Bæjarráð, fundur 206
10. ágúst 2010, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 75 liður 3
Umsóknir um starf bæjarstjóra Fjarðabyggðar.Ræddar voru umsóknir um starf bæjarstjóra í Fjarðabyggð.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Fram kom að ekki hefði náðs full samstaða um neinn umsækjendanna. Með hliðsjón af því að mörg stór og vandmeðfarin verkefni verða á dagskránni næsta kjörtímabil telur bæjarráð nauðsynlegt að þverpólitísk samstaða náist um þann einstakling sem velst til starfsins. Slík samstaða um nýjan bæjarstjóra var markmið sem bæjarráð og bæjarstjórn Fjarðabyggðar settu sér í upphafi. Því leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að bæjarráði verði falið að leita að umsækjanda sem full samstaða geti skapast um. Bókun Fjarðalistans varðandi fundargerð 204. bæjarráðsfundarBæjarfulltrúar Fjarðalistans lögðu fram bókun á 74. fundi bæjarstjórnar varðandi stefnu listans í ráðningu bæjarstjóra. Nokkrir af umsækjendum um starfið féllu vel að stefnu listans, m.a. allir þeir sem boðaðir voru í viðtöl hjá bæjarráði. Hefði listinn því stutt þá alla til starfsins ef meirihlutinn hefði gert tillögu um einhvern þeirra. Þar sem stór þáttur í okkar stefnu er að þverpólitísk sátt verði um nýjan bæjarstjóra og hún hefur ekki náðs, styðjum við það að öllum umsækjendum sé hafnað og ráðningunni vísað til bæjarráðs í trausti þess að þar verði samið við aðila sem full sátt er um í bæjarstjórn. Við viljum þó gera nokkrar athugasemdir varðandi ráðningarsamning við nýjan bæjarstjóra. Í fyrsta lagi að samningurinn sé opinber og bæði íbúum sveitarfélagsins og fjölmiðlum gefinn kostur að skoða hann. Í öðru lagi felst í starfinu mikil vinna og ábyrgð og teljum við launakjör eiga að vera í samræmi við það. Við leggjum jafnframt áherslu á að samningurinn sé einfaldur og gegnsær og byggist fyrst og fremst á grunnlaunum og fastri yfirvinnu en ekki ýmis konar viðbótar launaliðum. Í þriðja lagi óskum við eftir því að samningurinn taki mið af almennum kjarasamningum eins og kostur er, t.d. með 3ja mánaða biðlaunarétti í stað 6 mánaða eins og tíðkast hefur víða í ráðningarsamningum bæjarstjóra.Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir (sign) Fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
Bæjarstjórn, fundur 76 liður 2
Til máls tóku ( fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu saman).Fundargerð fram lögð og kynnt.
Dagskrá
-
1. Afleysing fyrir húsvörð Grunnskóla Reyðarfjarðar
Mál 1008007 Allur ferill málsins
Bréf skólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar frá 26.júlí og minnisblað fræðslustjóra frá 5.ágúst. Vegna veikinda er óskað eftir ráðningu fram til áramóta í starf húsvarðar við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Bæjarráð samþykkir tímabundna ráðningu í þrjá mánuði samkvæmt tillögu í minnisblaði fræðslustjóra.
-
2. Gjaldskrárbreytingar í skólum Fjarðabyggðar haustið 2010
Mál 1008012 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fræðslustjóra frá 4.ágúst en í því er óskað eftir staðfestingu bæjarráðs á hækkunum gjaldskráa í skólum samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun 2010. Bæjarráð staðfestir gjaldskrárhækkanir.
-
3. Aukning á stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar
Mál 2008-11-21-1815 Allur ferill málsins
Lagt fram til upplýsinga tölvupóstur og gögn frá sparisjóðsstjóra frá 29.júlí er varða fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar. Aðalfundur er fyrirhugaður í lok ágúst.
-
4. Heildarendurskoðun á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Mál 1007023 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar samþykkt stjórnar SSA og bréf til ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fjárhagslegra áhrifa breytts regluverks jöfnunarsjóðs á sveitarfélög á Austurlandi.
-
5. Áskorun um átak í umferðaröryggi
Mál 1008010 Allur ferill málsins
Í áskorun foreldra ungra barna sem hefja grunnskólagöngu í haust í Neskaupstað, er skorað á bæjaryfirvöld, lögreglu, sýslumann og aðra er málið varðar, að bæta umferðaröryggi ungra vegfaranda í Neskaupstað. Bæjarráð þakkar áskorunina og vísar henni til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Jafnframt er áskoruninni vísað til endurskoðunar á umferðarsamþykkt fyrir Fjarðabyggð með ósk um að vinnu við hana verði hraðað. Bæjarráð beinir þeim tilmælum til lögreglu að í upphafi nýs skólaárs verði eftirlit haft með hraðakstri við grunnskóla Fjarðabyggðar.
-
6. Afnot af Félagslundi 4.9.2010
Mál 1008015 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag kynningar á fundi Oddfellowstúkna á Íslandi.
-
7. Fundur bæjarráðs Fjarðabyggðar og forstjóra Alcoa-Fjarðaáls í ágúst 2010
Mál 1008031 Allur ferill málsins
Farið yfir dagskrá og fyrirkomulag fyrirhugaðs fundar með forstjóra Alcoa-Fjarðaáls sem haldinn verður um miðjan ágúst.
-
8. Hugmyndir Zdenek Paták um nýtingu frystihússins á Stöðvarfirði
Mál 1008038 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu Björgvin Valur Guðmundsson og Zdenek Paták. Framlagt bréf Björgvins Vals Guðmundssonar frá 7.ágúst þar sem vakin er athygli á hugmyndum Zdenek Paták og nokkurra einstaklinga um nýtingu frystihússins á Stöðvarfirði sem fyrirhugað er að rífa. Zdenek fór yfir hugmyndirnar og mun leggja fram nánari útlistun í byrjun október. Bæjarráð sammála um að fresta fundi með íbúum á Stöðvarfirði fram í miðjan október.
-
9. Ársreikningur Veturhúsa 2009
Mál 1008028 Allur ferill málsins
Ársreikningur lagður fram til kynningar.