Bæjarráð, fundur 207
17. ágúst 2010, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 76 liður 3
Til máls tóku ( fundargerðir bæjarráðs teknar til umræðu saman).Fundargerð fram lögð og kynnt.
Dagskrá
-
1. Boðun verkfalls Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Mál 1007135 Allur ferill málsins
Slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins og fór yfir gang mála í verkfalli félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eins og deilan hefur snúið að Slökkviliði Fjarðabyggðar.
-
2. Tilboð í akstur með nemendur í VA
Mál 1008048 Allur ferill málsins
Eitt tilboð barst í aksturinn frá Tanna Travel. Bæjarráð felur fjármálastjóra og umhverfisstjóra að fara yfir tilboð Tanna Travel og leggja fram á næsta fundi.
-
3. Tilboð í akstur með íþróttahópa
Mál 1008047 Allur ferill málsins
Eitt tilboð barst í aksturinn frá Tanna Travel. Bæjarráð felur fjármálastjóra og umhverfisstjóra að fara yfir tilboð Tanna Travel og leggja fram á næsta fundi.
-
4. Ríkisjörðin Grænanes í Norðfirði - Hugsanleg kaup Fjarðabyggðar á jörðinni.
Mál 1008013 Allur ferill málsins
Bæjarstýra fór stuttlega yfir forsögu málsins en það nær aftur til 2008. Bæjarstýru og umhverfisstjóra falið að funda með forsvarsmönnum Golfklúbbs Norðfjarðar um leigu á spildu sem klúbburinn hefur haft til afnota og jafnframt að ræða við Sjávarútvegs- og landbunaðarráðuneytið í framhaldi af því.
-
5. Viðhald á félagsaðstöðu fyrir unglinga á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði
Mál 1008046 Allur ferill málsins
Bréf forstöðumanns félagsmiðstöðva á Suðurfjörðum frá 6.ágúst er varðar viðhald húsnæðis félagsmiðstöðvanna á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Vísað til fræðslustjóra með ósk um umsögn vegna samanburðar á húsnæðiskosti og tækjabúnaði í félagsmiðstöðvunum í Fjarðabyggð.
-
6. Starfsdagar í leikskólum Fjarðabyggðar
Mál 1008004 Allur ferill málsins
Tillaga fræðslustjóra frá 4.ágúst um fjölgun starfsdaga á leikskólum Fjarðabyggðar, úr þremur í fjóra, sem vísað var til bæjarráðs frá fræðslu- og frístundanefnd. Bæjarráð frestar umræðu um málið til næsta fundar, óskar eftir að fræðslustjóri komi inn á næsta fund bæjarráðs og óskar einnig eftir samanburði við önnur sveitarfélög vegna fjölda starfsdaga á leikskólum.
-
7. Atvinnuþróunarmál í Fjarðabyggð
Mál 1007204 Allur ferill málsins
Rætt um málið og tekið fyrir á næsta fundi.
-
8. Námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6.september nk.
Mál 1007187 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar upplýsingar um námskeið um lýðræði í sveitarfélögum sem haldið verður 6.september nk. á Reykjavíkursvæðinu. Bæjarráð telur að á tímum niðurskurðar þurfi að gæta aðhalds við ferðir og námskeiðahald og því verði námskeiðið ekki sótt á vegum sveitarfélagsins.
-
9. Tilfærsla málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Mál 1007146 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram greinargerð félagsmálastjóra og fjármálastjóra um tilfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna sem fyrirhuguð er um áramót. Bæjarráð felur bæjarstýru, félagsmálastjóra og fræðslustjóra að eiga fund með Fljótsdalshéraði í vikunni um fyrirliggjandi hugmyndir.