Bæjarráð, fundur 203
13. júlí 2010, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 75 liður 2
Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá

1. Boðun verkfalls Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Mál 1007135 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat Þorbergur Hauksson aðstoðarslökkviliðsstjóri og fór yfir hvernig þjónustu Slökkviliðs Fjarðabyggðar verður háttað í vinnustöðvun Landssambands Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna dagana 23.júlí, 6.ágúst, 13.ágúst, 27.ágúst og frá 7.september. Bæjarráð óskar eftir að fá frá slökkviliðinu, fyrir næsta fund, útfærslu á því hvernig brugðist verður við fyrirhugaðri vinnustöðvun.

2. Samkomulag ríkis og sveitarfélaga vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra
Mál 1007137 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 6.júlí 2010 um fjárhagsramma vegna tilfærslu þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga. Farið var yfir hvernig staðan er á yfirfærslu á málefnum fatlaðra til Fjarðabyggðar. Félagsmálastjóri mun skila inn greiningu til bæjarráðs og félagsmálanefndar fyrir næsta fund.

3. Ráðning í laust starf á félagsþjónustusviði
Mál 1007153 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins og fór yfir þörf á endurráðningu í stöðuheimild. Bæjarráð heimilar ráðningu á starfsmanni í 100% starf á félagsþjónustusviði og felur félagsmálastjóra að auglýsa starfið.

4. Fundur með fulltrúum stjórnar Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar í júlí 2010
Mál 1007140 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu þau Guðfinna Kristjánsdóttir, Jónína Heimisdóttir og Kjartan Reynisson fulltrúar frá stjórn Íbúasamtaka Fáskrúðsfjarðar. Rætt um fjarskiptamál, Franska Spítalann, umhverfismál við ósinn og Franska Daga. Boðað verður til íbúafundar á Fáskrúðsfirði í ágúst og mun bæjarráð sækja fundinn.

5. Franski spítalinn við Hafnarnes
Mál 0910066 Allur ferill málsins
Farið var yfir stöðu mála vegna flutnings Franska Spítalans.

6. Umsóknir um starf bæjarstjóra Fjarðabyggðar
Mál 1007136 Allur ferill málsins

Lagður fram listi yfir umsækjendur um starf bæjarstjóra Fjarðabyggðar. 23 sóttu um starfið en fimm umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.

7. Frystihúsið á Stöðvarfirði
Mál 1007012 Allur ferill málsins
Minnisblað hafnarsviðs og mannvirkjasviðs frá 6.júlí vegna hugmynda um að rífa frystihúsið á Stöðvarfirði. Bæjarstýru falið að vinna málið áfram.

8. Breytingar á stjórnkerfi og stjórnskipulagi Fjarðabyggðar
Mál 1006231 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar framkomnum breytingatillögum á samþykktum nefnda til síðari umræðu í bæjarstjórn.

9. Afnot af íþróttahúsi á Stöðvarfirði vegna bæjarhátíðar
Mál 1007088 Allur ferill málsins

Bréf hóps ungs fólks á Stöðvarfirði frá 5.júlí vegna afnota af íþróttahúsinu á Stöðvarfirði vegna bæjarhátíðar 16.-18.júlí.  Bæjarráð heimilar afnot af húsinu.

10. Nýja íbúaverkefnið í Fjarðabyggð.
Mál 2009-01-16-62 Allur ferill málsins
Minnisblað móttökufulltrúa nýrra íbúa frá 6.júlí, um íbúaþróun, lagt fram til upplýsinga.

11. Ósk um annað aðsetur fyrir félag eldri borgara á Norðfirði
Mál 1007141 Allur ferill málsins
Bréf félags eldri borgara á Norðfirði frá 16.júní lagt fram. Bæjarráð mun funda með félaginu á næstunni.

12. Nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði
Mál 0903017 Allur ferill málsins
Lagt fram til bókunar dómnefndarálit vegna hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði.

13. Hafnarstjórn - 71
Fundargerð lögð fram.