áætluðum dagsetningum útboðsins.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram til kynningar umsögn Framkvæmdasýslu ríkisins frá 28.september vegna áætlunargerðar fyrir nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði. Einnig lagðar fram áætlaðar dagsetningar í tengslum við útboðið.

  16. 2012

    Bæjarráð, fundur 276 liður 2

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Bæjarráð samþykkti verkkaupasamning milli Framkvæmdasýslu ríkisins og Fjarðabyggðar og fól bæjarstjóra að undirrita hann, en ákvörðun um töku tilboðs hafði verið tekin á fundi bæjarráðs nr. 268.

    Endursögn gervigreindar

    Verkkaupasamningur milli framkvæmdaaðila og verkkaupa, Framkvæmdasýslu ríkisins og Fjarðabyggðar, lagður fram til samþykktar.  Ákvörðun um töku tilboðs í byggingu hjúkrunarheimilisins var tekin á fundi bæjarráðs nr. 268. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  17. Bæjarstjórn, fundur 106 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 276“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  18. Bæjarráð, fundur 317 liður 5

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Lagt var fram minnisblað hönnuða og afstaða Velferðarráðuneytisins um að hönnunarforsendur gæfu ekki kost á breytingum í risrými, og málinu var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og til kynningar í félagsmálanefnd.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri. Lagt fram minnisblað hönnuða til Framkvæmdasýslu ríkisins og afstaða Velferðarráðuneytisins um að hönnunarforsendur gefi ekki kost á breytingum í risrými nýs hjúkrunarheimilis í samræmi við niðurstöður framkvæmdasýslu. Vísað til eigna-, skiplags- og umhverfisnefndar og til kynningar í félagsmálanefnd.

  19. Bæjarstjórn, fundur 124 liður 1.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 317“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  20. 2014

    Bæjarráð, fundur 385 liður 22

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Staða framkvæmda var kynnt og bæjarstjóra og fjármálastjóra var falið að fara yfir málið í samráði við framkvæmdasvið og leggja greinargerð fyrir bæjarráð.

    Endursögn gervigreindar

    Vísað til bæjarráðs frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

    Kynning á stöðu framkvæmda.

    Bæjarstjóra og fjármálastjóra í samráði við framkvæmdasvið falið að fara ítarlega yfir málið og leggja greinargerð fyrir bæjarráð.

  21. Bæjarstjórn, fundur 156 liður 1.22

    Fundargerðin „Bæjarráð - 385“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  22. 2016

    Bæjarráð, fundur 464 liður 2

    Bæjarráð féllst ekki á kröfu Framkvæmdasýslu ríkisins um greiðslu umframkostnaðar, vísaði til bókunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. maí 2014 og fól fjármálastjóra og bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

    Endursögn gervigreindar

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð krafa Framkvæmdasýslu ríkisins um greiðslu umframkostnaðar við byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Eskifirði.

    Bæjarráð getur ekki fallist á kröfu Framkvæmdasýslu ríksins og vísar til bókunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. maí 2014 þar að lútandi. Bæjarráð felur fjármálastjóra, í samstarfi við bæjarstjóra, að vinna að málinu áfram.

  23. Bæjarstjórn, fundur 196 liður 1.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 464“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  24. Bæjarráð, fundur 468 liður 3

    Lögð voru fram drög að samkomulagi við Framkvæmdasýslu ríkisins um umframkostnað vegna 15% greiðsluhluta sveitarfélagsins, sem ekki er á fjárhagsáætlun, og var þeim vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram drög að samkomulagi við Framkvæmdasýslu ríkisins um umframkostnað við byggingu hjúkrunarheimilis á Eskifirði ásamt fyrri gögnum frá Framkvæmdasýslu ríkisins um kostnað við bygginguna. Jafnframt minnisblöð frá bæjarstjóra og fjármálastjóra. Um er að ræða skuldbindingu vegna 15% greiðsluhluta sveitarfélagsins sem ekki er á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

    Bæjarráð vísar samkomulaginu til staðfestingar bæjarstjórnar þar sem um er að ræða skuldbindingu sveitarfélagsins.

  25. Bæjarstjórn, fundur 198 liður 2

    Enginn tók til máls og bæjarstjórn samþykkti samkomulagið um umframkostnað með 9 atkvæðum.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram drög að samkomulagi við Framkvæmdasýslu ríkisins um umframkostnað við byggingu hjúkrunarheimilis á Eskifirði ásamt fyrri gögnum frá Framkvæmdasýslu ríkisins um kostnað við bygginguna. Jafnframt minnisblöð frá bæjarstjóra og fjármálastjóra. Um er að ræða skuldbindingu vegna 15% greiðsluhluta sveitarfélagsins sem ekki er á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samkomulagið með 9 atkvæðum.

  26. Bæjarstjórn, fundur 198 liður 3.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 468“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is